Börn og menning - 01.09.2004, Side 35

Börn og menning - 01.09.2004, Side 35
Úr smiðju höfundar 33 úr smiðju höfundar Kristlaug María Sigurðardóttir Maður er kannski bara að gera eitthvað ómerkilegt eins og að vaska upp eða slá grasið í garðinum sínum þegar maður fær pínulitla hugmynd í kollinn. Kannski ferhún á flakk um heilann og verður að einhverju eins og leikriti eða bók, eða jafnvel bara setningu í jólakorti, en það er líka eins víst að hún leki út um eyrun án þess að maður verði hennar var. Ég held nefnilega að við fáum öll fullt af hugmyndum á hverjum degi sem detta út um eyrun án þess að við höfum haft minnsta grun um að þær hafi verið þarna. Hugmyndin að Ávaxtakörfunni var að vissu leyti þannig. Ég held að hún hafi skollið á hausnum á mér, dottið út um vinstra eyrað án þess að ég hafi orðið hennar vör og síðan fokið aftur inn um hægra eyrað og sest að í kollinum á mér, enda man ég að það var sterkur norðanstrekkingur þegar jarðarberið kom fyrst upp í hugann. Það var skrýtið hvernig jarðarberið tók sér bólfestu í kollinum á mér. Ég gat ekki losnað við það hvernig sem ég hristi hausinn. Fyrsta hugmyndin að Ávaxtakörfunni var mjög flókin. Hún átti að vera um stelpu sem hét Margrét og afmælisdaginn hennar (mér finnst svo erfitt að velja nöfn á sögupersónur og nota því Margrét ansi mikið, enda heita bæði móðir mín og dóttir þessu fallega nafni). Nema hvað, einhvern veginn átti risastór afmælisterta að rúlla inn á sviðið. Síðan átti að kurla ananasinn af því að hann var svo vondur og kreista appelsínuna í safa af því hún var svo safamikil og góð með sig. Jarðarberið átti að vera sigurvegari og tróna efst á tertunni og í bakgrunni áttu að vera börn að leik ( afmælisveislunni. Þegar litið er til baka liggur í augum uppi að þetta var ekki sérlega merkileg eða góð hugmynd, enda eru fyrstu hugmyndir það sjaldnast. En af því að jarðarberið var flutt inn í kollinn á mér hélt hugmyndin áfram að þróast og fljótlega komu fleiri ávextir til sögunnar og svo að sjálfsögðu gulrótin. Á sama tíma datt Margrét út úr myndinni ásamt afmælisveislu, rjómatertu og öllu sem fylgdi henni en jarðarberið fór ekki neitt. Það sem gerðist næst í þróuninni var að ég skrifaði hádramatískar senur þar sem jarðarberið vann alltaf og hinn vondi tapaði. Tungumálið var þrungið tilfinningum og ávextir lágu um sviðið grátandi, niðurbrotnir og svínbeygðir af hinum illa ananas, allir nema ofurjarðarberið sem jafnvel bar ananasinn ofurliði í skilmingakeppni þeirra á milli. Ég sá fljótlega að kannski væri þetta fullmikill „Shakespeare"og ákvað að leggja þetta frá mér og fara að heimsækja mömmu á Akureyri. Örlagarík ökuferð Þar sem ég er ekkert fyrir flugvélar ákvað ég að fara landleiðina norður og fékk far með vinafólki mínu sem var saman í hljómsveit og á leið til Akureyrar að halda tónleika

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.