Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Síða 10
Aðalfundur SFR
árið 2001
62. aðalfundur SFR var haldinn í Fé-
lagamiðstöðinni að Grettisgötu 89
laugardaginn 31. mars 2001.
Jens Andrésson, formaður SFR,
setti fundinn. Fundarstjórar voru
kjörnir Valdimar Leó Friðriksson og
Svala Norðdahl, fundarritarar Val-
borg Einarsdóttir og Þorleifur Ósk-
arsson. Valdimar Leó tók við stjórn
fundarins, rakti dagskrána og bar
upp fundargerð síðasta aðalfundar
til samþykktar. Var hún samþykkt
samhljóða. Því næst var gengið til
auglýstrar dagskrár.
Skýrsla stjórnar -landnám
á nýjum slóöum
Formaður SFR, Jens Andrésson, flutti
skýrslu stjórnar.
Flann hóf mál sitt á því að fara
yfir nýgerðan kjarasamning, sagði
hann mikilvægan áfanga með
mörgum félagslegum ávinningum. í
tengslum við samningagerðina fjall-
aði hann um launamálaráð, vinnu
ráðsins við mótun kröfugerðar og
ábyrgð þess við gerð kjarasamninga.
Þá hófst almenn leiðsaga for-
manns yfir starfsemina á síðasta ári.
Hann gerði grein fyrir störfum trún-
aðarmannaráðs, skrifstofu, fræðslu-
nefndar, menningar- og skemmti-
nefndar og orlofsnefndar. f orlofs-
málum var formanninum ofarlega í
huga landnám félagsins í Húsafells-
skógi, en síðla árs var undirritaður
samningur um smíði á tveimur or-
lofshúsum þar. Þá minnti hann á að
með nýjum kjarasamningi væru í
augsýn aukin framlög til orlofssjóðs.
Jens rakti öfluga útgáfustarfsemi
félagsins og vaxandi upplýsingaflæði
til félagsmanna með heimasíðunni,
fór yfir helstu þætti í erlendu sam-
starfi og staldraði einnig við þing
BSRB síðastliðið haust þar sem gerð-
ar voru róttækar breytingar á stjórn-
kerfi bandalagsins. Sömuleiðis sagði
hann frá starfi þróunar- og símennt-
unarsjóðs sem var einn ávinningur
kjarasamningsins árið 1997.
Loks ræddi formaðurinn um
mikilvægi verkalýðshreyfingarinnar,
stöðu hennar og framtíð. Samstarfið
innan BSRB hefði að venju verið
gott og þá væri góð og vaxandi
samvinna milli SFR og Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar. Innan vé-
banda SFR og meðal forystu og fé-
lagsmanna Reykjavíkurfélagsins væri
mikill áhugi á að útvíkka þetta sam-
starf enn frekar; auka samráð og
samvinnu á næstu misserum.
Lagöir fram reikningar
félagsins- önnur fundarstörf
Birna Karlsdóttir gjaldkeri gerði
grein fyrir reikningum félagsins.
Hún fór yfir rekstrarreikning, heild-
artölur og einstaka liði, efnahags-
reikning og skýringar með ársreikn-
ingi. Þá gerði hún grein fyrir reikn-
ingum orlofssjóðs.
Hófust þá umræður um skýrslu
stjórnar, reikninga félagssjóðs og or-
lofssjóðs. Magnús Pálsson, Birna
Karlsdóttir og Árni Stefán Jónsson
tóku þátt í umræðunum.
Fundarstjóri bar upp til sam-
þykktar reikninga félagssjóðs og or-
lofssjóðs og voru þeir samþykktir
samhljóða.
Engar tillögur um þriðja fundar-
lið, lagabreytingar, lágu fyrir fundin-
um og var þegar gengið til næsta
máls á dagskrá, 4. liðs, sem var
kosning endurskoðenda félagsins.
Fundarstjóri bar upp tillögu trún-
aðarmannaráðs um Eyjólf Magnús-
son, Hollustuvernd ríkisins og Sigríði
Jakobsdóttur, Siglingastofnun. Þessu
næst óskaði hann eftir tillögum úr
sal en engin barst og var upp borin
tillaga samþykkt samhljóða. Þá bar
fundarstjóri upp tillögu um vara-
menn, Láru Hansdóttur, Trygginga-
stofnun ríkisins og Valborgu Einars-
dóttur, Landspítala. Tillagan var
samþykkt.
Ákvöröun um iðgjald og skipt-
ingu milli sjóða.
Fundarstjóri greindi frá því að engin
tillaga hefði borist um breytt iðgjald.
Það yrði því óbreytt. Þá bar hann
fram tillögu stjórnar um að skipting
milli sjóða yrði sú sama og verið
hefur, þ.e.a.s. að 0,87% renni í fé-
lagssjóð og 0,23% í verkfallssjóð.
Var tillagan samþykkt samhljóða.
10
Félagstfðindi - mars 2002