Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Blaðsíða 17

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2002, Blaðsíða 17
Mennt er máttur. Fjöldi manna bókaði sig á námskeiðið Rekspölur II. ast í Munaðarnes af fjölskyldu- ástæðum og því verður eitt nám- skeið haldið eingöngu í Reykjavík. Þá verða tvö námskeið haldin á Akureyri og eitt á Selfossi. Vika símenntunar Þann 8. september sl. tók SFR þátt í fræðsluhátíð í Kringlunni í tilefni af viku símenntunar. Fulltrúar úr stjórn SFR og starfsmenn fræddu gesti og gangandi um fræðslumöguleika SFR-félaga. Einnig voru heimsóknir á vinnustaði þar sem kynnt var fram- boð SFR í fræðslumálum. Fræðslusetrið Starfsmennt SFR, St.Rv., Kjarni og Samflotið stofnuðu á haustdögum Fræðslu- setrið starfsmennt í samvinnu við fjármálaráðuneytið sbr. bókun 1 í kjarasamningi SFR og fjármálaráð- herra sem skrifað var undir 25. mars 2001. Um er að ræða samstarf sem snýr að þeim ríkisstarfsmönnum sem eru félagsmenn fyrrgreindra félaga. Fllutverk fræðslusetursins er að vera hugmyndabanki/umsjónarað- ili/framkvæmdaaðili og að meta þörf fyrir fræðslu hjá einstökum stofnun- um eða stofnanahópum og hafa frumkvæði að því að búa til nám- skeið sem svara þeirri þörf. Stjórn Fræðslusetursins starfsmennt hefur ráðið Þórarin Eyfjörð sem fram- kvæmdastjóra þess. Starfsnám stuðnings- og meðferðarfulltrúa Tvö grunnnámskeið voru haldin á haustönn, eitt í Reykjavík og annað á Selfossi. Á vorönn voru síðan hald- in framhaldsnámskeið í Reykjavík og á Selfossi. Á starfsárinu hefur verið unnið að endurskoðun á námsskrá fyrir starfsnám stuðningsfulltrúa. Að endurskoðuninni vinna Erna Einars- dóttir, Styrktarfélagi vangefinna, Þór Þórarinsson, Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Reykjanesi og Sal- ome Þórisdóttir, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Áætlað er að endurskoðuninni Ijúki í vor. Tölvufræðsla BSRB Tölvulæsisátak BSRB sem hófst sl. haust fékk frábærar viðtökur hjá fé- lagsmönnum SFR. Fræðslan er í samvinnu við Nýja tölvu- og við- skiptaskólann (NTV) í Kópavogi, Flafnarfirði og Selfossi ásamt því að samvinna er við ýmsa tölvuskóla á landsbyggðinni. Samningurinn sem gerður var við þessa aðila gerir ráð fyrir að á skólaárinu 2001 til 2002 verði haldin 100 námskeið og er áætlað að um 1500 manns úr að- ildarfélögum BSRB sæki fræðsluna. Þau verja réttinn. SFR-félagar á trúnaðarmannanámskeiði í nóvember. Félagstiðindi - mars 2002 17

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.