Jólablaðið - 20.12.1949, Page 6

Jólablaðið - 20.12.1949, Page 6
6 JÓLABLAÐIÐ var einnig aðalmóttaka á fiski og bræðsluhús. Kol, sem verzl- unin seldi voru líka, öll geymd í Neðstakaupstaðnum. Ásgeirsverzlun lét fram- lengja og endurbyggja haf- skipabryggju þá í Neðstakaup- staðnum sem enn stendur. Va,r það lengi eina hafskipabryggj- an í bænum. Þykir mér líklegt, að þetta hafi verið fyrsta haf- skipabryggja hér á landi, a.m. k. í eigu íslendinga. Upphaf- lega, bryggjan var nokkuð styttri en sú sem nú stendur, einnig var bryggjan breikkuð mikið siðar. Þótt fastaverzlanir hér væru svona margar sóttu lausakaup- menn einnig hingað. Einkum komu norskar skútur oft með timbur, sem selt var vægara verði en í verzlunum og var sókst eftir viðskiptum við þá. Einnig komu hingað lausakaup menn með margskonar varn- ing, jafnvel nágrannakaup- menn. „Fastakaupmennirnir“ hér fóru líka spekulantstúra bæði um héraðið og til nær- sveitanna. Má af þessu sj á að samkeppni í verzluninni var þó nokkur. Búðir hér í kaupstaðnum voru opnaðar kl. 8 árdegis og voru opnar til kl. 8 að kvöldi yfir vorið og snmarið . Á haust- in var búðum lokað venjuleg- ast kl. 3 á daginn, og þá sezt inn að skrifa reilcninga, þar sem mest — og nær öll við- skiptin gengu gegn um reikn- inga — voru skriftir reikninga mikið verk, þar sem viðskipta- menn skiptu mörgum hundr- uðum, en svo var við hinar stærri verzlanir hér. Laun verzlunarmanna voru fram að 1890: Kr. 600—1000 á ári fyrir fullgilda verzlunar- menn. Liðléttingar höfðu minna; stöku úrvalsmenn höfðu einnig nokkru hærra kaup. — Eftir siðustu aldamót varð kaupið heldur hærra. Full gildir verzlunarmenn höfðu þá almennt 1200—1500 krónur á ári. Frídagar voru engir og eng- in eftirvinna var l)orguð. Flest- ar verzlanir munu þó hafa glatt þjóna sína fyrir jólin. Það þekktist ekki í fasta- verzlunum hér, allt fram yfir aldamótin síðustu, að vörunum væri tranað framan í viðskipta- mennina. Þeir urðu að ganga eftir þvi, sem þeir vildu fá. Oft var mikil þröng hjá hinum stærri verzlunum og urðu þá sumir að bíða lengi eftir af- greiðslu, stundum klukku- stundum saman. Yildi þá hver ýta sér fram fyrir annan. Reyndu verzlunarmenn að taka fólk eftir röð, en við þótti brenna að ríkir menn eða mik- ilsmegandi gengu fyrir félitl- um og fátækum um afgreiðslu, og mun stundum hafa fyrir komið, að fátæklingar urðu frá að hverfa tómhentir. Þegar saltfiskverkunin hér var sem mest voru verkuð hér í bænum (fullverkuð og létt- verkuð) um 20 þúsund skip- pund og af því um helmingur hjá Ásgeirsverzlun. Þegar verkaður var fiskur fyrir aðra, voru fyrst um 1880 teknar kr. 1,25 í verkunarlaun á skippund og síðar 3 kró.nur á skippund, þar með talið að flvtja fiskinn að skipshlið; 4—5 krónur á skippund frá aldamótunum og alla tíð fram að heimsstyrjöld- inni fyrri. Sé reiknað með sömu tölum og hér að ofan, hefir saltfisk- verkunin gefið bæjai’búum frá 60—100 þúsund krónur i vinnu laun árlega og var það mikið fé i þá daga. Rétt þ}Tkir að geta hér nýj- ungar við saltfiskverkunina, sem Ásgeirsvei’zlun hafði fram- kvæmd að, eftir forsögn As- geirs Ásgeirssonar, kaupm., það var fiskþvottavél. Þvoði hún fiskinn sæmilega, nema undir uggunum, og flýtti mikið verkinu. Vél þessi var tekin í notknn og var notuð meira og minna nokkur ár, en svo var notkun hennar hætt. Ásgeirsverzlun var stofnsett af Ásgeii'i Ásgeirssyni, skip- herra frá Rauðamýri, 29. júlí 1852, og vai'ð brátt ein af aðal- verzlunum bæjarins. Um 1880 keypti Ásgeir yngri, Ásgeir Guðmundur Ásgeirsson, siðar etazráð, verzlun Sars & Sönner í Neðstakaupstað. Varð Árni Jónsson, síðar vei'zlunarstj óri Ágeirsverzlunai’, fyrsti verzlun- arstjói'i í Neðstakaupstaðnum fyrir Ásgeir yngra. Um 1883 mun Ásgeirsverzlun hafa yfii’- tekið kaupin á Neðstakau])- staðnum og vai’ð Árni þá verzl- unai’stjói’i og allt síðan til 1915, . að Sigfús Daníelsson frá Stokkahlöðum í Eyjafirði tól-; við verzlunarstjórastöi’fum. Ásgeir G. Ásgeirsson var stórhuga og ótrauður að reyna nýjar leiðir. Árni Jónsson hins- vegar sérstakur stjóx-nandi, at- hugull og nákvæmui’, en íheld- inn. Auk verzlunari’ekstursfns átti Ásgeir G. Ásgeirsson í }Tnsum fyrirtækjum, t.d. stofn- aði hann í félagi við C. Stixrud. norskan mann, hvalveiðistöð að Uppsalaeyri við Seyðisfjörð. Síðar var stöð þessi flutt til Austfj ai’ða (Eskif j arðai’). Árni Jónsson, bróðir þeirra sr. Þorvaldar og Grírns cand theol. og Hjartar læknis í Stykkishólmi, var sonur séra Jóns Iljörtssonar á Gilsbakka Útvegsbanki íslands h.f. Útibúið á ísafirði. Engin afgreiðsla í sparisjóði milli | | jóla og nýárs. | :m llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimill = 1 GLEÐILEG JÓL ! GOTTNÝTTÁR! j Þökkum viðskiptin á líðandi ári. | Loftleiðir h.f., Reykjavík. m IBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllllBllllllllllllllllllllllllllllllllll m GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁR! Þakka viðskiptin á líðandi ári. 1 | Rögnvaldur Jónsson. | = iiiiiiiiiii3iiiiiiiiiiiiiiiir.iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiii|iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiniiiiiiii = | GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝÁR! 1 Þökkum viðskiptin á líðandi ári. | Björnsbúð. f “ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii = GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁR! | I Sjómannafélag Isafjarðar. | “ viiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii = j GLEÐILEG J Ó L! j FARSÆLT NÝTT Á R! H.f. Njörður. | c I11M B1:1:: I;' 11'1111 r I' I BB1 11:11; 1! III:' ■ ’ 11M1IKI1 I II III' 11111111111II111111111B1111111111111:11111111111! IM1111111111111 ] 111111111 i 11! 11111

x

Jólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.