Lindin

Årgang

Lindin - 01.04.2008, Side 4

Lindin - 01.04.2008, Side 4
i VATNASKOGI Skógarmenn KFUM hafa þegar hafist handa við byggingu ó nýjum skóla í Vatnaskógi. Skólinn verður 541 m2 að stærð og mun tengjast núverandi Birkiskóia. Þar verður gistirými fyrir 60 dvalargesti og ó starfsmenn, stofa fyrir liðlega 100 manns, tvær setustofur og vaktherbergi. Með tilkomu hins nýja skóla mun gistiaðstaða allra dvalargesta Vatnaskógar verða fyrsta flokks með tilliti til nútíma krafna og öryggis. Mikill hugur er í Skógarmönnum og hafa nú þegar fjölmargir heitið stuðningi við verkið með ýmsum hætti. Gert er róð fyrir að skólinn kosti um 90 milljónir króna. Reykjavíkurborg hefur þegar heitið 50 milljónum í verkefnið og vonast Skógarmenn til þess að fyrirtæki, sjóðir og aðrir opinberir aðilar leggi mólinu lið. Nú er hafin söfnun í Skólasjóð meðal gamalla Skógarmanna og velunnara Vatnaskógar. Hægt er að leggja mólinu lið með fjórframlagi til starfsins. ÓLAFUR SVERRISSON, FORMAÐUR SKÓGARMANNA RÆÐIR UM NÝBYGGINGUNA í VATNASKÓGI. Hvernig miðar framkvæmdum ? „Þeim miðar bara vel. Núna er verið að grafa grunninn og sprengja klöpp. Við þurftum að lóta gera deiliskipulag af staðnum og það hefur aðeins tafið formlegt byggingarleyfi, en það ætti að vera komið í upphafi sumars. Þannig að þetta lítur bara vel út." Hverju breytir það að fó nýjan skála í Vatnaskóg? „Það verður gríðarleg bylting. Með tilkomu skálans munu allir dvalargestir njóta gistiaðstöðu í sama húsi. Hún verður fyrsta flokks og uppfyllir allar nútímakröfur um öryggi og aðbúnað, allir munu búa vel. I skálanum verður svo stofa sem ráðgert er að rúmi hundrað manns og mun nýtast sem samkomusalur. Þar verður þá hægt að halda kvöldvökur þegar kemur að því að Gamli skáli fái andlitslyftingu. Bakvið húsið mun myndast skemmtileg verönd sem verður kjörin fyrir útistundir. Þar verður skjólríkt og gott og hentugur staður til að grilla, svo dæmi sé tekið." Hvenær er ráðgert að framkvæmdum Ijúki? „Lokadagsetning framkvæmda hefur ekki verið negld niður ennþá. Það á ennþá eftir að klára að fjármagna þessar framkvæmdir. Við höfum ekki nema 60% af ráðgerðum kostnaði. Skógarmenn ætla ekki að steypa sér í skuldir. Við höfum alltaf Gamla skála upp á að hlaupa. En það verður sjálfsagt ekki lengi að bíða þess að nýr skáli verði tekinn í notkun." Hvernig má búast við því að staðan verði í haust ? „Þá ætti platan að vera kiár. Það er að segja gólfið, sem ætti að vera komið og klárt í lok sumars." Eitthvað sem brennur á þér að lokum? ,,Já, ég vil hvetja alla vini Vatnaskógar til að leggja sitt að mörkum til að skálinn rísi. Það verða vinnuflokkar þar sem menn geta gefið af tíma sínum til starfsins eða styrkt verkefnið með fjárframlögum. Engin fjárhæð er of lítil, margt smátt gerir eitt stórt. Leggðu okkur lið og gerðu Vatnaskóg að enn betri stað. "

x

Lindin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.