Börn og menning - 01.09.2004, Síða 16

Börn og menning - 01.09.2004, Síða 16
14 Börn og menning Á hverju ári er haldinn fjöldinn allur af leiklistarnámskeiðum fyrirbörn og unglinga undir handleiðslu leiklistarmenntaðra kennara. Námskeiðin hafa notið vaxandi vinsælda og hefur aðsókn stundum verið svo góð að einhverjir hafa þurft frá að hverfa. Dæmi eru einnig um börn sem hafa farið allt að fimm sinnum á leiklistarnámskeið. En af hverju eru námskeiðin svona vel sótt og hvað læra börnin af leiklistinni? Ég leitaði svara hjá forsvarsmönnum þriggja leiklistarnámskeiða sem haldin voru á árinu og voru þeir allir sammála um að námskeiðin geti reynst börnunum sem þau sækja ómetanleg. Á námskeiðunum er nefnilega leitast við örva og virkja eðlislægt hugmyndaflug barnanna, þroska Borgarleikhúsið og Draumasmiðjan Lengi vel hefur Borgarleikhúsið sinnt barna- og fræðslustarfi samhliða leikhúsrekstrinum. Því má segja að hefð sé komin fyrir leiklistarnámskeiðunum sem haldin hafa verið þar undanfarin sumur. f ár var ákveðið að óska eftir samstarfi við Draumasmiðjuna og stóðu leikhúsin tvö í sameiningu fyrir fjórum leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga í júlí. Hvert námskeið stóð yfir í fimm virka daga og var kennt sex tíma í senn. Þátttakendur voru á aldrinum átta til sextán ára og var þeim skipt í þrjá hópa eftir aldri. Farið var í leiklistaræfingar, dansað og sungið. Æfingarnar miðuðu að því að leyfa einstaklingnum að njóta sín svo hann fengi tækifæri til að skilja og þroska þá hæfileika sem hann býryfir. Þátttakendur fengu einnig tækifæri til að skoða húsið og prufa alvöru leikbúninga. f lok hvers námskeiðs var haldin leiksýning á Nýja sviðinu fyrir foreldra og aðra aðstandendur. persónuleika þeirra, samstarfshæfileika og öryggi. Þar fá börnin tækifæri til að kynnast sjálfum sér, uppgötva og læra að sjá hluti með ólíkum augum og aðferðum. Og hefur þetta áhrif? Engin spurning. Kennarar og aðstandendur sjá mun á börnunum á eftir. Þau eru opnari, glaðari og jákvæðari auk þess sem þau virðast skemmta sér með eindæmum vel. En leiklistarnámskeiðin hafa ekki síður áhrif á þá fullorðnu því með einlægni sinni tekst börnunum að hrifa þá með og fá þá til að sjá lífið I öðru Ijósi. Möguleikhúsið Frá árinu 1995 hefur Möguleikhúsið staðið fyrir þriggja vikna leikhúsnámskeiðum fyrir börn á aldrinum níu til tólf ára með stuðningi frá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Kennslan fer fram á sumrin í húsakynnum Möguleikhússins við Hlemm og er kennt sex tíma á dag, fimm daga vikunnar. Á námskeiðunum er unnið með flest þau atriði sem tengjast hefðbundinni leikhúsuppsetningu. Meðal þess sem fengist er við má nefna: gerð handrits, æfingar, leikmynd og búningar, lýsing o.fl. Þó að vinnan fari að mestu leyti fram innan dyra er einnig reynt að brjóta upp daginn með því að fara út í guðsgræna náttúruna, ef veður Dæmi úr dagbók Möguleikhússins 9. dagur - 18. júní Við hófum daginn á léttum upphitunar- æfingum og geimveruspuna. Þá þurftu allir að leika geimverur sem voru að koma til jarðarinnar í fyrsta skipti og skoðuðu hluti sem eru hversdagslegir í okkar augum, en stórfurðulegir í augum geimveranna. Síðan var skipt í hópa sem fengu að velja sér eina af þeim sögum sem teknar hafa verið fyrir og endurvinna leikþátt úr þeim. Eftir hádegið klæddu allir sig í búninga úr safni leikhússins og arkað var með allan hópinn niður á Austurvöll þar sem leikþættirnir voru leiknir fyrir gesti og gangandi.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.