Börn og menning - 01.09.2004, Page 36

Börn og menning - 01.09.2004, Page 36
eða ball. Ég man ekki hvort þau voru þá í hljómsveitinni Todmobile eða Tweetie, enda skíptir það ekki máli, en leiðin frá Reykjavík til Akureyrar styttist um helming þegar maður ferðast með skemmtilegu fólki. Andrea er auðvitað svo ferlega skemmtileg og hélt uppi stuðinu langleiðina og sagði okkur Þorvaldi Bjarna alls konar sögur og brandara sem gerðu það að verkum að ég var alveg að pissa á mig úr hlátri í aftursætinu og hann alltaf að stoppa bílinn svo við færum ekki útaf. Þegar við vorum komin á Öxnadalsheiðina stoppuðum við, fórum út úr bílnum og nutum þess að horfa á norðurljósin og stjörnurnar fyrir ofan okkur í kyrrðinni. Við stóðum þrjú við vegarbrúnina og Þorvaldur Bjarni gat vart tára bundist yfir fegurð Öxnadalsins í fannhvítum feldi (það var sko vetur), og þarna held ég kannski að hann hafi fengið sína hugmynd um að við myndum vinna saman. Við settumst aftur upp í bílinn og keyrðum sem leið lá niður af heiðinni. Þorvaldur spurði mig þá hvort ég væri ekki eitthvað að skrifa, þar sem ég hafði farið til Genfar nokkrum árum áður, og tekið við þessum líka fínu verðlaunum fyrir skriftir. Ég sagði honum þá frá hugmyndinni að Ávaxtakörfunni, sem ennþá var frekar flókin og kannski líkari teiknimynd en leikriti, en hann skildi nákvæmlega hvert ég var að fara. Svo sagði hann si svona þegar við vorum að renna inn á Akureyri: „Eigum við ekki bara að gera þetta að söngleik?" Mér fannst hugmyndin svo fáránleg að ég reyndi ekki einu sinni að leyna því og aftur lá við að ég pissaði á míg af hlétri. Ég þagnaði hins vegar þegar hann horfði á mig í baksýnisspeglinum og sagði að það hefðu verið gerðir söngleikir um fáránlegri hluti en ávexti og grænmeti, t.d. ketti og skák og væru þeir vinsælustu söngleikir í heiminum. Syngjandi ávextir Nokkrum mánuðum seinna hringdi Þorvaldur í mig og bað mig að gera texta við jólalag. Ég var þá nýflutt til Keflavíkur í húsið mitt og textinn, Senn koma jólin, sunginn af Siggu Beinteins var kannski um það hvernig ég ímyndaði mér að jólin í nýja húsinu yrðu, frekar en að hann væri byggður á reynslu, enda erfitt að kom sér í jólaskap í júlí. Þegar þessu var lokið fór Þorvaldur æ oftar að krefja mig um einhver drög að Ávaxtakörfunni, enda var hann löngu farinn að semja tónlistina og bráðvantaði allt efni frá mér. Nú, ég skrifaði drögin og teiknaði upp hvernig leikritið/söngleíkurinn ætti að vera, svo eignaðist ég fyrsta barnið mitt og gat ekki staðið í því að vera að skrifa eitthvert leikrit þegar ég gat eytt öllum deginum í að horfa á dóttur mína. Þegar þarna var komið hafði Gunnar Ingi Gunnsteinsson leikstjóri og vinur minn lesið drögin og fannst verkefnið mjög spennandi. En ég var ekki ennþá viss um hvernig ég ætti að skrifa þetta, því tilhugsunin um syngjandi ávexti einfaldlega fékk mig til að taka bakföll af hlátri. Kostaði blóð, svita og tár Örlögin höguðu því þannig að ég flutti til Kaupmannahafnar í lok árs 1996 með barn og buru. Ári eftir að ég hafði komið mér fyrir í íbúðinni Ved Volden númer 11 hringdi Gunnar f mig og sagði að ég yrði að fara að skrifa á fullu því það ætti að setja Ávaxtakörfuna upp í (slensku óperunni og það væri bara beðið eftir að ég kláraði handritið. ( millitfðinni hafði ég eignast mitt annað barn og sá fyrir mér að þetta yrði létt verk og löðurmannlegt með annað barnið í leikskólanum og hitt sofandi úti f vagni. Það var nú samt ekki þannig. Þetta kostaði blóð, svita og tár. Og ég man að þegar ég var búin að setja leikritið saman og var að slá inn síðustu orðin í fartölvuna mína, tók ég mér sopa af eðalkaffi úr kaffibollanum mínum sem stóð alla jafna við hlið tölvunnar. Þennan morgun var ég eitthvað æst, enda að klára fyrsta alvöru uppkastið af leikritinu og í æsingnum hellti ég afganginum af kaffinu yfir tölvuna, sem umsvifalaust gaf frá sér undarleg hljóð og svo slokknaði á henni. Þið getið rétt ímyndað ykkur skelfinguna sem greip mig en sem betur fór var hægt að hreinsa kaffið úr tölvunni og ná í leikritið. Það tók að vísu nokkrar vikur en ég fínpússaði handritið svo um sumarið þegar ég fékk nýja tölvu. Ég byrjaði að skrifa á fullu í janúar 1998 og við Þorvaldur unnum þetta mikið í gegnum Internetið, kaffið fór yfir tölvuna um miðjan júní og í ágúst skilaði ég af mér handritinu og söngtextunum til Draumasmiðjunnar sem setti Ávaxtakörfuna á svið. Þann 6. september var svo Ávaxtakarfan frumsýnd og ég sá að það var alls ekki svo galið að láta ávextina syngja og að ég hafði alls ekki nýtt mér alla kosti þeirra. Dauðsá til dæmis eftir því að hafa ekki haft vínberjakór með í söngleiknum, það hefði verið svo viðeigandi, en mér datt það ekki í hug fyrr en eftir frumsýningu og því kom sú hugmynd einfaldlega of seínt. Svona getur lítil hugmynd um jarðarber og rjómatertu orðið að heilum söngleik ef fólk vinnur saman og trúir á það sem það er að gera. Núna datt mér í hug kartafla, fiskur, tröllastelpa og jólasveinn. Eftir nokkur ár komumst við að því hvort einhver af þessum hugmyndum verður að einhverju hjá mér, leikriti eða bók, eða hvort þær leka hægt og rólega út um eyrun á mér og ég geri mér enga grein fyrir því að þær hafi verið til. Höfundur er rithöfundur.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.