Reginn - 22.12.1970, Síða 1
3.—4. tölublað
Þriðjudaginn 22. desember 1970.
33. árgangur
Boðskapui jólanna er: Ljós, gleði og friður á jörðu. Ljós, gleði og
friður. Er það ekki það, sem allir menn þrá? Maðurinn er í eðli sínu
myrkfælinn. Hann óttast myrkur, en þráir ljós. Jesús kom með ljósið
í heiminn, þess vegna er fæðingarhátíð hans ljóssins hátíð. Við eigum
enn í dag í baráttu við margs konar böl og myrkravöld. Áfengisnautnin
er eitt af þessu böli, og hún leiðir sorg og myrkur yfir mannheim. Jafnvel
jólaljósið reynir hún að slökkva. Minnumst þess, að áfengisneyzlu fylgir
myrkur og sorg. Spillum ekki jólagleðinni. Verið bindindismexm um jólin.
Biðjum þess af hjarta, að jólin, sem við erum nú að fagna, megi flytja
okkur og börnum okkar sem mesta gleði og jólaljós. Þegar maður nálgast
guð, ljómar jólaljósið, sem aldrei slokknar. — Reginn flytur öllum ósk
um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár.
Aðfangadagur:
KI. 18.00: Aftansöngur og
kertaljósamessa.
Jóladagur:
Kl. 14.00: Hátíða- og
skímarmessa
Sunnudagur 27. des.:
Kl. 11: Barnamessa
Gamlaársdagur:
Kl. 18.00: Aftansöngur
Nýársdagur:
Kl. 14.00: Hátíðamessa
Fólki, sem vill fá böm sín
skírð um hátíðamar, er sér-
staklega bent á skírnarmess-
una á jóladag.
GLEÐILEGA IIÁTÍÐ
Sóknarprestur
Stórstúka íslands
óskar landsmönnum
gleðilegra jóla og far-
sældar á komandi ári,
með þeirri ósk og von að
þjóðinni aukist skilningur
á þeim meginsjónarmið-
um, seim grundvalla bimd-
indisstarf allra þeirra að-
ila, er að þeim málum
vinna meðal þjóðarinnar.
Stórstúka Islands