Börn og menning - 01.09.2004, Síða 14

Börn og menning - 01.09.2004, Síða 14
12 Börn og menning Bjarni Guðmarsson Af kassastykkjum og fleiri verkum Tveir menn og kassi eftir Torkild Lindebjerg. Möguleikhúsið sýnir. Leikstjóri og höfundur leikmyndar: Torkild Lindebjerg; leikarar: Bjarni Ingvarsson, Pétur Eggerz og Stefán Örn Arnarson; hljóðmynd: Stefán Örn Arnarson; módelsmíði: Justin Wallace. Sjaldgæfur dagur á lagernum hjá Larsson. Dockteaterverkstan (Svíþjóð) sýnir. Brúður, sviðsmynd og leikur: Cecilia Billing og Anders Lindholm. Handrit og leikstjórn í samstarfi við Juan Rodriguez. Sýnt á norrænni leiklistarhátíð fyrir börn og unglinga, 1515-19/5 2004. íslenska barnaleikhúsið hefur sótt í sig veðrið á undanförnum árum og áratugum og telst örugglega bæði fjölbreytt og framsækið nú. Síðastliðið vor gat að líta ágætt sýnishorn af því sem í boði er á landinu á norrænni barnaleikhúshátíð sem hér var haldin á vegum ASSITEJ á Islandi. Þar tróðu íslenskir barnaleikhúsmenn upp í bland við góða gesti að utan. Sýndi dagskráin svo ekki varð um villst að við stöndum býsna vel og ekki síður að merkimiðinn „barnaleikhús" spannar býsna breitt svið. Alþjóðlegt net Hin einkar ógagnasæja skammstöfun ASSITEJ stendur fyrir heitið Association Internationale de Theatre des Enfants et Jeunesse og er alþjóðlegt net barna- og unglingaleikhúsa með um fjögurra áratuga sögu. íslandsdeild samtakanna var stofnuð árð 1990 og eiga um 20 leikhópar og leikhús hér á landi aðild að deildinni. ASSITEJ á Islandi hefur látið allmikið að sér kveða frá stofnun og átt mikið og gott samstarf við deildirnar á hinum Norðurlöndum. Hafa þær meðal annars skipst á að halda slíkar norrænar leiklistarhátíðir. Nú var röðin sem sé komin að íslandi en hátíðin í vor var sú fyrsta sem ASSITEJ gengst fyrir hér á landi. Um tugur atriða var á dagskrá hátíðarinnar sem stóð í fimm daga, og því Ijóst að halda þurfti vel é spöðum. Sennilega ekki ýkja margir sem gátu notið alls sem í boði var. Um helmingur sýninganna var íslenskur en gestirnir voru einn fulltrúi frá hverju hinna Norðurlandanna, þ.e. Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, auk þess sem ástralska listakona Tamara Kirby leiddi listasmiðju skólabarna. Afrakstur þeirrar vinnu, gjörningur í hljómskálagarðinum um landvættirnar, var opnunaratriði hátíðarinnar. Líf í kössunum Undirritaður átti þess kost að sjá tvær af sýningum hátíðarinnar og snerust báðar í kringum kassa af ýmsum stærðum og gerðum. Sýningarnar voru afar ólíkar, önnur íslensk en hin sænsk, en áttu það sameignlegt að sýna að svo ekki varð um villst að það er líf í kössum - og þá væntanlega hverju sem er þegar hugmyndaflug og sköpunargleði fara saman. Framlag Möguleikhússins, Tveir menn og kassi, er eftir Danann Torkild Lindebjerg og var hann jafnframt leikstjóri. Lindebjerg nam látbragðsleik í Frakklandi og Bandaríkjunum og vinnur einkum við leikhús án orða.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.