Reginn - 18.12.1975, Blaðsíða 4

Reginn - 18.12.1975, Blaðsíða 4
4 R E G I N N I gær var hinn árlegi bind- indisdagur, sem Landsam- bandið gegn áfengisbölinu stendur að, og í fyrrdag var í húsi Reglunnar fundur á vegum sambandsins. Að Landsambandinu standa nú ein 30 aðildarfélög, sem senda árlega fulltrúa á sam- eiginiegan fund, þar sem rætt er um ástand og horfur í áfengismálum, gerðar til- lögur um úrbætur, samdar áskoranir til ýmissa aðila og bent á leiðir, sem ættu að vera færar. Að þessu sinni mætti á fundinn Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn, og gaf einkar fróðlegt yfirlit yfir samband áfengisneyslu og bifreiðarárekstra. Ein at- hyglisverðasta niðurstaðan er sú, að það fjölgar hlut- fallslega þeim umferðarslys- um, þar sem áfengi kemur við sögu. Sú hækkun er frá því að vera 4% allra bifreið- arárekstra 1973 í 4,3% 1974 og er nú orðin 6% síðustu 10 mánuðina, eða 50% aukn ing frá því 1973. Þetta er uggvænleg þróun svo ekki sé meira sagt. Væntanlega birtist þeta yfirlit í blöðum innan tíðar, og vil ég ein- dregið benda fólki á að kynna sér það. Á fundinum kom mjög skýrt fram sú afstaða, að fyrirbyggjandi aðgerðir skiptu höfuðmáli, enda þótt hvers konar hjálp við drykkjusjúka sé sjálfsögð og þar megi ekkert til spara. Það var álit ræðumanna að hefja þyrfti sókn til að breyta afstöðu manna til á- fengisneyslu, og þá helst á þann veg að fá fram ný Hfs- viðhorf, nýtt gildismat, breytt mat á því, hver séu hin raunverulegu verðmæti lífsins. En fyrirbyggjandi aðgerð- ir eru ekki aðeins fólgnar í endurskoðun viðhorfa, þær eru jafnframt stjórnunarlegs eðlis. Ólafur Haukur Árna- son, áfengisvarnarráðunaut- ur, benti á í afarfróðlegu yfirHti yfir áfengisvarnir síð Guðsteinn Þengilsson, læknir Áfengisvarna- Dáttur fluttur í ríkisútvarpið 17. núv. 1975 astliðins árs, að það væri staðreynd byggð á öruggum rannsóknum, að traustustu áfengisvarnirnar eru að draga sem mest úr heildar- magni þess áfengis, sem neytt er. Drykkjusýkin og á- fengisafbrotin standa í beinu hlutfalli við heildarneyslu- magnið. Sem dæmi nefndi Ólafur reynslu Kanada- manna, þegar lágmarksaldur þeirra, sem leyft er að kaupa áfengi, var lækkaður úr 20 og 21 einu ári í 18 ár. Tíðni umferðarslysa á fólki á aldrinum 18-21 árs jókst eftir þetta hvorki um meira né minna en rúm 130%. Þetta eru geigvænlegar töl- ur, og að sínu leyti ekki síð- ur ógnvekjandi en skýrslurn ar um fylgni reykinga og lungnakrabba. I framhaldi af umræðun- um urðu til ýmsar tillögur og ábendingar, og langar mig til að minnast á nokkr- ar þeirra. Þess er farið á leit við viðkomandi stjórnar- völd, að þau láti afnema hvers konar fríðindi og tolla ívilnanir á áfengi og tóbaki bæði til ferðafólks og ann- arra. Séð verði til þess, að enginn geti haft persónuleg- an hagnað af vínsölu (s.s. umboðsmenn vína, veitinga- menn og barþjónar). Áskor- un til yfirvalda, að stöðva vínveitingar á vegum hins opinbera og bent á afstöðu núverandi menntamálaráð- herra sem glæsilegt for- dæmi. Hækkað verði stór- lega gjald fyrir vínveitingar- leyfi. Stöðvuð verði öll vín- (sala í húsakynnum skólanna |Svo á sumri sem á vetri. Og loks kom fram sú sjálfsagða krafa, að gildandi áfengis- iögum verði framfylgt und- anbragðalaust. Það er meginstefna Lands sambandsins gegn áfengis- bölinu, að vinna að því með öllum tiltækum ráðum að draga úr neyslu áfengra drykkja. Því meira áfengis- magn, sem drukkið er, þeim 'mun meira er tjónið, sem af drykkjunni hlýst. Að þessu stefnumáli sínu hefur Lands sambandið unnið ásamt á- fengisvarnaráði með ýmsum ráðum. Það skírskotar máli sínu beint, bæði til stjórn- valda og almennings með því að leggja fram allar til- tækar tölur og niðurstöður rannsókna um áfengisneyslu og afleiðingar hennar. Það hefur verið á það bent sem hagfræðilegt eða verslunar- fræðilegt lögmál, að því auð- veldara sem það er að nálg- ast vöru, því víðar sem hún er á boðstólum, þeim mun betur selst hún að öðru jöfnu. Af þessu leiðir að bar- átta áfengisvarnanna fyrir fækkun útsölustaða áfengis, fækkun dreifingarstaða. Því dýrari sem einhver vara er, þeim mun minna selst hún að öðru jöfnu. Þessvegna er lagt til að söluverð áfengis sé hækkað. Því fleiri, sem hafa þekkingu á áfengis- neyslu og afleiðingum henn- ar, þeim mun færri mætti ætla að hættu sér út á hina hálu braut vínnautnarinnar. Þessvegna er víðtæk fræðsla og hvers konar upplýsingar- starfsemi nauðsynlegur og og veiga mikill þáttur í bar- áttunni gegn áfengisböli. Þá má geta þess, að Lands- sambandið berst nú fyrir því af öllum mætti, að áfengi verði skráð á nafn og númer kaupanda. Það er meðal ann ars til að torvelda leynivín- sölu (sbr. einnig atriðið um fjölda dreifingarstaða), og til að draga úr því, að ung lingar neyti áfengis. Loks er að minna á þá leið, sem margir vilja fara, og eru góð templarar í broddi fylkingar, en þar er algert innflutnings og sölubann á áfengum drykkjum. Þær úrbætur, sem hér hef- ur verið drepið á, mjmdu vafalaust stuðla að því, að úr vínneyslu dragi og þar með úr slysförum þeim, sem af henni hljótast. Það er að vísu ekkert auðveldara en að benda á hverja einstaka aðgerð út af fyrir sig og segja, að hún sé ekki nægi- leg og þess vegna þýði ekk- ert að reyna hana. Það er þvi nauðsynlegt að fólk skilji, að það er þá fyrst, þegar margar aðgerðir eru sam- i ræmdar og þeim beitt sam- jtímis, sem þær koma að full- jum notum. Þetta um árang- mr samræmdra aðgerða gildir , á afar mörgum sviðum, s. s. við lækningu eða fyrirbygg- ingu sjúkdóma, í efnahags-

x

Reginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.