Börn og menning - 01.09.2004, Side 34

Börn og menning - 01.09.2004, Side 34
32 Börn og menning Tvær kempur á níræðisaldri fá H.C. Andersen verðlaunin 2004 Hans Christian Andersen verðlaunin eru æðsta alþjóðlega viðurkenning sem rithöfundum og myndskreytum barnabóka getur hlotnast. Á tveggja ára fresti velur IBBY rithöfund og myndskreyti sem hafa skarað fram úr á ferli sínum með framlagi sínu til barnabókmennta. Það er ekki hægt að segja annað en að verðlaunahafarnir í ár hafi lifað tímana tvenna því báðir eru þeir komnir á niræðisaldur. írinn Martin Waddell hlaut verðlaunin sem besti rithöfundurinn 2004, og Hollendingurinn Max Velthuijs fékk verðlaunin fyrir myndskreytingar í ár. Martin Waddell er fæddur í Belfast á Írlandí 10. apríl 1941, f miðri síðari heimsstyrjöldinni. Hann er einn ástsælasti barnabókarithöfundur Ira og á að baki óvenju fjölbreyttan rithöfundarferil. Fyrstu nótt ævi sinnar var hann geymdur undir borði og hlíf úr málmi sett yfir hann til að verja hann fyrir sprengjum. Þegar hann stækkaði átti hann sér framtíðardraum um að verða atvinnumaður í fótbolta og það munaði reyndar mjóu að hann næði því markmiði. Martin skrifar alls kyns sögur fyrir börn, allt frá myndabókum fyrir yngstu börnin upp I alvarlegar sögur fyrir unglinga. Framan af rithöfundarferlinum gaf hann bækur sínar út undir tveimur nöfnum, sínu eigin og dulnefninu Catherine Sefton. Hann notaði eigið nafn þegar hann skrifaði léttari bækur en dulnefnið þegar hann skrifaði alvarlegri bækur þar sem hann tók fyrir samband milli fólks og hvernig það tekst á við erfiðar aðstæður. Núna birtast allar hans bækur undir hans rétta nafni. Martin hefur búið næstum alla sína ævi í Newcastle, í nágrenní Belfast. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur um hvernig uppvöxtur í skugga pólítískra átaka hefur áhrif á líf fólks, sérstaklega tánínga. Einnig skrifar hann draugasögur, aðallega af því honum finnst það skemmtilegt en einnig af því honum finnst draugar gott tákn um hvernig fortíðin hefur áhrif á nútímann. Ein bók hefur verið þýdd á íslensku eftir Martin Wenell, Þú ert duglegur Bangsi litli, Æskan 1999. Max Velthuijs fæddist árið 1923 í Haag í Hollandi, yngstur fjögurra systkina og eini strákurinn. Hann hefur teiknað frá því hann man eftir sér en árið 1944 lauk hann námi í grafískri hönnun og listum frá háskólanum í Arnhem í Hollandi. Framan af starfsævinni vann hann sem grafískur hönnuður og fékkst meðal annars við hönnun á veggspjöldum, frímerkjum, bókakápum auk teiknimynda og sjónvarpsauglýsinga. Árið 1962 hófst ferill hans á sviði barnabóka, bæði sem rithöfundur og myndskreytir, en þá sendi hann frá sér tvær bækur. Síðan hefur hann sent frá sér fjöldann allan af bókum en langþekktastur er hann fyrir bækur sínar um froskinn sem ætlaðar eru yngri lesendum en höfða til allra sem hafa gaman af skemmtilegum og innihaldsríkum myndabókum. Bækurnar um froskinn og vini hans hafa verið gefnar út í meira en 20 löndum. Fyrir þessar bækur er Max Velthuijs elskaður og dáður af dyggum lesendum en froskurinn leit fyrst dagsins Ijós sem aukapersóna í sögum sem komu út árin 1983 og 1985. Hann hefur unnið til margra verðlauna fyrir þessar bækur enda þykja þær sýna mikla visku og flytja skilaboð án þess að predika. Kikker is verliefd (Ástfanginn froskur) er ein elsta bókin um froskinn. Max tekst mjög vel í þessum stuttu sögum að sýna hvernig heimurinn er og hvernig hægt er að koma illa fram við náungann. Alltaf kemur hann þó með jákvæðar lausnir á vanda frosksins og vina hans. ( bókinni Froskurinn og útlendingurinn er gott dæmi um hvernig höfundur tekur á viðkvæmu máli eins og fordómum og ótta við þann sem er utangarðs. Þegar rottan setur upp bækistöðvar sínar I skógarjaðrinum bregðast vinir frosksins við á kunnuglegan hátt: „Ef þú spyrð mig þá lítur hún út eins og skítug og ógeðsleg rotta" sagði Svínið. „Þú verður að fara varlega," sagði Öndin. „Rottur eru mjög þjófóttar." Froskurinn ákveður að komast að hinu sanna sjálfur. Þau verða vinir, rottan og hann, og rottan reyníst vera prýðisnágranni, hjálpsöm og skemmtíleg. Svínið og öndin, sem eru fulltrúar fyrir kynþáttafordóma, falla síðan fyrir kostum rottunnar og þegar hún ákveður að flytja er hennar sárt saknað. Max Velthuijs vinnur mjög lengi með hverja bók, allt upp í heilt ár. Hann vill láta bækur sínar vera sannar, koma beint frá hjartanu. Bækurnar hans um Froskinn fjalla um heimspekilega hluti þar sem hann veltir fyrir sér ást, frelsi, vináttu og dauða. Hvert dýr er fulltrúi ákveðinna eiginleika, t.d. er svínið mjög duglegt, hérinn er gáfulega þenkjandi og gefur oft góð ráð og öndin er vingjarnleg en mjög tilfinninganæm. Höfundurinn segist sjálfur vera líkastur froskinum, sem er oft mjög barnalegur eða naífur! Oddný S. Jónsdóttir

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.