Börn og menning - 01.09.2004, Page 18

Börn og menning - 01.09.2004, Page 18
16 Börn og menning Á undanförnum 10 árum hef ég komið víða við í barnamenningunni sem leikari, rithöfundur og þáttastjórnandi og hefur þessi vinna veitt mér mikla ánægju. í þessu greinarkorni leitast ég við að miðla til lesenda reynslu minni og skoðunum á sjónvarpsefni fyrir börn. Þar tel ég að við íslendingar séum í ákveðnum vandræðum í annars ágætu samfélagi barnamenningar. Við stöndum okkur vel í leikhúsinu og í bókmenntunum og jafnvel i tónlistinni. En hvers vegna erum við komin svona skammt á veg þegar kemur að sjónvarpsefni fyrir börn? Felix Bergsson Fræðsla, skemmtun og virðing Reynslusaga úr sjónvarpi Á árunum 1994 -1996 var ég þess heiðurs aðnjótandi ásamt Gunnari Helgasyni að stjórna Stundinni okkar hjá Ríkissjónvarpinu. Þriðja aflið í þeirri vinnu var upptökustjórinn okkar, Ragnheiður Thorsteinsson. Þegar við þrjú komum að verkefninu fundum við strax fyrir ákveðinni tregðu gagnvart hugmyndum okkar. Þær þóttu of „leikhúslegar" og við fengum oft að heyra setningar eins og: „Þetta mun aldrei virka í sjónvarpi" eða „Sjónvarp í dag hefur breyst. Börnin eru vön hraðari klippingum, meiri litum, meiri látum". Fljótlega rann upp fyrir mér að það sem pirraði sjónvarpsmenn var krafa okkar um að taka góðan tíma í efni þáttarins. Menn höfðu vanist því að efnið væri stutt og hraðsoðið. Stundin okkar hafði á þessum tíma verið stytt úr 60 í 25 mínútur og mönnum þótti sem allt efni yrði að vera knappt og hratt. Mikil áhersla var á leikmyndir og upptökutækni. Það þótti mikilvægt að allt væri litríkt og flott. Sagan eða efnið skipti minna máli. Hvernig datt okkur „leikhúsmönnunum" í hug að 5-7 mínútna ævintýri, sagt af einum sögumanni sem brá sér í hlutverkin með höttum og skuplum í stað búninga, myndi virka í sjónvarpi? Börnin myndu aldrei una sér við slíkt. En við vorum þrjósk. Okkar skoðun - kannski vegna einfeldni - var sú að efnið skipti meira máli en efnistökin. Þannig tókum við peninga út úr sjónvarpsgerðinni sjálfri en settum þá í að fá rithöfunda og atvinnuleikara til samstarfs við okkur. Lykilorð Við unnum eftir lykilorðum fyrir hvern þátt. Umfjöllunarefnið var alltaf eitthvað sem við tókum úr veruleika íslenskra barna. Lykilorðin voru margvísleg: vinir, rafmagn, sjórinn, hræðsla, umferðin og svo framvegis. Mottóið að baki allrar okkar vinnu var sett fram í þremur orðum: fræðsla, skemmtun, virðing. Ég fullyrði að þetta fór strax að skila sér. Hver og einn þáttur stóð sem heild. Börnin voru tilbúin að slaka á fyrir framan sjónvarpið og athygli þeirra var gripin með því að segja þeim sögur. Þetta var það sem þau vildu. Hin gömlu, hægu ævintýri, sögð með gamaldags aðferðum, urðu vinsælustu atriðin í þáttunum. En fyrir hvað stendur mottóið okkar í raun?

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.