Skákblaðið - 01.02.1936, Qupperneq 11
Skákbiaðið
5
ieik og andir strangri stjórn. — Aljechin þekkti Euwe fyrirfram sem
einn hinn mesta fræðimann í skák og hugðist fara eftir þ</í og leika
leika afbrigðilega og lítt þekkta leiki í byrjunum. Virtist þetta gefast
vel í byrjun, en svo fór að E sá við hinum gamla ref. Og þegar
A, fann að einvígið tók að halla á hann og E. tók forustuna, þótti
sem A, heíði mist kjarkinn. Hann fer að grípa til óyndisúrræða,
missir ró sína og jafnvægi og fet meira og minna vísvitandi tví-
sýnar leiðir. —
Ymislegt sögulegt gerðist í sambandi við þessa keppni, en lítt
er að henda reiður á fregnum af sltku. Við 21. skákina er talið að
legið hafi nærri að E. hætti keppninni vegna framkomu A., sem þótti
miður sæmandi. Hann kom of seint að taflinu, og var, að því sagt
er, drukkinn nokkuð og var í æstu skapi. Pó var þessi skák tefld
þá þegar, Henni tapaði A. þrátt fyrir ágæta taflmennsku að því
er fræðtmenn telja. Þarna á eftir varð nokkurra daga hlé á bardag-
anum að því er talið var vegna lasleika A. á taugum. Þetta jafnað-
ist og að loknu einvíginu komu þeir keppendurnir fram sem beztu
vinir og óskuðu hver öðrum heilla í lokasamsætinu. Við það tæki-
færi notaði A forrétt sinn og skoraði á E. til heimsmeistaraeinvígis
á árinu 1937 og tók E. því boði.
Það er frá ketti þeirra Aljechins hjónanna að segja, að hann
tók þátt í þessu einvígi eins og vænta mátti með heillagrip. Eitt
sinn stökk hann upp á skákborðið hjá köppunum og ruddi mönnun-
um um koll. Euwe hafði engan beig af þessum heillagrip andstæð-
ings síns og lét vel að kettinum og strauk honum. Hollendingar
nokkrir skutu um þetta leyti saman og keyptu kvenkött og gáfu
Aljechin til þess að kisi hans væri ekki einn og einmana. Máske
það hafi verið þessi bleyða, sem spillti hamingju Aljechin af gamla
kisa sínum. —
Hinn nýi heimsmeistari Dr. Max Euwe er fæddur í Amsterdam
í Hollandi 20. maí 1901. tlann gekk skólaveginn í æsku og að loknu
stærðfræðinámi gerðist hann kennari og hefir nú stöðu við kvenna*
skóla í Amsterdam. — Þegar 4 ára gamall Jærði hann skák og tók
undraverðum framförum. — Hann hefir ætíð talið sig áhugamann
(ekki atvinnumann) í skáklistinni og hefir aldrei fengið neina
þóknun fyrir skákstarfsemi sína og veðfé sitt úr heimsmeistara-
keppninni gaf hann hollen.ska skáksambandinu E. er frábærlega