Fréttablaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Bólusetning- arklúður stjórnvalda, sem er einkum á ábyrgð heilbrigðis- ráðherra, eru afglöp af áður óþekktri stærðar- gráðu. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ríkisstjórnin er í bobba með sjálfsákvörðunar-rétt sveitarfélaga. Það stefnir til dæmis í að stjórnin verði gerð afturreka með frumvarp um lögbundna sameiningu sveitarfélaga sem og frumvarp um hálendisþjóðgarð en bæði málin hafa verið gagnrýnd fyrir að ganga of nærri rétti sveitar- félaga til að ráða eigin málum. Í hópi þeirra sem spyrna hvað fastast við fótum til varnar þessum rétti sveitarfélaga eru stjórnarþingmenn, jafnvel ráð- herrar. Nú liggur hins vegar fyrir Alþingi mál frá sam- gönguráðherra sem hlotið hefur brautargengi í þingflokkum stjórnarflokkanna, mótmæla- og fyrir- varalaust að því er virðist. Í því máli felst heimild til samgönguráðherra til að setja skipulagsreglur fyrir f lugvelli sem gengju framar skipulagi sveitarfélaga. Reykjavík yrði þannig einfaldlega svipt skipulags- valdi á Reykjavíkurflugvelli. Í því felst grundvallar- breyting sem er þvert á núgildandi lög og um leið þvert á samkomulag ríkis og borgar um framtíðar- skipulag innanlandsflugsins. Skipulagsvald sveitarfélaga er vitaskuld ekki án takmarkana, en með þessu er verið að setja það for- dæmi að almennar skipulagsreglur geti vikið lögum til hliðar. Hér er því miður ekki um eina áhlaup ríkisstjórnarinnar á sjálfsákvörðunarrétt Reykja- víkurborgar að ræða, en þetta er það alvarlegasta. Í ríkisstjórn sitja nú fimm þingmenn Reykjavíkur þó þess sjáist sannarlega ekki glögg merki. Einn ráð- herra í viðbót hefur lýst yfir framboði í Reykjavík í næstu kosningum. Að auki eiga Reykvíkingar fimm aðra þingmenn í stjórnarflokkunum þremur. Kannski gilda önnur lögmál um Reykjavík hjá ríkisstjórnarflokkunum þremur. Allavega virðist umhyggjan fyrir sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga ekki ná til höfuðborgarinnar. Tengist það kannski því að þar stýra aðrir f lokkar í umboði Reykvíkinga? Getur verið að VG sé tilbúið að fórna hagsmunum borgarbúa fyrir loforð um áframhaldandi setu í rík- isstjórn eftir kosningar? Eru hagsmunir Reykvíkinga bara skiptimynt hjá þessum þremur flokkum? Skiptimyntin Reykjavík Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Við- reisnar í Reykja- víkurkjördæmi suður Þorbjörg Sig- ríður Gunn- laugsdóttir þingmaður Við- reisnar í Reykja- víkurkjördæmi norður Óskhyggjuvitið … Óvísindalegar netkosningar á vef Útvarps Sögu eru líklega ekki mjög áreiðanlegur mæli- kvarði á geðsveif lur í samfélag- inu því þá væri Guðmundur Franklín Jónsson forseti Íslands og Miðf lokkurinn og Flokkur fólksins burðarásar í ríkis- stjórn. Þetta er engu að síður áhugaverður þjóðarbrotspúls sem sýnir meðal annars fram á að 67,42% hlustenda eru svo þreytt á jarðskjálftunum að þau eru til í eldgos á Reykjanesi. Þótt ólíklegt þyki að gosi fylgi miklar hamfarir má ætla að útsendingar stöðvarinnar náist annað hvort illa í Grindavík og nágrenni eða það 15,91% hlust- enda sem svarar spurningunni neitandi búi á þeim slóðum. … er í sprauturnar látið Viss tortryggni í garð bólusetn- inga hefur ítrekað komið fram hjá innhringjendum í símatíma Útvarps Sögu. Óttinn við hið óþekkta er þó ekki meiri en svo að þegar spurt var í netkönnun hvaða bóluefni fólk treysti best völdu f lestir, eða 40,19%, hið rússneska Spútnik V sem er bruggað í lokuðu samfélagi þaðan sem yfirvöld hafa til- hneigingu til að skammta upp- lýsingar. Minna kemur á óvart að næstf lestir, 24,61%, vilja ekki bólusetningu en 4,36% treysta sér í AstraZeneca-sprautuna sem er í gjörgæslu þessa dagana. toti@frettabladid.is Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is Þín útivist - þín ánægja HELLA Sundpoki Kr. 2.590.