Reginn - 30.07.1941, Síða 3
R E G 1 N N
3
R E G I N N
ÚTGEFANDI: ST. FRAMSÓKN nr. 187.
ÚT KOMA 15 BLOÐ Á ÁRI
ÁRG. KOSTAR KR. 2,00
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
FRIÐRIK H]ARTAR.
Afgreiðslumaður:
PETUR BJORNSSON.
, Auglýsingastjóri:
]ÓN KJARTANSSON.
Siglufjarðarprentsmiðja.
Kaupendur Regins í Reykjauík
eru uinsamlega beðnir að greiða
blaðið til Jóh. Ögm. Oddssonar,
Kirkjuhuoli, Reykjauík.
margar ágætar fræðibækur og
skemmtirit, skáldsögur og Ijóða-
bækur, ásamt tímaritum. Flestar
eru bækurnar islenzkar, en þó all-
margar á erlendum málum.
í safninu eru bækur, er snerta
líf sjómannanna og verður í fram-
tiðinni lögð áherzla á það að velja
þangað bækur með hugðarefni
þeirra fyrir augum.
Með þessu bókasafni heimilisins
er stigið merkilegt spor til þess að
efla menningarlega starfsemi þess.
Ó. J. Þ.
F R É T T I R.
Guðsþjönusla, verður haldinn
á Sjómanna- og gestaheimili Siglu-
fjarðar n. k. sunnudag, þann 3.
ágúst ld. 9 að kvöldi.
Sr Óskar J. Þorláksson mun tala
þar um efnið: «Kristur og vorir
tímar«, en kirkjukórinn mun syngja
undir stjórn Tryggva Kristinssonar
organleikara.
Eftir guðsþjónustuna vera sýndar
skuggamyndir úr lífi Jesú, eftir
listaverkum frægra málara.
i
Rauðakrossdeild Sigiufjarðar
hefur fengið sýningarmuni frá
Rauðakrossi íslands.
Munir þessir hafa verið sýndir
á Akureyri og Sauðárkróki, og munu
þeir einnig verða sýndir hér.
Sýning þessi verður auglýst síðar.
H. Kristinsson.
I
Síeingrímur Einarsson I
sjúkrahúslæknir,
andaðist í sjúkrahusinu hér þ. 29 þ. m. — Hans verður
minnzt í blaðinu síðar.
Frá Stórstúkupinginu.
Svo sem kunnugt er, var stór-
stúkuþingið háð á Akranesi (4—7
júlí) að þessu sinni. Sóttu það 70
fulltrúar úr umdæmisstúkum, undir-
stúkum og barnastúkum.
Þingið fór hið bezta fram og var
mjög ánægjulegt. Sýndu Akranes-
ingar hina mestu rausn um við-
tökur og viðurgerning. Allir full-
trúar gistu á heimilum einstakra
manna, þar sem gistihús bæjarins
var fullskipað.
í þinglok sátu fulltrúarnir hóf í
boði Akranesstemplara.
Br, Ólafur Björnsson stýrði hóf-
inu. Skemmtu menn sér þar hið
bezta við ágætar veitingar, ræðu-
höld, söng og dans.
Reginn vottar Akranesingum
beztu þakkir fyrir ágætar við-
tökur og ánægjulegar samveru-
stundir og árnar þeim allra heilla
í framtíðinni.
í Stórstúku íslands eru nú 62
undirstúkur með 5454 félögum og
51 barnastúku með 4600 félögum,
eða samtals 10054 félögum.
Samþ. Stórstúkuþingsins koma í
næsta blaði.
Síldveiðin.
Að kvöldi þ. 28 þ. m. höfðu
Síldarverksmiðjur ríkisins tekið á
uióti síld, sem hér segir:
Á Siglufirði 86260 mál
- Raufarhöfn 28950 —
Samtals 115200 mál
Sama dag í fyrra var veiðin
þessi:
Á Siglufirði 233450 mál
- Raufai'höfn 115530 —
Samtals 349000 mál
Við samanburð verður að hafa
það í huga, að í fyrra hófst mót-
takn 1. júlí, en í ár 10. júlí.
Þá stunda mun færri skip sild-
veiðar nú en i fyrra.
Verzlun
Péturs Björnssonar,
Siglufirði,
hefir oftasl það sem
yður vantar.
Siglfirðingar og
aðkomumenn!
Munið
Verzlun
Péturs Björnssonar.
Drekkið eftirmiðdagskaffið
á Sjómannaheimilinu.