Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Blaðsíða 6

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Blaðsíða 6
Frá undirritun kjarasamnings SFR og viðsemjenda 25. mars síðastliðinn. Með samanburði við kröfugerðina sem lagt var af stað með má draga þá ályktun að félags- menn megi vel vlð árangurinn una. Kj arasamningur Helstu atriði hans eru: Gildistími kjarasamningsins er frá 1. mars 2001 til 30. nóvember 2004 og hækkar launataflan í upphafi samningstímans um 6,9%, 3% 1 .jan. 2002, 3% 1. jan. 2003 og 3% 1. jan. 2004. Aðilar eru sammála um með vís- an til gr. 1.1.4 að grípa til sérstakra ráðstafana svo bæta megi kjör þeirra sem lakast eru settir og draga úr Kröfugerð SFR var: Auk fyrstu kröfunnar um að stefnt skuli að hækkun byrjunarlauna upp í 112 þúsund krónur var stefnt að því í kröfugerð SFR að: • Kaupmáttur verði aukinn og tryggður á samningstímanum. • Núverandi launatafla verði endurskoðuð með tilliti til uppbyggingar á töflunni og lengdar. • Sérstaklega verði tekið fyrir launamunur milli karla og kvenna og munur milli stofnana og einstakra starfsstétta. • Framlag til starfsnáms og símenntunar verði aukið. Starfsmönnum verði tryggður aðgangur að símenntun og símenntunin verði sjálf- sagður hluti af vinnunni. • Greitt verði 2% í séreignarlífeyrissjóð fyrir starfsmenn. • Gengið frá sératriðum sem taka til sértækra mála. • Sérstaklega verði endurskoðaðir kaflarnir um hvíldartíma og vakta- vinnu í kjarasamningnum. • Vinnutími verði styttur án skerðingar launa. Samningsaðilar undirrituðu kjarasamning fyrir félagsmenn SFR 25. mars SFR óhóflegri starfsmannaveltu. í því skyni verði stofnuð sérstök nefnd, skipuð þremur fulltrúum hvors aðila, og hefur hún til ráðstöfunar allt að 300 milljónir króna (á ársgrundvelli). Sérstaklega verði skoðað hvort launakerfið skili eðlilegri framþróun launa. Skulu aðilar leggja sameigin- legt mat á þróunina og gera tillögur um viðbrögð. Einnig er markmiðið með þessu að ná lægstu laununum 70% samþykktu samninginn Skrifað var undir kjarasamning milli Starfsmannafélags ríkis- stofnana og fjármálaráðherra 25. mars sl. Kjarasamningurinn var samþykktur í allsherjarat- kvæðagreiðslu og tilkynnt um úrslit 18. apríl. Á kjörskrá voru 4878 félagsmenn en 2484 greiddu atkvæði, eða 51% fé- lagsmanna. Þar af sögðu 70% já og 28% nei, auð og ógild at- kvæði voru 2%. 6 Félagstíðindi - mars 2002

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.