Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.1999, Síða 1

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.1999, Síða 1
Starfsmannafélags ríkisstofnana 1. tölublað 41. árgangur - janúar 1999 Hér er einn af þeim 7 hópum sem nú þegar hafa útskrifast af “Samstíga til framtíðar", ásamt umsjónarmönnum námskeiðsins. Trúnaðarmenn - Samstíga til framtíðar Almenn ánægja er meðal trúnaðarmanna sem sótt hafa námskeiðið „Samstíga til framtíðar" sem Starfsmannafélag ríkis- stofnana og Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar fóru sameiginlega af stað með síðastliðið haust. Nú hafa um 166 trúnaðarmenn klárað námskeiðið, þar af 100 frá SFR. Enn eru 4 námskeið eftir í boði í þessari lotu, þannig að talan á eftir að hækka. SFR hefur tekið saman nýja handbók fyrir trúnaðarmenn til að auðvelda þeim trúnaðarmannastarfið á vinnustað sínum. Flandbókin verður afhent á næsta trúnaðar- mannaráðsfundi þann 26. janúar nk. SFR - 60 ára í haust Þann 17. nóvember nk. eru liðinn 60 ár frá því að Starfsmannafélag ríkisstofn- anna var stofnað. Stjórn félagsins hefur ákveðið að minnast þessara tímamóta og sett hefur verið á laggirnar sérstök afmælisnefnd sem undirbýr nú hvernig halda skuli upp á þessi merku tímamót. Þorleifur Óskarsson sagnfræðingur hefur verið ráðinn til þess að skrá sögu félagsins og hefur hann þegar hafist handa eins og sjá má í blaðinu þar sem hann fjallar um nánasta aðdraganda að stofnun félagsins. Sjá bls. 2. og 4, Leiðari I leiðara blaðsins fjallar Jens Andrésson, formaður SFR, um stöðu og hlutverk verkalýðshreyfingarinnar. Hann segir m.a.: Aldrei hef ég verið eins eins sannfærður um gildi verkalýðshreyfingarinnar og nauðsyn þess að efla félags- vitund og samtakamátt til varnar mannréttindum og ein- staklingsfrelsi eins og þjóðfé- lagsaðstæður eru í dag. Því þegar öllu er á botninn hvolft, þá er það fleira sem sameinar launafólk en sundrar því. Sjá bls. 2. Félagsmaðurinn Félagsmaðurinn að þessu sinni er Sigurjón Aðal- steinsson, deildarstjóri hjá Fiskistofu. Hann, ásamt 13 öðrum starfsmönnum þar á bæ, hafa eftirlit með því að allur afli sem landað er hér á landi sé vigtaður og skráður. Sigurjón segir að Fiskistofa hafi yfir að ráða öflugum „her“ sem sjái til þess að enginn komist upp með að landa fram hjá vigt. Sjá bls. 3. Sæludagar á Spáni Birna Karlsdóttir fór í fyrra til Spánar og dvaldi í orlofshúsi sem hún leigði fyrir milligöngu SFR. í grein sem hún skrifar í blaðið lýsir hún húsinu, um- hverfinu og spænskum þjófum. Orlofsnefnd SFR hefur endurnýjað samning sinn við húseiganda á Spáni þannig að eitt hús mun standa SFR- félögum til boða nú í sumar. Menn verða að hafa hraðar hendur ef þeir ætla að nýta sér þetta tilboð því umsóknar- frestur rennur út 5. febrúar. Sjá bls. 7 og 8.

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.