Skákblaðið - 01.02.1936, Qupperneq 7
SKÁKBLAÐIÐ SKÁKBLAÐIÐ kemur út 6 sinnum á ári, — 16 síður í livert sinn.,— Verð árgangsins er kr. 4/25, — er greiðist gegn pðstkröfu. —
Ritstjórn anna.st: Guðm. Guðlaugsson, Haukur Snorrason og Björn Halldórsson
31. árg. Akureyri, jan —febr. 1936 I. tölubl. irrs er: Skákblaðið, Box 54, Akureyri.
Sveinn Þorvaldsson,
skákmeistari Norðurlands.
Sveinn Þorvaídsson frá Sauðár-
króki var einn þeirra, sem ofviðrið
14. des, s. 1. svifti lífi. — Skáklíf
Norðurlands er miklum mun snauð-
ara eftir fráfali hans en áður. —
Sveinn var óefað einn sterkasti skák-
maður Norðlendinga. Það sýndu
úrslit skákþings Norðlendingafjórð
ungs, sem haldið var hér á Akur-
eyri í fyrra vetur. — Þótt Sveinn
væri aðeins hálf þrítugur þegar hann
lézt, hafði hann þó um 8 ára bil
komið við skáksögu íslendinga sem
einn hinna fremstu skákmanna landsins. — Hið fyrsta afrek hans
var það, er hann á skákþingi íslendinga á Akureyri 1927, þá á 17.
ári, tefldi í 1. og meistarafiokki, vann 5l/s vinning af 10 mögulegum.
Meðal keppendanna voru tveir íslandsmeistarar, Eggert Gilfer og
Stefán heitinn Ólafsson. Gerði Sveinn jafntefli við Eggert og vann
Stefán, — Þrátt fyrir örðuga aðstöðu og litla fræðslu hafði Sveini
þannig tekist á barnsaldri að þroska skákstyrk sinn svo vel. Bendir
þetta ótvírætt á sjaldgæfa hæfileika. — Það eru margskonar kostir,
er skákmaður þarf að hafa til þess að skara fram úr, og Sveinn
hafði ekki farið þeirra varhluta, Hann var gáfaður og hugkvæminn,
þrautseigur og kjarkmikill, fastur fyrir og lundgöður. Auk þess hafði