Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.1999, Qupperneq 7
Hvað finnst félagsmönnum um SFR?
í október sl. var ákveðið að
ráðast í það verkefni að gera
viðhorfskönnun meðal félags-
manna SFR. Hugmyndin var
að kanna hug félagsmanna til
að hafa til viðmiðunar við
framtíðarstefnumótun félags-
ins.
Könnunin var framkvæmd
af fyrirtækinu Lausnir og fór
fram í nóvember 1998. Hún
var gerð símleiðis með viðtöl-
um sem byggðust einkum á
opnum spurningum. I byrjun
samtals var viðmælendum
skýrt frá því að könnunin væri
gerð til að félagið gæti bætt
starfsemi sína og þjónað betur
þörfum félagsmanna. Rætt var
við 100 manns sem valdir
voru af handahófi úr félaga-
skrá SFR. Könnunin beindist
að ímynd félagsins í hugum
félagsmanna og hinum ýmsu
þáttum starfseminnar sem
snúa að þeim. Hér á eftir verða
tekin nokkur dæmi um spurn-
ingar og ummæli þátttakenda.
Hvað kemur þérfyrst í hug
þegar Starfsmannafélag ríkis-
stofnana-SFR er nefnt á nafh?
29% sögðu stéttarfélag,
19% kjara- og launamál. 13%
lág laun/slök kjarabarátta, 6%
forystan, 4% endurmennt-
un/námskeið, 4% fréttabréfið,
3% orlofshús, 8% annað og
14% sögðu ekkert sérstakt.
Finnst þér vera styrkur að
vera í stéttarfélagi?
Svörun var 100% hér og
93% þeirra töldu það vera
styrk að vera í stéttarfélagi og
hjá þeim skipti mestu máli
hagsmuna- og réttindabaráttan
(45%). Nefnt var sem dæmi
meðal annars að ef þú ert ekki
félagsbundinn þá hefur þú
ekki réttindi og að sameinuð
getum við komið ýmsu í verk
sem við getum ekki hvert og
eitt.
Hverfinnst þér vera styrk-
urfélagsins?
Hér skoraði hæst fjöld-
inn/samstaðan (30%) og þjón-
ustan (14%). Styrkurinn felst
m.a. í því að nærri allir þeir
sem spurðir voru telja að þeim
sé akkur í að vera í stéttarfé-
lagi, vegna hagsmuna sinna og
öryggis eða eins og einn við-
mælenda sagði „einn getur
maður ekkert“, fjöldinn og
samstaðan veitir styrk.
Hverjar finnst þér veikar
hliðar félagsins ?
19% nefndu tengslaleysi,
17% kjarabaráttuna og 12%
stærðina/fjöldann. Skortur á
tengslum, m.a. vegna stærðar
félagsins, hversu ólíkir aðild-
arhóparnir eru og dreifðir um
STARFSMANNAFÉLAG
RÍKISSTOFNANA
landið veldur því að fólk finn-
ur ekki til snertingar við félag-
ið.
Lestu Félagstíðindi?
Hér kom í ljós að 87% að-
spurðra lesa alltaf eða oftast í
gegnum blaðið. Jafnframt
komu ábendingar um hvað
vantaði helst í blaðið og voru
skoðanir mjög skiptar þar.
Sumir vildu meiri umfjöllun
um þá þróun sem er í gangi,
aðrir vildu meiri fréttir af fé-
lagsstarfinu og fleiri ríkis-
stofnunum og fjölbreyttara
efni utan af landi.
Núverandi veikindaréttur
ríkisstarfsmanna byggir á
reglugerð. Finnst þér að fé-
lagið œtti að auka rétt félags-
manna með því að koma upp
styrktar- og sjúkrasjóði?
Svörun var 100%; já sögðu
77%, nei 15% og 8% svöruðu
veit ekki. Af þeim sem sögðu
já þá voru 97% meðmæltir því
að hluti af núverandi félags-
gjaldi rynni í þennan sjóð.
