Börn og menning - 01.09.2004, Blaðsíða 17
Það er leikur að leika
15
Sönn saga úr Kramhúsinu
„Vitið þið hvað, hún Guðrún frænka var
að eignast tvo kettlinga en hún er samt
ekki kisa."
leyfir. Allir þessir þættir eru síðan nýttir til að
vinna leiksýningu frá grunni, sem er sýnd í
Möguleikhúsinu í lok námskeiðsins. Skapast
hefur sú hefð að sýna sýninguna a.m.k.
tvisvar, annars vegar fyrir börn á nokkrum
leikjanámskeiðum á vegum íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur og hins vegar
fyrir aðstandendur barnanna.
Kramhúsið
í Kramhúsinu hefur verið starfrækt
listasmiðja barna og unglinga í tuttugu ár
og fer starfsemin fram á veturna. Tímabilinu
er þá skipt í tvær tólf vikna annir, þ.e. fyrir
og eftir áramót. Aldurskipt er í hópana og
eru yngstu börnin, þriggja ára, í tónlist og
hreyfingu, fjögurra og fimm ára börn geta
valið á milli leiklistar og tónlistar en þegar
þau eru orðin sex ára og eldri er valið á milli
leiklistar og dans. Hvert námskeið endar
á uppskeruhátíð í einhverju formi fyrir jól
og að vori. Kennararnir á námskeiðunum
eru með ólíka menntun á sviði leiklistar,
dans, myndlistar og tónlistar og er unnið á
skapandi hátt í gegnum listgreinarnar fjórar.
Lögð er áhersla á að hver einstaklingur fái
að njóta sín svo hann geti öðlast félagslega
færni og þori að leggja af stað í ferðalag þótt
útkoman sé óráðin.
Jóna Valborg Árnadóttir