Skákblaðið - 01.02.1936, Side 8
2
Skákblaðið
hana lifandi áhuga á skák, þer.nan óskiljanlega, ósjálfska áhuga, sem
einkennir sanna skákmenn. — Sveinn var og að öllu leyti hinn
prúðasti og heiðarlegasti keppandi í íþrótt sinni, gersneyddur yfirlæti
og mikilmennsku. — Sveinn tók þátt í 3 skákþingum íslendinga á
Akureyri og 1 eða 2 í Reykjavík eftir því sem þeim, er þetta ritar,
er bezt kunnugt. — Hann var að vísu í stöðugri framför, en þar
sem hann skorti mjög skilyrði til æfinga t.d. að tefla við sér snjall-
ari eða jafnsnjalla, varð honum þó ekki eins mikils þroska auðið i
skáklist og búast hefði mátt við eftir hinni glæsilegu byrjun hans. —
Eins og Sveini var nú lýst sem skákmanni mætti raunar einnig lýsa
honum sem manni að öðru leyti og almennt, Hinir góðu kostir lians
við skákborðið birtust einnig í ltfsferli hans öllum og frammistöðu í
baráttu lífsins, er hann háði erfiða — við stranga vinnu og fátækt.
Gáfur hans, lagvirkni, þrautseygja og kjarkur, náðu að njóta sín við
hvað sem hann fékkst.
Sveinn var fæddur hinn 12. sept. 1910 og ólzt upp á Sauðár-
króki. Foreldrar hans eru bæði á lífi, þau Þorvaldur Sveinsson og
Rósanna Guðmundsdóttir, búsett á Sauðárkróki — Það er þungur
harmur kveðinn að hinum aldurhnignu hjónum, og þetta er ekki
þeirra fyrsti missir. — Sveinn var stoð og stytta síns heimilis, vinnu-
gefinn, duglegur til verka, ráðdeiJdarsamur og hófsamur í hvívetna;
hann neytti t.d. hvorki víns né tóbaks.
Allir, sem eitthvað kynntust Sveini heitnum, minnast hans með
hlýju og þakklæti fyrir samveruna. Svo miklir voru hans hæíileikar;
s70 sönn hans göfugmennska.
Zukertorts-byrjun.
Sveinn Porvaldsson, hvítt.
Stefán Ólafsson, svart.
1. Rgl — f3 d7 — d5
2. d2 — d4 Rg8- fó
3. e2 —e3 c7 — c6
4. c2—c4 e7 — e6
5. Rbl — d2 Bí8 —e7
6. Bfl—d3 0-0
7. Ddl — c2 Rb8-d7
8. b2 —b3 Hf8-e8
Svartur vill ná góðri varnarstöðu,
en með þessu verður taíl hans
erfitt og hvítur fær tíma að
undirbúa sókn.