Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Síða 16

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Síða 16
Margir SFR-félagar hafa notaö tækifærið og hafið nám í vefskólanum simennt.is. Hér er Matthildur Sif Jónsdóttir að læra inn á leyndar- dóma tölvumálsins. Fræðslustarf á vegum SFR Starfsmannafélag ríkisstofnana hef- ur unnið markvisst að símenntunar- málum félagsmanna þetta starfsár líkt og undanfarin ár. Boðið hefur verið upp á almenn námskeið og fyrirlestra fyrir félagsmenn sem auðga andann ásamt því að ýmsar nýjungar komu fram sem styrkja þá í starfi. Þar má nefna Rekspöl II, vef- skóla SFR og aðgang félagsmanna að tölvufræðslu BSRB hjá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum. Einnig hafa verið í boði ýmis námskeið á stofn- unum sjálfum sem Þróunar- og sí- menntunarsjóður hefur styrkt. Starf fræðslunefndar Meginstarf fræðslunefndar á starfs- árinu var að ákveða dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra sem gengið hafa undir nafninu „Það er gott að vital". Um er að ræða samstarfs- verkefni SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (St.Rv.). Góð að- sókn hefur verið að fræðslunni og metnaður verið lagður í að bjóða upp á eitthvað nýtt efni á hverri önn ásamt því að endurtaka þau námskeið sem hafa verið vel sótt. Hluti af dagskránni er fræðsla til fé- lagsmanna um starfs- og námsráð- gjöf en eins og margir vita getur oft verið erfitt að finna það sem hentar hverjum og einum í því fjölbreytta framboði af fræðslu sem á boðstólum er. Sú nýbreytni var tekin upp að bjóða upp á námskeið undir heitinu „Það er gott að vita!" á Akureyri í samvinnu við Starfsmannafélag Ak- ureyrarbæjar. Aðsókn var mjög góð. Einnig bauðst félagsmönnum á Suð- urlandi að sækja námkeið um sið- fræði vinnustaða á Selfossi. Fræðslunefndin vann líka að hugmyndum fyrir fræðslumorgna trúnaðarmanna. Vefskóli SFR Nýmæli í símenntun opinberra starfsmanna varð að veruleika fyrir félagsmenn SFR þann 10. septem- ber sl. þegar vefskóli SFR var form- iega opnaður. Um er ræða víðtæka fræðslumöguleika fyrir félagsmenn á veraldarvefnum eða netinu, eins og sumir kalla það. Þannig hafa SFR-ingar átt þess kost að sækja margvísleg námskeið án endurgjalds í vefskólanum. Nú hafa rúmlega 400 félagsmenn hafið nám i skólan- um. Rekspölur II Rekspeli II var hleypt af stokkunum á haustönn 2001 og var fljótt full- bókað á öll námskeiðin sex sem í boði voru. í námsmati yfir nám- skeiðið á haustönn kemur fram mik- il og almenn ánægja. Þá telur fólk einnig að námskeiðið nýtist sér í starfi. Ákveðið var að halda 9 nám- skeið af Rekspeli II á vorönn 2002. Fimm þeirra verða í Reykjavík og Munaðarnesi en góð reynsla var af þeirri samsetningu á haustönn. Þó komu ábendingar um að sumir fé- lagsmenn ættu erfitt með að kom- 16 Félagstfðindi - mars 2002

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.