Reginn - 18.12.1975, Side 8
8
R E G I N N
Meiri hlufi sjóklinga á Vífilstöðum
með lungnasjúkdóma af völdum
reykinga
- Sumir þeirra komast ekki ferða sinna
án súrefnishylkis
„Langflestir þeirra 60-70
lungnasjúklinga, sem liggja
hér á Vífilstaðaspítala eru
með lungnasjúkdóma af völd
um reykinga, það er að segja
langvinna berkjubólgu,
lungnaþan og lungnakrabba-
mein. Flestir þessir sjúkling-
ar eru yfir fimmtugt, en hér
er líka ungt fólk, jafnvel um
tvítugt með með ýmis konar
lungnasjúkdóma af völdum
sígarettureykinga." — Þetta
eru orð Hrafnkels Helgason-
ar, yfirlæknis Vífilstaðaspít-
ala og kom þetta fram í
upplýsingamynd, sem Sam-
starfsnefnd um reykinga-
varnir hefur látið gera, en
sem kunnugt er, stóð nýlega
yfir á vegum nefndarinnar
varnarvika gegn reykingum.
Að sögn Hrafnkels eru
batahorfur þessara sjúkl-
inga litlar sem engar, nema
þeir hætti að reykja, en jafn
vel á spítalanum hefur ver-
ið erfitt að fá þetta fólk tii
að segja skilið við sígarett-
ana. Margir hætta að vísu
Já meðan þeir eru til læknis-
| meðferðar, en allmargir
byrja aftur, þegar þeir fara !
af spítalanum, og eru því '
lagðir inn þar aftur og aft- :
ur. Yfirlæknirinn kvað óhætt J
að fullyrða, að hvorki lang-
jvinn berkjubólga né lungna-
Iþan baitni, ef þeir, sem eru
með þessa sjúkdóma, hætta j
ekki að reykja og Ijóst væri,
að þessir sjúkdómar yrðu
því alvarlegri, sem fólk
reykir meira og lengur.
Þá kom það einnig fram
í samtali við Hrafnkel Helga
son yfirlækni, að margir
1 sjúklinganna á Vífilstöðum,
sem fá að fara heim, eru á-
fram við lélega heilsu, sumir
,eru orðnir algerir öryrkjar
:af völdum reykinga og hóp-
ur sjúklinga, sem dvelst að
staðaldri á spítalanum, er
svo illa farinn, að það fólk
getur ekki gengið um, nema
draga með sér súrefnishylki,
sem það er tengt við.
Minna selt af sígarettum og vindlum
en i fyrra
Líklegt aö á annað þúsund manns hafi hætt
að reykja sígarettur á þessu ári
iSamkvæmt tölum frá Á- salan minnkað um sem næst
fengis- og tóbaksverzlun rík- 110 milljónir sígaretta, eða
isins hefur tóbakssalan hér um það bil 500 þús. pakka.
á landi minnkað að magni til I septemberlok í fyrra nam
fyrstu níu mánuði þessa árs, hún 263 milljónum sígaretta.
miðað við sama tímabil í en fyrstu níu mánuði þessa
fyrra. árs 253 milljónum sígaretta.
Til dæmis hefur sígarettu- Nemur samdrátturinn 3,7 af
Ef þú reykir enn, er hér ábending til þín í
fullri vinsemd: Láttu nú ekki lengur sem öllu
sé óhætt. Sjáðu að þér. Hættu að menga
lungun í þér og þrengja æðarnar til hjartans
áður en það er orðiö of seint.
SAMSTARFSNEFND
w
UM REYKINGAVARNIR
hundraði, en til samanburð-
ar má geta þess, að milli ár-
anna 1973 og 1974 jókst síg-
arettusalan um 15%.
Erfitt er að segja til um,
hve margir íslendingar hafa
hætt að reykja sígarettur á
árinu, einkum vegna þess,
hve fólk hefur reykt mis-
munandi mikið, en til þess
að gefa gleggri hugmynd um
það hvað söluminnkun, sem
nemur um hálfri milljón
pakka á mánuði þýðir í raun
má geta þess, að það sam-
svarar því, að rúmlega 1820
manns, sem reykt hefðu einn
pakka af sígarettum á dag,
hafi hætt að reykja sígar-
ettur í upphafi ársins. Að
' sjálfsögðu hafa menn hætt
'á mismunandi tímum og er
jþví líklegt að mun fleiri hafi
jhætt sígarettureykingum og
I má því reikna þetta dæmi
Já marga vegu.
I Vindlasala, sem jókst milli
Járanna 1973 og 1974, hefur
jminnkað um rúmlega 220
! þúsund stykki fyrstu níu
mánuðina, ef miðað er við
|
| Framh. á 7. síðu