Börn og menning - 01.09.2004, Qupperneq 13

Börn og menning - 01.09.2004, Qupperneq 13
Barnaleikhús - fyrír hvern? 11 og eldurinn í Bláa hnettlnum, steinninn í Línu var þó gervilegur, hann var bara úr plasti. En það voru notaðar tvær Línur, nei, önnur var leiser varpað upp og svo fór hún í teygjustökk bak víð húsið. Ég var ekkert að varpa Ijósi á þennan galdur en fannst frábært að þau hefðu allar þessar skoðanir. Þau eru mjög gagnrýnin t.d. á steíninn í Línu sem var úr annari sýningu og þau keyptu það ekki - ekki öll að minnsta kosti. Litlu krökkunum á Lindarborg fannst skemmtilegast að leika sjálf. Þeim fannst allt jafn skemmtilegt en voru sammála um að bíó væri í alvöru „svona filma inní rúllu", sagði ein stelpan og leikhús er bara leikið. Ég spurði: „Eruð þið viss um að bíó sé alvöru?" og fjögurra ára stelpa sagðí: „Ja, það er alla vega tilfinningin." Stákar í sex ára bekk og á leikskólanum voru búnir að sjá Lord of the Rings með pöbbum sínum sem eiga DVD en stelpurnar höfðu ekki séð hana. Þetta nefna þau að fyrra bragði - það er ekki ég sem er að spyrja. Að lokum Við sem störfum við það að búa til menningu fyrir börn verðum að leggja okkur míklu meira fram við að skilja og átta okkur á heiminum sem barnið lifir í. Við verðum að gera markaðskannanir og reyna að fá hreinskilin svör frá krökkum um upplifun þeirra. Reynum að hugsa minna um hvað foreldrarnir vilja að börnin sjái og hugsum um hvað þeim finnst skemmtilegt og við vitum líka að það þýðir ekkert að mata börn á boðskap með lýsisbragði. Ef þeim leiðist, ná þau engu af boðskapnum. Ég dái Harry Potter - ég skil alveg af hverju krökkum finnst gaman að honum: hann er venjulegur strákur en um leið galdrastrákur. Það getur allt gerst hjá Harry í galdraskólanum og það er svo mikil spenna og margar persónur sem þú veist ekki hvort eru viðbjóðslega vondar eða vinir í raun. Ég skil líka af hverju Tumi tígur og Bubbi byggir eru vinsælir hjá krökkum. Ekki sömu krökkunum - það er allt annar markhópur. Víð verðum að átta okkur á að ein sýning hjá sitt hvoru húsinu er ekki nóg fyrir svona breiðan markhóp. Börn alast upp við tölvuleiki, mikið sjónvarp og tölvumyndir þar sem fiskurinn Nemó er raunverulegur eins og sex ára börn myndu segja en um leið er sagan hugmyndarík og stórkostleg. Full af boðskap og ímyndunarafli. Leikhúsið hefur stóra plúsa sem bíóið hefur ekki. Eins og tólf ára krakkarnir bentu á, þá er það nálægðin, orkan og óvissan - allt getur gerst. Og svo eru töfrabrögð sem þú skilur ekki hvernig voru gerð og þau gerast fyrir framan nefið á þér og það er rosalega skemmtilegt. Sjónhverfingar. Ég held að börn hafi rosa gaman að þeim. Mér finnast sjónhverfingar skemmtilegar og finn fyrir gleðinni og spenningnum við að sjá töfra gerast fyrir framan mig, leikhústöfra. Vá, hugsa ég þá, þetta var ótrúlega flott. Hvernig var þetta hægt? Ég er ekki að segja að barnaleikhús framtíðarinnar sé brelluleikhús, heldur að við megum ekki vanmeta þekkingu og þroska þessa markaðshóps. Við verðum að taka inn þeirra raunveruleika, bæta við hann og ögra honum. Víð verðum að hlusta og vera fersk, skemmtileg, heilbrigð, góð, fyndin, krassandi, ögrandi og aldrei tala niður til barna í leikhúsi fyrir börn. Höfundur er leikstjóri.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.