Jólablaðið - 20.12.1949, Qupperneq 3

Jólablaðið - 20.12.1949, Qupperneq 3
Svo elskaði guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki. heldur hafi eilíft líf. HINN EILÍFI JÓLABOÐSKAPUR / Elska guðs á heiminum er hinn eilífi jólaboð- skapur. Hann gefur honum eingetinn son sinn, sem frelsara mannanna og leiðtoga þeirra. Syndugu mannkyni gefur hann eilíft líf, svo eng- inn sem trúir glatist. Getur nokkur sýnt meiri elsku en þá, að fórna öllu sem honum er dýrmætast? Slík er elska guðs. Sá er boðskapurinn eilífi, sem jólahátíðin flytur okkur öllum, sem viljum trúa. Hann kemur til okkar á hverri jólahátíð með nýju lífi og nýjum fögnuði yfir fæðingu Jesúbarns- ins, sem fæðist í jötu, af því það er ekkert rúm í gistihúsinu. Trúin og trúleysið heyja stöðuga baráttu í heim- inum, því veldur hið tvískipta eðli mannanna. Segja má með miklum rétti, að ennþá hafi trúin ekki sigrað heiminn, en enginn hefir haft slík áhrif, mátt og vald sem Jesús Kristur. Starf hans og kenning er hið eina, sem tímans tönn hefir ekki unnið á hverjum ráðum sem beitt hefir verið. Kenning Jesú hefir sætt ofsóknum fyrr og síðar; skipulögðum ofsóknum hinna voldugustu heimsherra. Fjöldi kristinna manna hefir orðið að láta lífið fyrir trú sína, og oft hefirekkiannaðverið sjáanlegt en að kristna trúin væri að f jara út í þess- um eða hinum heimshlutanum. En jafnan hefir svo farið, að kristin trú hefir komið endurskírð og sterkari út úr öllum ofsóknum. Þessa er minnst hér sökum þess, að einmitt nú standa yfir víðtækar ofsóknir gegn kristinni trú í ýmsum löndum heims. Það á að leiða hugann að því, að hér sé ekki eingöngu verið að rifja upp gamla og hálfgleymda atburði, heldur sé einnig verið að minnast atburða, sem nú eru ekki langt frá landinu okkar. Þeir, sem eru trúarveikir eða efast um mátt og guðlegt eðli trúarinnar ættu að láta þessa reynslu aldanna sannfæra sig. Það er guðlegt eðli en ekki mannlegur styrkur sem hefir haldið uppi kristinni trú og borið hana fram til sigurs. Nú er dimmt í heimi. Sundrung, tortryggni og vaxandi vígbúnaður hindrar eðlilega samvinnu þjóðanna. Allur almenningur þráir frið og að geta einmitt nú notað vaxandi tækni til stóraukinna framfara. En eins og mennirnir hafa öðlast mátt tækninn- ar og hins efnislega þroska er eðli þeirra og gáfur þroskað til guðdómlegra hluta, ef þeir sjálfir vilja. En hinn guðdómlegi og siðgæðilegi þáttur manns eðlisins hefir verið vanrætktur, og af því rísa hin margvíslegu vandamál sundrungar, tortryggni og stéttahaturs, sem nú falla okkur í fang, og við fá- um ekki við ráðið nema að litlu leyti. Grundvöllurinn er Kristur, segir postulinn. Hann var það þá, og er það enn í dag. Við getum ekki leyst vandamálin nema við eignumst aukið bróður- þel og víðfeðmari skilning. Þann skilning, að við sé- um öll börn föðursins á himnum og að okkur beri að líta á sérhvern mann sem bróður og náunga. Þessi boðorð Krists verðum við að tileinka okkur í orði og verki, og þá munu uppljúkast mörg hlið að nýjum lífssannindum, sem hreinsuð eru af eig- ingirni og yfirgangsemi ofstopans, sem brjóta vill á bak aftur allt, sem hann telur standa sér í vegi. Jólin eru hátíð friðar og gleði. Þau byrja við jöt- una með blessað ungbarnið og ná til hins þyrnum- krýnda á Hausaskeljastað. Þau fela í sér allt mann- lífið frá vöggu til grafar. Við fögnum þessari ljóss- ins hátíð, sem lætur nýja sól renna yfir sjálfum dauðanum; gefur okkur frið og nýjan krapt fyrir Guðssoninn. Hátíð, sem vígir okkur til elsku guðs, sem börn hans; örugg og óttalaus, eins og blessuð litlu börnin, sem brosa íraman í jólaljósin. Guð gefi öllum gleðileg jól, í Jesú nafni.

x

Jólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.