Einnig var spurt hvort félagar
teldu það koma til greina að
greiða sérstakt gjald í svona
sjóð og voru 61% meðmæltir
því. Meginhugmyndin um
hvaða hlutverki þessi sjóður
ætti að gegna var að aðstoða
fólk í langvarandi veikindum
þegar öðru sleppir, koma til
hjálpar vegna veikinda barna
og taka þátt í kostnaði við
sjúkraþjálfun og líkamsrækt.
Hefur þú notið endur-
menntunar/símenntunar í
starfi þínu ?
Játandi svöruðu 65% að-
spurðra. 44% þeirra töldu
hana hafa nýst sér mjög vel og
56% vel. Einnig var spurt
hvort það væri hlutverk SFR
eða vinnuveitandans að sjá um
endurmenntun og símenntun.
46% töldu það hlutverk
beggja, 31% að það væri
vinnustaðarins og 20% að
SFR ætti að sjá um það.
Skýrar óskir komu fram í
könnuninni um að fylgja síð-
ustu kjarasamningum og nýju
launakerfi fast eftir og standa
vel við bakið á starfsfólki á
einstökum vinnustöðum. For-
ysta SFR hefur tekið niður-
stöður viðhorfskönnunarinnar
til athugunar og mun skoða
þær tillögur og athugasemdir
sem þar koma fram.
Frá orlofsnefnd
Orlofsnefnd SFR mun í sum-
ar. eins og undanfarin tvö
sumur, leigja eitt raðhús á
Spáni til afnota fyrir félags-
menn sína. Húsið er í Las
Mimosas, sem liggur við
Torrevieja, á svæði sem
nefnist Mansana 14. Las
Mimosas er u.þ.b. 50 km til
suðurs frá flugvellinum í
Alicante, en þangað er flogið
vikulega yfir sumartímann.
Allur búnaður fylgir húsinu
og þar geta dvalist allt að sex
manns. Á svæðinu er einka-
sundlaug og almennings-
sundlaug með veitingasölu
o.fl. gegn vægu gjaldi.
Starfsmaður á vegum Fé-
lags húseigenda á Spáni er
Ágústa Pálsdóttir. Hún tekur
á móti orlofsgestum SFR á
flugvellinum, afhendir lykla
og aðstoðar fólk við að kom-
ast á staðinn. Einnig hefur
hún reglulegan viðtalstíma á
orlofssvæðinu og skipulegg-
ur skoðunarferðir eftir því
sem áhugi er fyrir.
Ferðaskrifstofan Sam-
vinnuferðir-Landsýn hefur
undanfarin ár gert samning
við Félag húseigenda á Spáni
um tilboðsverð í ferðir til
Alicante gegn framvísun sér-
staks afsláttarmiða. Tveir
slíkir miðar munu fylgja
hverri leigu hússins. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
Samvinnuferðum mun
leiguflugsáætlun þeirra
liggja fyrir í byrjun febrúar.
Þá kemur í ljós á hvaða viku-
degi verður flogið, en undan-
farin ár hefur það verið á
mánudögum.
Uthlutað mun verða fyrir
sjö tveggja vikna tímabil í
sumar, eða frá 31. maí til 6.
september. Leiga fyrir tvær
vikur er 21.000 kr.
Að þessu sinni, eða á
meðan marktæk reynsla er
að fást af orlofstilboðum á
Spáni, mun eingöngu félags-
aldur umsækjanda ráða við
úthlutun hússins. Þar af leið-
andi mun úthlutun ekki drag-
ast frá áunnum rétti félags-
manna til orlofshúsa innan-
lands.
Nánari upplýsingar veitir
Lilja á skrifstofu SFR, s.
562-9644.
Umsóknir skulu sendast
SFR, Grettisgötu 89, 105
Reykjavík, fyrir 5. febrúar
nk. Uthlutun mun liggja fyrir
þann 10. febrúar.
Sjá umsóknar-
blað á baksíðu
Fálagstíðindí-janúar 1999
7