Jólablaðið - 20.12.1950, Blaðsíða 4

Jólablaðið - 20.12.1950, Blaðsíða 4
4 JÓLABLAÐIÐ ROÐAR FYRIR NÝJUM DEGI? Samstarf þjóða og einstaklinga er grundvallarskilyrði til þess að sigrast á erfiðleikunum. Ef litið er til stórra atburða á líðandi ári, herrans árinu 1950, bera hæst miklar og merkilegar til- raunir Evrópuþjóða til meira sam- starfs í andlegum og verklegum efnum. Evrópuþing og Evrópuráð eru enn aðeins sem nýfætt barn, Eng- inn getur sagt fyrir um hvort þess- ar stofnanir eiga langt líf og mik- inn þroska fyrir höndum, eða þær verði skammlífar og fæðingar þeirra hafi lítil áhrif. En miklar vonir eru tengdar við þetta þjóðasamstarf. Vonir, sem byggðar eru á bjargi veruleikans og sem eiga sér djúpar rætur, Þroskað- ar í kyrrþey á erfiðleikastundum. Okkar kynslóð, sem nú erum 50— 60 ára gömul, hefir séð og reynt meira en nokkur önnur kynslóð, sem mannkynssagan greinir frá. Fram að tvítugu var rómantíkin og efnishyggjan ráðandi hlið við hlið, í nokkurskonar jafnvægi. Eft- ir heimsstyrjöldina 1914—1918 komst allt úr jafnvægi. Efnishyggj- an varð drottnandi og friðardraum- um mannkynsins var lokið í bili. En þrá mannsins verður að eins stöðvuð í bili. Friðarþráin vaknaði strax er blóðbaðið 1914—1918 var hafið, og jafnskjótt sem friðarorð- ið var ritað á pappírinn hófst nýtt friðarstarf. Það friðarstarf var aðeins sem skin milli skúra eins og kunnugt er. Árið 1939 hófst ný heimsstyrjöld sem stóð í fimm ár. Þessi ægilegu átök, eldskírn þjóð- anna, kom öllu því gamla á ringul- reið, bæði efnislega og andlega. Trú, siðir, venjur og allt daglegt líf varð með nýju sniði eða ósniði. Njóttu lífsins í dag, þú veizt ekki hvort þú lifir á morgun varð lífs- skoðun fjöldans. Og þessi Iífsnot, þessar unaðssemdir, voru fólgin í því að lifa sem trylltustu lífi, svæfa mannveruna í sjálfum sér, en vekja dýrið. Verða grimmt og villt dýr, sem eingöngu hugsaði um það, að ná sér í nýja bráð. Margir hafa látið í ljós, að ekk- ert réttlæti betur vantrú um fram- farir mannkynsins en þær stað- reyndir, sem marg endurtaka sig bæði í styrjaldarbálinu og eftir- stríðsárunum. En þeir, sem kveða upp slíkan dóm gera sér tæpast nægilega grein fyrir því, hvað röskunin er alger. Gamlar hugmyndir og gamlir hlut- ir snúast við. Þeir standa á höfði, eru yfirstrykaðir með svörtu feitu stryki. Ekkert kemur í staðinn, bara óskapnaður. Störfin snúast öll um hernað, yfirgang og eyðilegg- ingu. Nútíðin, augnablikið, er allt; framtíðin ekkert. Að byggja upp fyrir framtíð er fjarlægt, eins og grámóða í hillingum þeirra, sem sjá lengzt eða bezt hafa varðveitt sjónina, miðað við gömlu sjónar- miðin. Ef dýrið í manninum var ekki dautt hlaut það vissulega að vakna við slík skilyrði, og mann- dýrið var vel lifandi hjá öllum þorra manna. Nú kom þess tími, nú var kallað á það af valdhöfum og forráðamönnum þjóðanna, þvílíkt gullið tækifæri fyrir dýrslegar hvatir. Með slíka sjón í huga eykur það einmitt trúna á framfarir mann- kynsins, að dýrið drap ekki mann- inn. Maðurinn lifir, að vísu særð- ur og ruglaður. Og jafnskjótt sem hann hefir náð nokkrum aftur- bata byrjar líf mannverunnar með nýjum þroska. Batinn er bundinn og tengdur gömlum minningum, verðmætum úr eigin reynzlu og arfi frá gengnum kynslóðum. Hið nýja lífsviðhorf er að samlagast sem bezt aðstæðum yfirstandandi tima. Vitanlega tekur þetta talsverð an tíma. Djúp sár og alvarleg