Reginn - 01.02.1959, Síða 3
3
REGINN
Skýrsla um starfssemi Sjómanna- og gestaheimilis Sigluf jarðar 1958
20. STARFSÁR
/ lesslofu.
I.
Sumarið 1958 hóf Sjómanna- og gestaheimili
Siglufjarðar starfsemi sína þriðjudaginn 24. júní og
starfaði til ágústloka.
Stúkan Framsókn nr. 187 starrækti heimilið eins
og áður. Er þetta tuttugasta sumarið, sem stúkan
starfrækir heimilið yfir tvo til þrjá mánuði á sumri
hverju. Húsakynni heimilisins voru þau sömu og áður.
Fyrsta síldin veiddist 18. júní djúpt út af Húna-
flóa. Þann dag fengu 3 eða 4 skip 2-4 hundruð
tunnur. Síldin var óvenju feit eftir árstíma eða
17 - 20 % og f ó-r öll í salt og frystingu. Frá 19 - 24
júní var nokkur veiði á þessum slóðum og saltað
mikið í Siglufirði og einnig í Ólafsfirði og á Dalvík.
Síldin óð ekki, en kastað eftir mælingum og mori. —
24. júní var búið að salta hér í Siglufirði um 20 þús.
tunnur. Saltað va-r á um 20 plönum hér. Þann 24.
júní voru rúm 100 skip komin til síldveiða, en fjölg-
aði óðum og -munu alls hafa orðið um 240 við veiðar.
iVeður var þessa daga all-taf hæg norðan átt, o-ft
nokkur þoka, hiti 6-8 stig. Margt aðko-mufólk kom
til Siglufjarðar síðustu daga júnímánaðar, en stóð
stutt við og fór aftur að fara upp úr miðjum júlí.
Fólksekla var mikil fyrstu dagana, sem söltun stóð.
Leikflokkur frá Þjóðleikhúsinu sýndi í heimilinu
sjónleikinn „Ho-rft af brúnni“ -tvívegis fyrir fullu
húsi. Þá -sýndi leikflokkur Gísla Halldórssonar sjón-
-leikinn „Spretthl-auparann“, eftir Agnar Þórðarson.
9. júlí -boðaði umboðsmaður asdictækja, Friðrik
Eggertsson, skipstjóra á síldveiðiskipum á fund 1
Sjómannaheimili-nu o-g ræddi við þá um notkun
tækjanna. Um 60 -skipstjórar sátu fundinn.
II.
Starfsemi heimilisins var með sama sniði o-g áður.
Starfsfólk var: Jóhann Þorvaldsson, Erla Ólafs og
Baldvina Baldvinsdóttir. Auk þess unnu þar að-
stoðarstúlkur, þegar mest var að gera í júlí. Heim-
ilið var opið daglega frá kl. 10 f.h. til kl. 23,30.
V-eitingar: kaffi, mjólk, öl og gosdrykkir voru fram-
reiddir í veitingasal alla daga. I veitingasal lágu
frammi flest blöð og mörg tíma-rit. Otvarp var í
veitingasal og píanó og orge-1 höfðu gestir til afnota.
Afgreidd voru landssím-töl, stundum svo tugum
skipti á dag. Annast var um móttöku og sendingu
bréfa, peninga og símsikeyta. Pappír og ritföng
fengu gestir eftir þörfum endurgjaldslaust. Skrifuð
voru 485 bréf í lesstofu, þar af 86 af útlendingu-m.
III.
Bókasafnið var starfrækt eins og áður. I bóka-
safninu eru nú um 2150 bindi bóka. Nokkur hluti
bókanna gengur úr sér árlega og verður að eyði-
leggja þær. Heimilið keypti u-m 200 bindi á árinu
og naut þar stuðnings velunnara sinna. Vegna fjár-
skorts er mjög takmarkað hvað heimilið ge-tur
keypt af bókum árlega. Bækur voru lánaðar í skip
ei-ns og fyrr, einn bókakassi í skip í einu með allt
að tíu bindum. Einnig voru lánaðar bækur til verka-
fólks, sem vann í landi. Enga greiðslu tók -heimilið
fyrir bókalánið. 34 skipshafnir tóku bókakassa og
nokkrar ski-ptu um einu sinni -eða tvisva-r yfir
sumariö. Al-ls voru lánuð -út 578 bindi og er það
með mesta móti.
Flest blöð og og allmörg tímarit -fær heimilið
endurgjaldslaust yfir sumarmánuðina. Vill hei-milið
f-lytja útgefendum beztu þakkir fyrir.
IV.
Böðin starfrækti heimilið eins og áður. Böðin voru
opin til afnota alla vi-r-ka daga og einnig á sunnu-
dögum, þegar mörg veiðiskip lágu í höfn.
Aðsókn að böðunum var mi-kil einkum þá daga,
er veður hamlaði veiði.
Fyr-ripartinn í júlímánuði var ilí-ka margt aðkomu-
fólk í -bænum, en í ágúst tiltölul-ega fátt.
Baðgestir í júlí ............... 1433
— - ágúst ............. 846
AUs 2279
V.
Eins og áður er getið starfrækir stúkan Fram-
sókn nr. 187 Sjómanna- og gestaheimili Siglufjarðar
og hefur svo verið síðan 1939. Með þessari starf-
serni -hefur stúkan bæt-t úr brýnni þörf á samastað
fyrir sjómenn og aðkomufólk yfir síldveiðitímann.
Margir sjómenn og fl. hafa líka látið þakklæti sitt í
ljós í orði og verki. En erfið fjárhagsafkoma hefur
háð starfseminni. Að þessu sinni hófust síldveið-
(Framhald á 6. síðu)