Jólablaðið - 22.12.1934, Page 1

Jólablaðið - 22.12.1934, Page 1
J ÖLABLADIS II. árgangur. ísafjörður, 22. desember 1934. Jólin 1934. Gleðileg jól! Friöur og friðarhöfðingjar. Mannkynið þráir frið og þarfn* ast friðar. Þó hefir útlitið um ægilega og auðnulausa styrjöld fyrir mannkynið sjaldan verið geigvænlegra. Leiðtogar þjóð- anna, sem undanfarið hafa setið á friðarráðstefnum, til varðveizlu friðarins, hafa sjálfir lýst því, að þeim hafi virst þeir sitja á sprengi- kúlum, sem myndu springa er minst varði, eða á barmi þess glötunargígs, sem gleypt gæti sið- menningu okkar í einu vetfangi. En klukkurnar sem boða helgi jólanna, hringja á ný frið yfir hið sárþreytta mannkyn, sem þarfnast friðarins og þráir friðinn, en sem samt sem áður undirbýr og við- heldur styrjaldarhættunni með vél- um og ýmiskonar brögðum. Enn sem fyr boðar jólahringingin: „frelsi og frið á jörð og blessun drottins barnahjörð", því til þess að friðurinn geti orðið öruggur og hættulaus, þarf mann- kynið fyrst að eignast frið í sál- irnar þreyttu. Það verður að koma að jötu Jesú-barnsins; læra af því I auðmýkt og vinna með barns- legri trú og trausti að stofnun þess jarðríkis, sem byggir tilveru sína á lögmálum Drottins. Án þessa er húsið bygt á þeim sandi, er nýir straumar og tízkuflóð tlm- anna skolar burt er minst varir. Kristur er sá friðarhöfðingi, sem ekki fatast leiðsögnin. Ef vér fylgjum hans dæmi og lærum af anda hans þurfum vér hvorki að óttast sprengingar hinna ægilegu skotefna né þær tálgrafir, sem nú liggja svo að segja við hvert fót- mál mannkynsins. Hin stórkostlega þróun vísind- anna síðustu árin, sem mikið hefir verið notuð I þjónustu vígvéla og styrjalda, sýnir okkur glögglega, hve veik og vanmáttug við erum. Til þess að geta siglt milli boða og skerja mannlífsins þurfum vér örugga leiðsögn; föðurlega hand- leiðslú Guðs, sem styrki okkur i þrautum og erfiðleikum hins daglega lífs. Meðan alt leikur í lyndi er það oft svo, að við þykj- umst sjálffær til baráttunnar, en þegar eitthvað bjátar á, finnum vér bezt vanmátt vorn og þörfina á þeirri föðurlegu handleiðslu sem aldrei bregst. Enn er öllum i minni afleiðingar hinnar ægilegu heimsstyrjaldar frá 1914 til 1918. Hinir beztu og vitrustu menn þjóðanna leitast nú við að beina straumi almennings- álitsins til þess að vaxa frá þeirri villimensku, og sjálfsagt tekst það ef setið er við fætur friðarhöfð- ingjans Jesú Krists, til þess að nema af honum sannan og kristi- legan friðarvilja, og að hver ein- staklingur mannkynsins leiti hans fyist og fremst, til þess að öðlast frið í sinni eigin sál. Þá hvílir menning vor og bar- átta fyrir betri og bjartari framtíð allra jarðbúa á þvl bjargi aldanna, sem ekki hefir bifast í öllu brim- róti þeirra afla sem háð hafa hildarleikinn á jarðríki voru. Sumir telja slíka guðstrú og guðstraust draumóra eða heila- spuna einstakra manna og þykjast geta með vizku sinni ráðið Iög- málum tilverunnar. En þótt þessi guðstrú og traust verði ekki sönn- uð með svo áþreifanlegum hætti, að enginn geti efast, er hún eigi að síður óyggjandi staðreynd. Sú vissan sem áhrifaríkust er i lífi hvers þess einstaklings, sem í auðmýkt kemur að Betlehemsjöt- unni og lítur þar sinn nýfædda konung og frelsara. Meðan við erum sjálf sjúk af óróa og kvíða í hjörtum okkar er ekki við því að búast, að um ytri eða innri frið sé að ræða. Við verðum að verða sátt við guð og menn, til þess að um varanleg frið sé að ræða. Og það er óhjákvæmilegt að við verðum að byrja á okkur sjálfum og þar næst á okkar nánustu og þeim sem við höfum mesta umgengni við. Friður hjartans, friður mann- kynsins, það er hin dásamlega lækning við þeim óróa og kvíða, sem þjáir mannkynið svo mjög, að siðmenning okkar er í stöðugri hættu, og þessi órói og kvíði kemur í veg fyrir, að sótt sé með nægilegu afli að bjartari og far- sælli menningu; hindrar okkur f því nauðsynlegasta: Leitinni að guðs ríki. Látum jólafriðinn fylla hug vorn og hjörtu. Látum fagnaðar- og friðar-boðskap Jólahátíðarinnar verða þá Betlehemsstjörnu, sem vísi okkur veginn til þess fyrir- heitis mannkynsins: að komast stöðugt nær guði. Það er ekki mikið sem okkar fámenna þjóð getur lagt af mörk- um til framgangs alheimsfriðar, en hver einstaklingur og hver þjóð, hversu smá sem er, er þó steinn í þá byggingu, og eftir því sem steinarnir eru fleiri, rís bygg- ingin fyr af grunninum. Enn er það og svo, að ástandið hjá okkur sjálfum er þannig, að við höfum sjaldan þurft frekar á friðarvilja og fórnarlund að halda. Geigvæn- vænlegir boðar sundrungar og flokkahaturs, ógna heilbrigðum þroska og vexti þjóðlífsins á allar hliðar. Hinn kristilegi kærleiki er settur út í horn, en öfl haturs, ófriðar og sundrungar dansa og kveða sín darraðarljóð með þeirri háreisti og ofsa, sem blindar augu margra, svo þeir missa sjónir á Jesú-barninu og Betlehemsstjörn- unni til þess að varða og visa mannkyninu veginn til varanlegs friðar. Það sé jólaósk vor allra, að mannkynið falli fram ,á fótskör friðarhöfðingjans Jesú Krists, því þá höldum vér hugglöð með hækk- andi sól til hagsælli og bjartari tíma. A. B JEN. riyllu þjóð vora’ í friðarskjól faðir himnanna, líknardrottinn. Látlu starfa um bygð og ból bróðurkœrleikans fórnarvottinn. Tengdu saman vort lijarla’ og hönd, heyranda’ og gjöranda orðsins dýra. Látlu þau helgu brœðrabönd í blóði frelsisins treysla og skíra. S. Z. G.

x

Jólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.