Reginn - 22.12.1970, Side 4
4
R E G I N N
Frá landssambandinu gegn
áfengisbölinu
I. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu álygtar, að Lands-
sambandið beiti sér fram-
vegis eins og hingað til
gegn öllum tilslökunum á
banni gegn framleiðslu og
sölu áfengs öls, og skorar
á aðildarfélög sín að taka
þátt í baráttu gegn hverri
tilraun, sem fram kann að
koma í þá átt, að fá því
banni hrundið.
H. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu samþykkir að mæla
eindregið með frumvarpi
til laga um breytingu á lög-
nm um meðferð ölvaðra
manna og drykkjusjúkra,
sem fram er komið í þing-
skjali nr. 17 1970, þar sem
lagt er til, að hækkað verði
framlag til gæzluvistar-
sjóðs. Væntir þing Lands-
sambandsins, að verði gæzlu
vistarsjóður efldur eins og
þar er lagt til, verði lagt
kapp á að framkvæma í
fyllra mæli en verið hefur
ákvæði nefndra laga, og
einkum að því er snertir á-
kvæði 17. greinar laganna
nm að reisa nauðsynlegar
stofnanir. Þingið telur
mikla nauðsyn, að meðal
þeirra stofnana verði lokuð
hæli fyrir áfengissjúklinga,
konur og karla, auk mót-
tökudeildar fyrir slíka
sjúklinga, sem þurfa bráðr-
ar meðferðar við.
in. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu samþykkir að skora
á Alþingi að hækka framlög
til áfengisvarna og bindis-
samtaka.
IV. Níunda Þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu samþykkir að skora
á yfirstjórn fræðslumála að
efla og auka bindindis-
fræðslu.
V. Níimda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu samþykkir að skora
á heilbrigðismálaráðherra
að ráða sérfróða menn til
að kanna ástand áfengis-
mála hér á landi, og vísar
í því sambandi til ákvæða
2. málsgreinar 17. greinar
laga um meðferð ölvaðra
manna og drykkjusjúkra.
VI. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
böhnu skorar á Alþingi að
samþykkja þingsályktunar-
tillögu á þsk. 83 um varnir
gegn sígarettureykingum,
svo og frumvarp til laga
um breyting á lögum um
verzlun ríkisins með áfengi,
tóbak og lyf á þsk 109, þar
sem lagt er til að bannaðar
verði auglýsingar um tóbak.
Þingið telur, að með því að
vinna gegn tóbaksreyking-
um, sé einnig stigið mikil-
vægt skref í þá átt að
sporna við byrjandi áfengis
nautn unglinga.
VH. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu skorar á Alþingi að
breyta lögum þannig, að
heimilt verði að úrskurða
áfengissjúklinga á hæh eða
sjúkrahús, þótt eigi liggi
fyrir beiðni viðkomandi
sjúklings eða vandamanna
hans.
VIII. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu heitir á alla lands-
menn, að vera vel á verði
gegn innflutningi og neyzlu
fíkni- og eiturlyfja.
IX. Níunda þing Lands-
sambandsins gegn áfengis-
bölinu felur stjórn sinni að
athuga möguleika á því að
bjóða fram námsstyrk til
kennara til að búa sig undir
bindindisfræðslu.
Stjóm Landssambandsins
skipa nú til tvegga ára:
Páll V. Danielsson,
formaður,
Eiríkur stefánsson,
Pétur Bjömsson,
Óskar Pétursson,
Jóna Erlendsdóttir,
Dr. Jakob Jónasson
Jóhanna Steinþórsdóttir.
Aðventukvöld í
Siglufjarðarkirkju
Þann 6. des. s. 1. efndi
Systrafél. Siglufjarðarkirkju
til Aðventukvöldvöku og
mun það fyrsta Aðventu-
kvöld, er efnt er til í Sigiu-
fjarðarkirkju.
Formaður Systrafélagsins
flutti ávarp og síðan hófst
almennur söngur. Þrír ungir
nemendur úr Gagnfræða-
skóla Sigluf jarðar, þau Þórð
ur Jónsson, Jónas Guðmunds
son og Herdís Kjartansdótt-
ir fóru með jólasögu og jóla-
kvæði. Börn á aldrinum 8—
12 ára sungu undir stjórn
Jóhönnu Kalbak. Lúðrasveit-
in lék sálmalög. Jóhann Jó-
hannsson, skólastjóri, flutti
ræðu um jólaminningar og
jólahald, séra Kristján Ró-
bertsson söng einsöng og
Geirharður Valtýsson söng-
stjóri lék einleik á trompet.
Kirkjukórinn söng jólalög,
við undirleik Páls Helgason-
ar, organleikara. Að lokum
flutti formaður kveðjuorð og
endaði kvöldvakan með al-
mennum söng. Var þetta hin
ánægjulegasta stund fyrir
aha er kirkjuna sóttu.
Systrafélaginu og öllum,
er þarna lögðu hönd og hug
að, eru hér með færðar
þaítkir fyrir þessa yndis-
stund.
Bindindismótið 1970
Bindindismótið í Galtalækj-
arskógi um verzlunarmanna-
helgina fór vel fram, þótt
veður skyggði nokkuð á
mótsgleðina, einkum á smmu
daginn, en fór síðan batn-
andi. Mótsgestir voru milh
3 og 4 þúsimd og var fram-
koma þeirra með ágætum.
Dagskrá mótsins hófst á
laugardagskvöld með setn-
ingarræðu Ölafs Jónssonar
umdæmisstjóra, en hann var
jafnframt formaður móts-
stjórnar. — Dagskráin var
mjög fjölbreytt og góð og
stóð mótið fram á mánudag.
Bamafræðsla og
skyldunám
24 skólar í Norðurlands-
kjördæmi vestra. Fækkað
um 9 á fimm árum.
Á þessu skólaári munu
vera 24 bamaskólar í Norð-
urlandskjördæmi vestra. —
Sumir þeirra ná yfir allt
skyldunámið. Fyrir fimm ár-
um voru þeir 33. Við þessa
skóla starfa 55 fastráðnir
kennarar og 24 stundakenn-
arar og er stundakennsian
aðallega í söng, handavinnu
og leikfimi. 1 þessum skólum
munu kennslustundir á viku
vera nálægt 2000. Af þessum
skólum eru 2 starfandi í
kaupstöðum, Sauðárkróki og
Siglufirði. 12 í hreppum
Skagafjarðar. 5 í Austur-
Hún. og 5 1 Vestur-Hún. —
I 11 hreppsfélögum er enn
kennt með undanþágu frá 15
ára fræðsluskyldunni.
I 8 skólum era heimavistir
og í 5 skólum er nemendum
ekið í skólann.
5 farskólar eru enn í kjör-
dæminu.
Erfiðlega hefur gengið að
sameina tvö eða fleiri hrepps
félög um einn skóla, enda
sums staðar ýmsum vand-
kvæðum bundið. Annarsstað-
ar hefur þetta breytzt veru-
lega síðustu ár, t. d. í Aust-