Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Side 5
Jóhanna Þórdórsdóttir, Árni Stefán, Guðlaug Sigurðardóttir og Lilja Laxdal á vikulegum starsfmannafundi. Guðlaug
Hreinsdóttir og Jens Andrésson eru einnig á þessum föstu fundum sem og tilfallandi lausamenn í störfum fyrir SFR.
við höfum samfara þessari þróun
þurft að fjölga starfsfólki og fyrirsjá-
anlegt að svo verði áfram.
-Jú, það er mikið álag á starfs-
fólkinu. Við höfum tekið upp reglu-
lega starfsmannafundi, skipulags-
fundi á mánudagsmorgnum og
hálfsmánaðarlega eru lengri fundir
um verkefni skrifstofunnar. Hér er
um ákveðna þróun að ræða sem er
í nokkru samræmi við það sem gerst
hefur annars staðar á vinnumark-
aðinum.
Reynslan góð af nýja
launakerfinu
-Meðal stórra verkefna er gerð
kjarasamninga og síðan gerð stofn-
anasamninga eftir að nýja launa-
kerfið var tekið upp.
Reynslan er mjög góð. Hið stífa,
miðlæga kjarasamningakerfi svaraði
ekki lengur kröfum tímans. f stofn-
anasamningum er fyrst og fremst
tekið á launamyndun. Launakerfið
hefur verið í þróun frá því það var
tekið upp 1998 og fram til þessa
höfum við metið það þannig að
þetta hafi skilað sér vel til félags-
manna. Geta má þess sérstaklega
að inn í þessa stofnanasamninga
höfum við náð fleiri þáttum til að
meta til launahækkana. Persónuleg
reynsla, starfsmenntun og menntun
viðkomandi er betur metin en áður.
Launaþróun og launamyndun tekur
nú einnig meira mið af aðstæðum á
vinnustöðunum sjálfum.
Orlofsmál í endurnýjun
Við höfum verið að auka möguleika
félagsmanna í orlofshúsamálum og
bættum nýlega við tveimur glæsi-
legum sumarhúsum í Húsafelli. Þar
á ekki að skorta nein þægindi fyrir
félagsmenn. Þá höfum við boðið
upp á nýjungar eins og útleigu á
tjaldvögnum, höfum aukið við
möguleikann á orlofshúsum á
Spáni og verið með mjög vinsælt
afsláttarkerfi á Edduhótelunum.
-Orlofshúsin á hefðbundnu stöð-
unum eru sífellt til skoðunar. Hinar
stóru eignir okkar í Munaðarnesi í
gegnum BSRB hafa verið nokkuð til
umræðu og ýmsum hefur þótt
skorta á þægindi þar. Nú er hins
vegar ákveðin þróun í gangi varð-
andi það svæði og hugsanlega
verða möguleikar á heitu vatni þar
innan fárra missera. Engu að síður
fara margir í Munaðarnes á hverju
ári og telja má fullvíst að eftir breyt-
ingar þar verði eftirspurnin enn meiri.
Öflug og áhugasöm stjórn
Stjórnarfundir eru haldnir reglulega
á hálfsmánaðarfresti utan sumaror-
lofs. Auk þess heldur stjórnin 2-3
starfsdaga árlega þar sem tekin eru
fyrir stærri mál í víðara samhengi,
stefnumótun til framtíðar. Stjórnin
samanstendur af fólki sem hefur
mikinn áhuga og gott að vinna í
samstarfi við hana.
Utan hefðbundinna starfa við
kjarasamninga og eftirfylgni vegna
þeirra hefur stjórnin horft til lengri
tíma og velt fyrir sér starfsemi stétt-
arfélagsins okkar í breyttu þjóðfélagi
- meira í átt til framtíðar, þ.e. hvern-
ig félagið ætti helst að takast á við
framtíðina. Miklar vangaveltur hafa
átt sér stað um ímynd félagsins og
félagsmanna samfara þjóðfélagsþró-
uninni og breytingum á vinnumark-
aðinum. Unnið hefur verið að
ákveðinni sóknaráætlun, þar sem
kynningarstarfsemi fléttast inn í
áformin um að treysta ímyndina og
auka velvilja samfélagsins gagnvart
okkur. Allir gera sér grein fyrir að
hverju stéttarfélagi er nauðsynlegt
að breyta um aðferðir og taka þátt í
þjóðfélagsbreytingum, sagði Árni
Stefán Jónsson að lokum.
Félagstíðindi - mars 2002
5