Börn og menning - 01.09.2004, Síða 12
10
Börn og menning
finnst um leikhúsið sem er verið að bjóða
þeim. Ég fékk að fara inn í Háteigsskóla og
spyrja sex, tíu og tólf ára börn um leikhús.
Einnig fór ég á einn leikskóla þar sem margar
sýningar fara eingöngu inn á leikskólana.
Þetta var ekki vísindaleg, félagsfræðileg
könnun heldur miklu fremur leið til að
athuga hvort börn hafi einhverjar skoðanir
á leikhúsi og þeim sýningum sem þau sjá og
hvort þau hafa eitthvað að segja.
Guð minn góður hvað þetta var gaman.
Ég var í hamingjukasti yfir að fá gagnrýni
á starf mitt frá hópi af krökkum sem eru
hryllilega, yndislega hreinskilin - það var svo
ferskt og frábært. Bara að heyra þau tala. Ég
hugsaði: „Hvar hef ég verið? Af hverju er ég
ekki búin að spyrja þau miklu fyrr?" Hinn
raunverulegi áhorfandi, þessi sem ég er alltaf
að reyna að ná til, er tilbúinn að gagnrýna og
ég get hlustað á hans skoðun bara si svona,
tekið það með mér, þroskast og kannski búið
til betri sýningar. Það var svo miklu sannara
að hlusta á þau gagnrýna Linu heldur en
leikhúsfólk eða vini, því ég leikstýrði Línu
fyrir þau. Ég var að læra.
Þetta sögðu þau
Fyrsti hópurinn sem ég talaði við voru 10 ára
krakkar.
Ég: „Hafið þið farið í leikhús?"
Þau: „Já."
Ég: „Hvað hafið þið séð í leikhúsi?"
Þau: „Dýrin í Hálsaskógi, Línu, Grease."
Ég: „Finnst ykkur skemmtilegt eða leiðinlegt
í leikhúsi:"
Þau: „Skemmtilegt."
Einn strákur „Mér fannst Lina langsokkur
leiðinleg."
Ég hiksta, hósta (hugsa bara ég er farin
heim - börn vita ekkert um leikhús) nei, nei
mér fannst þetta mjög áhugavert. Ég passaði
mig náttúrulega að sega ekki hvar ég vinn
eða hvað ég hef gert heldur bara að ég
ætlaði að spyrja þau aðeins út úr.
Ég: „Hvað fannst þér leiðinlegt?"
Hann: „Hún var svo barnaleg."
Þessir 10 ára krakkar voru sammála um að
barnasýningar væru barnalegar en sumum
fannst þær samt skemmtilegar. Kennarinn
sagði mér að 10 ára börn og 10. bekkur í
Háteigsskóla hefðu farið saman á Dýrin og
10 ára krökkunum fannst sýningin upp til
hópa barnaleg en 10. bekkur skemmti sér
mjög vel.
Ég spurði: „Hvað finnst ykkur sérstaklega
leiðinlegt eða sérstaklega skemmtilegt í
leikhúsi?"
Ein stelpan sagði: „Mér finnst ekki gaman
í barnaleikhúsi þegar heilt lag snýst kannnski
um einhvern runna. Já, eða bangsinn er
týndur heilt lag."
Ég get alveg skilið að 10 ára krökkum
finnist það ekki nógu skemmtilegt.
„En lögin í Grease - hvað fannst ykkur um
þau? Um hvað fjalla þau?"
Svar: „Það er gaman þegar lögin eru gefin
út á geisladisk og lögin í Grease fjalla t.d. um
ástina."
Svo fór ég og talaði við 6 ára börn.
„Hæ, hafið þið farið í leikhús?"
Svar: „Já."
„Er gaman eða leiðinlegt í leikhúsi?"
„Gaman."
„Hvort er skemmtilegra í leikhúsi eða bíó?"
Öll svöruðu strax: „Bíó."
„Af hverju?"
„Leikhús er leikið - bíó er alvöru. Þægilegri
stólar í bíó - maður getur hallað sér svona
aftur á bak en í leikhúsi verður maður að sitja
svona stífur."
„Hvað var skemmtilegast í Linu og Dýrunum
(flest höfðu séð þær)?"
í Dýrunum: „Bakarasenan." í Linu: „Þegar
hún flaug svona í byrjun og rólaði svo
alveg yfir manni. (Allir aldurshóparnir sem
ég talaði við tóku þetta atriði sem dæmi
um sérstaklega skemmtilegt atriði eða
það eftirminnalegasta. Þetta sama atriði er
næstum það eina sem þrír gagnrýnendur
af fjórum fjölluðu neikvætt um í blöðum
og útvarpi. Ég er bara að benda á ólíkar
upplifanir þessara tveggja gagnrýnishópa).
Síðan talaði ég við tólf ára krakka og hélt
að leikhúsinu yrði nú slátrað en viðbrögðin
þar komu mér jafn mikið á óvart og hjá yngri
krökkunum.
Við spurningunni hvort er skemmtilegra
að fara í bíó eða leikhús sögðu öll strax
„leikhús."
„Hvers vegna?" spurði ég og þá fékk ég
sama svarið og hjá sex og tíu ára - bara
búið að snúast við. Leikhúsið var núna orðið
alvöru og bíó bara eitthvað sem var tekið upp
fyrir löngu og klippt. Það skemmtilegasta í
leikhúsi voru mistökin og að sýning er aldrei
eins, og allt getur gerst.
Einum 12 ára strák fannst Lína frábær
sýning, alltaf eitthvað að gerast og bætti við:
„Mér finnst bara leiðinlegt í leikhúsi þegar
fólk stendur svona og talar bara og ekkert
er að gerast."
Þeim fannst brellur líka skemmtilegar eins