Reginn - 20.12.1976, Blaðsíða 6
§
R E G I N N
Hömlur og
hátt verð
iVísindamenn austan hafs
og vestan eru sammála um
að ekki verð drykkjusýki út-
rýmt með lækningum einum
saman. Góðra gjalda er vert
að leitast við að lækna
drykkjusjúklinga og endur-
hæfa ofdrykkjumenn. Hitt
er ljóst að beint samband er
milli heildaráfengisneyslu
þjóðar og tíðni ofdrykkju.
Þess vegna fjölgar ofdrykkju
mönnum og drykkjusjúkhng
um þótt vel sé unnið að
lækningum og endurhæfingu
ef ekki er unnt að minnka
heildameysluna.
Niðurstöður rannsókna í
mörgum þjóðlöndum sýna
að nærtækustu leiðirnar til
að draga úr heildameyslu
áfengis og minnka þar með
tjón það fyrir þjóðir og ein-
staklinga, sem áfengis-
neysla veldur, em:
1.
Hátt verð. iÞví hærra sem
verð áfengis er miðað við
verðlag nauðsynja, þeim mun
minna er dmkkið.
2.
Hömlur. Því færri sem
dreifingarstaðir áfengis eru,
því styttri sem opnunartími
þeirra er og því færri sem
leyfi hafa til áfengiskaupa
þeim mun minni verður heild
arneyslan. (Glöggt dæmi um
það fékkst hérlendis í þjóna-
verkfallinu svonefnda). Því
hafa ýmsar þjóðir, m.a. finn-
ar og kanadamenn, lagt á-
herslu á að fækka áfengis-
útsöliun og vínveitingahús-
um undanfarið.
Fræðsla um áfengismál
getur aldrei komið í staðinn
fyrir aðgerðir þær, sem að
framan greinir, að mati vís-
indamanna. Hins vegar er
hún nauðsynleg til að búa
fólk undir að skilja og
styðja nauðsynlegar aðgerð-
ir stjórnvalda í þessum efn-
um.
(Áf engisvarnaráð)
(Heimild: Addiction Rese-
arch Foundation o fOrutario).
THOMAS A.
EDISON
sagði:
„Ég neyti aldrei
áfengra drykkja.
Mér hefur alltaf
fundizt ég
þurfa á öskertri
skynsemi minni
að halda."
TILKYNNING
Eins og að undanfömu er fólki gefinn kostur á að lýsa
upp leiði í kirkjugarðinum um jólin. Þurfa öll ljósastæði
að vera komin í garðinn í síðasta lagi 20. desember. Þeir
sem síðar koma með ljósiastæði, eiga á hættu að fá þau
ekki sett í samband. Öll ljósastæði skulu vera vel merkt
eiganda.
Nánari upplýsingar gefa starfsmenn Rafveitunnar.
RAFVEITA SIGLUFJARÐAR
SOKNARNEFND SIGLUFJARÐAR
Óskum öllu starfsfólki voru og viðskiptamönnum.
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
Lagmetisiðjan Siglósíld
Siglufirði
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökk fyrir viðskiptin.
Rafveita Siglufjarðar
TiJ lesenda Regins
Árgjald blaðsins er 100 kr. Sendið 200 kr. (árgjald
fyrir 1975 og 1976). Utanáskrift blaðsins er: Reg-
inn Eiríksgötu 5 Rvík. Reginn pósthólf 143, Sigluf.