Reginn - 01.02.1959, Page 1

Reginn - 01.02.1959, Page 1
BLAÐ TEMPLARA I SIGLUFIRÐI 1.—2. tbl. 22. árgangur. Sunnudagurinn 1. febrúar 1959. Ábyrgðarmaður: Jóhann Þorvaldsson 1. FEBRÚAR Afengið er hættulegasti óvinur íslenzkrar æsku. Áfengisneyzlu fylgir: menningarleysi, örbyrgð og dauði. Fyrir réttum 24 árum, eða 1. febrúar 1935, voru S'iðustu leifar áfengisbannlaganna afnumdar hér á landi og leyfður innflutningur og sala áfengra drykkja. Tók ríkið að sér innflutning og sölu áfengis oig hefur svo verið um 24 ára skeið. Þegar bann- lögin voru afnumin 1935, voru það allmairgir, sem trúðu því, eða að minnsta kosti héldu því fram, að drykkjuskapur myndi ekki aukast, fremur minnka, ef áfengi væri selt hömlulaust. Enn kunna þeir að vera til, sem halda þessu fram, en reynsla síðasta aidarfjórðungs sannar hið gagnstæða. Eins er það reynsla allra alda og allra þjóða, að því minni hömlur sem eru á sölu áfengis, því meira er neytt af því. Bindindismenn hafa alltaf haldið fram,studdir af allri reyns'lu, að allar hömlur á sölu áfengis minkuðu neyslu þess og stefna bæri því að algjöru inn- flutnings- og sölubanni á áfengi. Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að á þeim 24 árum, sem liðin eru frá 1. febr. 1935, eru það ekki svo fáir Islendingar, sem látið hafa bæði fé og fjörvi vegna ofnautnar áfengis. I dag er þannig ástatt hjá okkur í áfengiemál- unum. Ríkið selur áfengi fyrir síaukna krónutölu ár frá ári. Nokkur hluti þjóðarinn'ar neytir mikils áfengis, og tugir manna láta lífið árlega vegna áfengisneyzlu. Það heyrist ekki ósjaldan, þegar rætt er um áfengisneyzlu, að það sé bein þjóðardyggð að neyta áfengis, því fjárhæðin renni í ríkissjóð, og hann geti ekki án hennar verið; ríkið lifi beinlínis á. áfengissölu og þurfi allt það fé, sem hann fær fyrir slíka sölu. Því skal ekki neitað, að ríkissjóður þarf mikið fé. Hitt er líka rétt, að upphæð sú, sem hann fær fyrir áfengissölu, er há að krónutölu. En lítum þá á málið nánar. Beinn kostnaður Ritgerðarsamkeppni um bindindismál Áfengisvarnanefnd Siglufjarðar hefur, með aðstoð skólastjóra barnaskólans og gagn- fræðcskólans, látið fara fram ritgerðasam- keppn’ um áfengis og bindindismál. I samkeppninni tóku þátt börn úr 12 ára bekkjum barnaskólans og nemendur gagn- fræðaskólans. Eftirtalin börn hlutu verðlaun: Barnaskólinn: 1. verðlaun: Soffía Friðgeirsdóttir 2. verðlaun: Freysteinn Jóhannsson 3. verðlaun: Hlín Sigurðardóttir og Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir. Gagnfræðaskólinn: 1. verðlaun: Ingibjörg Möller 2. verðlaun: Erla Jóhannesdóttir 3. verðlaun: Indriði Jóhannsson og Jóhann Heiðar Jóhannsson. ríkisins vegna áfengisneyzlu þjóðarinnar er svo mikiil, að ekki verður um gróða að ræða, heldur hið gagnstæða. Þar að auki skulum við athuga þessar spurningar: Er ekki íslenzka þjóðin færari um að taka á sig og standa undir þeim fjárhagsbyrðum, er þjóðfélag vort þarfnast, algáð og heilbrigð á sál og líkama, heldur en lömuð af ofnautn áfengra drykkja ? Svarið verður: Jú, vissulega. Er þá ekki heimskulegt og beint mannskeimmandi að halda því fram að ríkissjóður Jmrfi að selja áfengi og græða á því, til þess að hægt sé að halda uppi menningarríki ? Svarið hlýtur að verða: Jú. Sé þetta svo, ber okkur þá ekki skylda til að breyta því ástandi, sem nú ríkir í áfengismálum og (Framhald á 6. síðu)

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.