Reginn - 20.12.1976, Page 8

Reginn - 20.12.1976, Page 8
8 R E G I N N Ritstjóri og ábyrgðarmaður: JÓHANN ÞORVALDSSON Siglufjarðarprentsmiðja h. f. 1 Ontariofylki í Kanada er ein þekktasta rannsóknar stofnun í áfengis- og fíkni- efnamálum i heimi, Addic- tion Research Foundation. Forstjóri hennar er H. D. Archibald. Hann skýrir svo frá að fjölmiðlar í Kanada hafi árum saman reynt að telja stjómmálamönnum trú um að almenningur hataðist við allar hömlur á sölu dreif- ingu áfengis. Því skyldi á- fengismálastefna þeirra miða að æ frjálsari meðferð þessa vímuefnis. Stofnuin, sem hann veiitir forstöðu, ARF, efndi nýlega til skoðanakönnunar á þessu máli meðal almennings. Þar kom í ljós að fullyrðingar f jölmiðJa eru rangar. Meiri- hluti kanadamanna vill aukn ar hömlur og strangara eftir lit með sölu og dreifingu á- fengis. Þeir vilja fækka bæði vínveitingahúsum og vínsölustöðum. (Áf engis vamaráð) Hjartað og áfengið Svo lengi sem hjartaS slaer, heldur lifið áfram.. Þegar hjartaS gefst upp er lifinu lokiS. ( hjart- aS bætast aldrei fleiri frumur en þaS hafSi viS fraðingu. Þess vegna verSum viS aS varSvelta þaS vel, tll aS halda heilsu og lífi. ÁfengiS skemmlr vðSvafrumur hjartans. Á- fenglsneysla er þvi skaSleg fyrir hjartað. Til íhugunar um áfengismál Það gerist nú æ sjaldgæf- ara að sæmilegir menn láti hafa sig til að andmæla þeim staðreyndum sem kunnar em um eðli og orsakir áfeng- isvandamála. Hitt er öllu hættulegra nú, að drykkju- tískan, sem mögnuð er og gerð eftirsóknarverð af þeim öflum er hagnað hafa af sölu áfengis, virðist eiga auð velt með að ginna æ fleiri einstaklinga í tálsnörur sín- ar. Því fjölgar vínveitinga- húsum og þess vegna skirr- ast ráðamenn við að feta veg menntamálaráðherra, af- nema áfengisveitingar í veisl um sínum. Nýjar rannsóknir sýna að um 90% íslenskra karlmanna frá tvítugsaldri til fimmtugs neyta áfengis. Prósenttala Ikvenna og unglinga hækkar mikið. Ef sú staðreynd er höfð í huga, að tjón, sem áfengisneysla veldur, stend- ur í réttuhlutfalli við neyslu- magn þá em augljós hættu- merki þegar komin í ljós og fleiri framundan, og það því fremur sem menn hefja neyslu áfengis allmiklu yngri nú en fyrir nokkrum áratug- um. Nú byrja karlmenn að neyta áfengis tæpum þrem ámm yngri að meðaltali en fyrir 20-30 ámm og konur fjómm árum yngri. Augljóst ætti því að vera að virkrar andstöðu er þörf meðal þeirra sem falskur dýrðar- ljómi áfengisins hefir ekki enn slegið blindu á mein þau er eiturveigar valda. Þökk sé hverjum þeim, er vinnur að áfengisvömum og hamlar á móti áfengisneyslu. Af erlendum vettvangi munu þau tíðindi ef til vill rnerkust að svokallað „frjáls lyndi í áfengismálum, sem hátt bar á Norðurlöndum á sjötta og sjöunda áratugn- um, virðist hafa gengið sér til húðar. Unnið er að því að stífla ýmsar flóðgáttir sem opnaðar höfðu verið í þeirri trú að kleift væri „að kenna fólki að drekka áfengi.“ Komið hefur í ljós, að slíkt er ókleift. Enda felst í því orðalagi sams konar þver- sögn og ef talað er um kennslu í heróín- eða ópíum- neyslu. Fram hjá þeirri staðreynd verður ekki komist á vorum dögum, að einn af hverjum 10 áfengisneytendum verður drykkjusjúklingur og annar af þessum tug afdrykkju- maður. Á Norðurlöndum er unið að afnámi tollfríðinda sem ferðamenn, farmenn og flugliðar hafa notið varð- andi kaup á áfengi. Finnski vísindamaðurinn dr. Kettil Bruun, einn virt- asti kunnáttumaður um á- fengismál í heimi, hefur lagt til, að Sameinuðu þjóðimar komi á alþjóðlegu eftirliti með áfengisdreifingum á svipaðan hátt og nú er varð- andi fíkniefni. Er ætlunin með því að leitast verði við að draga úr áfengisneyslu og minnka jafnframt með því það tjón sem hún veldur.

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.