veik- indi læknast ekki á augabragði. En lækningin tekst áreiðanlega, og hún verður sem voldug hljómkviða með þeim sameiginlega boðskap kristn- innar trúar. Við erum allir bræður, sem eigum að leggja okkar lið til sameiginlegrar velferðar. Þetta er hugsjón ársins, sem blossað hefir upp með nýjum krafti, en jafnframt grúfa yfir dökk ský ófriðar og sundurlyndis. Við höfum undanfarna mánuði lifað á gjáarbarmi, sem við getum dottið fram af á hverri stundu. Segja má, að ófriðarblikan hafi aldrei vikið frá höfðum okkar, og styrjaldar- bálið hafi getað brotist út í ljósum loga á hverri stundu. Þess vegna er friðarvonin enn dýrmætari, en hún fær vöxt sinn og viðgang með auknu samstarfi og skilningi þjóða á milli. Að því er íslenzku þjóðina snert- ir er þessi alþjóðasamvinna orðin eitt af okkar málum. Við höfum sagt okkur í lög um samstarf þetta, og skuldbundist til þess að láta af hendi þann litla skerf, sem vér get- um. Þetta samstarf Evrópuþjóða og annarra er okkur og öðrum smá- þjóðum einnig liið mikilsverðasta. Það veitir öryggi um frelsi okkar og sjálfstæði, og það grundvallar að- stæður til aðstoðar og samhjálpar, sem hinn smái og veiki getur þurft að halda á þegar minnzt varir, ekki sízt á þeim tímum, sem heimurinn dunar af vopnabraki og vígvélagný. Friðarhugsjónin er skær og lifir nú með meiri krafti en áður, en enginn getur þó örugglega sagt hvort framundan er friður eða stríð, og í Evrópu ríkir nú hinn vopnaði friður, sem lætur þjóðirn- ar leggja stöðugt nýtt ok að háls- um sínum, svo þær séu undirbúnar fyrir stríðið. Þetta er ægilegt ástand, og styrj- aldaróttinn læsir sig sem helkuldi um eðlilegt líf friðsamra þjóða, þar sem jafnvel daglegar athafnir mót- ast af styrjaldarhættu og stríðsund- irbúningi. Þessvegna er friðarvonin almenn og sterk. En friðurinn þarf að verða meira en von. Hann þarf að verða vissa, sem eyðir styrjaldar- óttanum og sem gefur þjóðunum tækifæri til þess að byggja upp framtíð sína í friði. Þá getum við með réttu vænzt vaxandi hagsæld- ar, því hinar öru tæknilegu fram- farir hafa veitt okkur fjölda tæki- færa til þess að byggja upp betri og bjartari heim fyrir allar þjóðir. | BÆKUR, mikið úrval. I LEIKFÖNG, lítið úrval. | | JÖLAKORT, fjölbreytt úrval. I | Þeir, sem kynnu að þurfa að skipta á bókum eftir | 1 jólin, eru velkomnir á þriðja í jólum — en ekki seinna. 1 I BÓKHLAÐAN. | | Guílsmíðavinnustofan S A F F Ó! | | Allir.? sem vilja fá góða og vandaða silfurmuni til | | jólagjafa, komið sem fyrst í SAFFÓ. Þar fást háls- 1 |.men, armbönd, krossar, eyrnalokkar, brjóstnælur, 1 | silfurhringar, karlmannsskyrtuhnappar, Kvennúr- | | armbönd, beltispör, upphlutsborðar, millur, doppur á \ 1 belti, stokkabelti, kvennskyrtuhnappar o.fl. 1 Hreinsa silfurmuni. Kaupi gull og silfur. Pantanir | | afgreiddar gegn póstkröfu um land allt. | 1 Höskuidur gullsmiður, Sundstræti 39, ísafirði. | Smjörlíkisgerð Isafjarðar h.f., ísafirði. óskar öllum viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsæls nýárs, með þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári. Öllum viðskiptamönnum á Vestfjörðum óska ég gleðilegra jóla og góðs nýárs. I og þakka viðskiptin á líðandi ári. | Ásbjörn Ólafsson, | Grettisgötu 2, Reykjavík.

x

Jólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólablaðið
https://timarit.is/publication/1540

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.