Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Qupperneq 8

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Qupperneq 8
Skfrsla sljórnar SFR 2001 Spjallað við sagnfræðing SFR Það verða allir að þekkja sögu sína Þorleifur Óskarsson sagnfræðingur að leggja lokahönd á sögu SFR Saga félagsins kemur væntanlega út á þessu ári, segir Þorleifur Ósk- arsson sagnfræðingur í stuttu spjalli við tíðindamann ársskýrslu. -Sögunni er skipt eftir tímabil- um, en þetta er samfelld saga og brotin upp með Ijósmyndum. Fé- lagið var stofnað í nóvember 1939 en því miður voru menn ekki mjög myndaglaðir í öndverðu. Það eru engar myndir til frá fyrstu starfsár- um félagsins. Fyrstu myndirnar af vettvangi félagsins eru frá sjöunda áratugnum. Þetta er tiltölulega slétt og felld saga og ekki mikið um innri átök og spennu. Segja má að það komi mikill kraftur í félagið á sjöunda áratugnum með vaxandi samningsrétti sem BSRB aflaði fyrir aðildarfélög sín. -Jú, það hafa orðið átök um forystu félagsins, til dæmis í lok sjötta áratugarins en það er ekki fyrr en með auknum baráttuþrótti Fyrsta verkfall opinberra starfsmanna i október árið 1977.Mótmælafundur var haldinn fyrir utan Háskóla íslands, þar sem samningaviðræður fóru fram. BSRB og samningsréttinum að líf og fjör færist í félagið okkar. -Já, það eru hæðir og lægðir í starfseminni. Á sumum tímabilum, eins og á sjötta áratugnum, var nánast um hnignun að ræða, stöðnun ríkti í félagafjölda og engu líkara en reynt væri að halda aftur af þróun félagsins og vaxtamögu- leikar þess hvergi nýttir. Þetta breyttist nokkrum árum síðar. -Fjöldaþróun félaga segir kannski dálítið til um aukinn þrótt þess og kraft á síðustu árum. Stofnendurnir voru ríflega eitt hundrað, tíu árum síðar voru þeir orðnir um 500, svo kom til eins konar stöðnunar en fjölgaði svo aftur um hríð vegna átaka um for- ystuna um 1960. Það er svo á sjö- unda áratugnum sem verulega fjölgar í félaginu. 1970 eru félag- arnir 1483. Á þessurm tíma var ekki ennþá skylda að vera í verka- 8 Félagstfðindi - mars 2002

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.