- STEINAR Coolmax göngusokkar Kr. 1.490.- GOLA Barna regnjakki Kr. 5.990.- GOLA Barna regnbuxur Kr. 4.990.- FJÖRÐUR Hanskar með gripi Kr. 2.990.- DÖGG Regnkápa Kr. 11.990.- BRIM Regnkápa Kr. 8.990.- VALUR hettupeysa Kr. 9.990.- ARIEL Angora ullarsokkar Kr. 1.298.- SALEWA MS Dropline GTX Kr. 29.990.- VIÐAR Ullarhúfa Kr. 3.990.- Eitthvað mikið hefur farið úrskeiðis. Ísland er eitt þróaðasta ríki í heimi, efnað land með fáa íbúa og öfluga innviði, þar sem vilji til bólusetningar er ríkur. Þjóðin ætti, við venjulegar kringumstæður, að hafa alla burði til þess að bera sig saman við vestræn ríki sem standa utan Evrópusambandsins, á borð við Bretland og Bandaríkin. Í Bretlandi stendur öllum sem komnir eru yfir fimmtugt nú til boða bólusetning og í Bandaríkjunum stendur til að nægt bóluefni verði til fyrir alla í lok maí, auk þess sem bæði ríkin hafa fest eins konar frelsisdaga í dagatalið í vor og sumar, þegar öllum hömlum verður aflétt. Á meðan höfum við horft upp á tafir og meiriháttar klúður í bólusetningaráætlun stjórnvalda, sem var af óskiljanlegum ástæðum útvistað til ESB. Enn er ekki einu sinni búið að bólusetja alla eldri borgara hér á landi og fyrirætlanir um bólusetningar hafa nú tafist um heilan mánuð, og ráðamenn yppa bara öxlum við þeim tíðindum. „Þetta er graut fúlt, en svona er þetta og svona er þessi veira,“ voru viðbrögð forsætisráðherra við því þegar fréttir bárust um að AztraZeneca-bólu- efnið, stór liður í bóluefnisöflun landsins, hefði tíma- bundið verið sett til hliðar. Fáir leggja traust sitt á að áætlun stjórnvalda um að búið verði að bólusetja alla Íslendinga yfir 16 ára aldri í lok júlí muni ganga eftir. Hver dagur sem þjóðin er óbólusett er óheyrilega dýr. Ferðaþjónustan er mikilvægari fyrir okkur en flestar nágrannaþjóðir, ríkissjóður tapar milljörðum ofan á milljarða og safnar skuldum á hverjum degi – en hreinar skuldir ríkisins hafa aukist um nærri 300 milljarða á síðustu tólf mánuðum. Þá er tæpast hægt að setja verðmiða á tjónið sem skorður á athafnafrelsi, ferðafrelsi og almennum mannréttindum kosta; glötuð tækifæri, skortur á annarri heilbrigðisþjónustu, versn- andi andleg heilsa og einfaldlega glötuð lífsgæði, því líf sem lifað er undir þrúgandi boðum og bönnum til lengdar getur vart talist líf. Því miður hefur faraldurinn hins vegar festi í sessi þann hugsunarhátt hjá stórum hópi að ávallt sé réttlætanlegt að hefta frelsi fólks ef einhver hætta kann að vera á ferðinni. Með öflugri forystu hefði mátt bólusetja þjóðina mun fyrr, opna landið og afnema um leið þær skerð- ingar á daglegu lífi sem við höfum búið við. Baráttan um bóluefnin er enginn leikur heldur alvöru slagur. Við sjáum það af því kalda stríði sem nú ríkir á milli Bret- lands og ESB, þar sem útflutningsbanni er svarað með efasemdum um gagnsemi breska bóluefnisins. Stjórn- völd hefðu átt að berjast fyrir því með kjafti og klóm að tryggja nægt bóluefni fyrir löngu, en af einhverjum ástæðum virðist þeim ráðherrum sem fóru með málið hafa skort þar vilja eða getu, eða hvoru tveggja. Ótrú- legt er að ríkisstjórn, þar sem flokkarnir áttu fátt sam- eiginlegt annað en andstöðu við ESB, skyldi ákveða að hengja sig alfarið á misheppnaða bólusetningaráætlun sambandsins. Hvernig í ósköpunum var komist að því að það væri þjóðinni fyrir bestu, og á sama tíma að ekkert Plan B var fyrir hendi? Bólusetningarklúður stjórnvalda, sem er einkum á ábyrgð heilbrigðisráð- herra, eru afglöp af áður óþekktri stærðargráðu. Klúður  1 9 . M A R S 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.