Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Qupperneq 12
||Skýrs 1 a stjórnar SFR 2 0 0 1
mannaráðs með breytingartillögunni
og var hún þannig samþykkt mótat-
kvæðalaust.
Önnur mál- Vaðnes
Jens Andrésson lagði fyrir fundinn
tillögu stjórnar þess efnis að
skammtímaskuld orlofssjóðs við fé-
lagssjóð verði bókfærð sem eignar-
hlutur félagssjóðs í orlofshúsum fé-
lagsins í Vaðnesi. Hann rakti forsögu
máls og ástæður tillögunnar. Til um-
ræddrar skuldar hefði verið stofnað
þegar framkvæmdir stóðu yfir í Vað-
nesi á níunda áratugnum og hefði
hún fylgt orlofssjóði síðan. Á þeim
tíma voru langt í frá glögg skil á
milli sjóðanna tveggja en með þess-
ari tillögu væri verið að þurrka end-
anlega út áður óljós mörk þeirra á
millum. Var orðið gefið laust og tók
Pétur R. Elísson til máls og lýsti sig
andsnúinn tillögunni. Pétur velti því
einnig fyrir sér hver hagur félags-
manna væri af rekstri orlofshúsa.
Hann setti upp dæmi um félags-
mann sem fengi úthlutað orlofshúsi
á fimm ára fresti en á þeim tíma
greiddi viðkomandi til félagsins á
bilinu 20-30 þúsund kr. vegna þess-
arar vikudvalar í húsinu.
Árni Stefán Jónsson taldi ósann-
gjarnt að varpa ábyrgð á umræddri
skuld yfir á orlofssjóð og fór
nokkrum orðum um útreikninga
Péturs í tengslum við hag launafólks
af félagslegum lausnum í orlofsmál-
um. Um framlag í orlofssjóð væri
samið við atvinnurekendur en það
væri ekki tekið úr vasa einstaklings-
ins. Hin félagslega leið í orlofsmál-
um væri að sjálfsögðu vænlegust og
hagfelldust öllu launafólki - áratuga
reynsla segði sína sögu þar um.
Fundarstjóri bar upp tillögu stjórnar.
Var hún samþykkt með þorra at-
kvæða, einn greiddi atkvæði á móti.
Viðurkenning og þakkir
Jens Andrésson formaður sté í
pontu og átti lokaorðin á fundinum.
Hann gat þess að á 60 ára afmæli
félagsins hefði verið tekin upp sú
nýbreytni að veita einum úr hópi
trúnaðarmanna sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir framúrskarandi störf í
þágu félagsins. Ætlunin væri að
halda þessu merki á lofti og nú
hefði orðið fyrir valinu Anna Atla-
dóttir. Jens afhenti Önnu innramm-
að skjal af þessu tilefni, sem og gjöf
frá félaginu og færði henni þakkir
fyrir ötult og óeigingjarnt starf í
þágu samtakanna. Anna þakkaði
fyrir sig en lofaði um leið að draga
sig ekki í hlé - eins og oft væri talið
viðeigandi þegar fólk fengi viður-
kenningar af þessu tagi. Að þessari
athöfn lokinni minnti fundarstjóri
stjórn SFR á þær ábendingar sem
fram hefðu komið á fundinum - að
reikninga félagsins mætti kunngera
með betri fyrirvara fyrir aðalfundi í
framtíðinni og eins ályktanir.
Að lokum bar Jens Andrésson
fram þakkir félagsins til Jónasar
Hólmsteinssonar sem verið hefur
endurskoðandi félagsins svo lengi
sem elstu menn muna en hefur nú
dregið sig í hlé. Þá þakkaði hann
starfsliði fundarins vel unnin störf,
félagsmönnum fyrir góðan fund og
Áslaugu Haugland ráðskonu fyrir
væntanlegar veitingar sem biðu
fundarmanna.
Lífeyrisþegadeild SFR
er öflug deild knárra
sveina og meyja sem
heldur árlega uppi miklu
félagslífi. Farið er í
sumarferð og á veturna
eru haldin þorrablót,
jólafundur, sviðaveisla
og skemmtifundur.
Fréttabréf deildarinnar,
Lífeyrisþeginn kom út
í sex tölublöðum á árinu.
Á starfsárinu sóttu þó
nokkrir félagar námskeið
og fengu til þess styrk
frá deildinni.
12
Félagstfðindi - mars 2002