Fréttablaðið - 19.03.2021, Blaðsíða 12
KÖRFUBOLTI Dagný Lísa Davíðs-
dóttir verður á mánudaginn önnur
íslenska konan og fjórði Íslend-
ingurinn frá upphafi eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst til að taka
þátt í úrslitakeppni bandaríska
háskólakörfuboltans, marsfárinu
(e. March Madness). Lið Dagnýjar,
Wyoming Cowgirls, tekur í ár þátt
í marsfárinu í annað sinn í sögunni
en þess bíður einvígi gegn UCLA
sem er að taka þátt fimmta árið í
röð. Líkurnar eru UCLA hliðhollar
en Dagný Lísa og stöllur koma inn í
mótið á mikilli siglingu eftir að hafa
unnið sex leiki í röð.
Þessi 24 ára gamli Hvergerðingur
hefur verið í námi í Bandaríkjunum
í tæp sjö ár og leikið körfubolta
samhliða náminu.
„Það er þvílík spenna komin í
hópinn enda er þetta mjög spenn-
andi tækifæri. Þegar ég fór fyrst út,
fyrir sjö árum síðan, ætlaði ég mér
að komast í háskólakörfuboltann
og í marsfárið. Núna tókst okkur að
vinna titil og komin í marsfárið sem
er ákveðinn léttir á lokaárinu,“ segir
Dagný létt í lund og heldur áfram:
„Ég hef ekki unnið titil áður og í
raun ekki fengið mörg tækifæri til
þess áður. Kannski er það ákveðin
heppni að fá að enda ferilinn minn
í Bandaríkjunum á þennan hátt.“
Undanfarnar vikur hefur verið
leikið þétt og hver leikur skipt máli
í baráttunni um að komast í mars-
fárið. Um leið vann Wyoming sinn
fyrsta titil í Mountain West-deild-
inni.
„Skólinn hefur oft verið nálægt
því að komast áfram en bara einu
sinni komist í marsfárið. Líkurnar
voru okkur ekkert endilega í hag
enda þurftum við að spila fjóra leiki
á stuttum tíma þegar önnur lið léku
þrjá,“ segir Hvergerðingurinn og
viðurkennir að því hafi ekki gefist
mikill tími til að fagna sigrunum.
„Í úrslitakeppninni í deildinni
okkar var lítið um fagnaðarlæti
eftir sigurleikina. Við fórum bara
beint í að skoða næsta andstæðing
og undirbúa næsta leik. Það var í
raun ekki fyrr en eftir úrslitaleikinn
sem við gátum leyft okkur að fagna
aðeins. Þá vissum við að við hefðum
smá tíma en fagnaðarlætin voru
auðvitað takmörkuð af sóttvarna-
reglum. Ég og ein önnur í liðinu
fengum kórónaveiruna fyrr í vetur
þannig það eru mjög strangar reglur
en samt eru smit að koma upp hjá
öðrum liðum,“ segir Dagný.
Eftir að hafa leikið fyrir Niagara
University fyrstu árin í Bandaríkj-
unum skipti Dagný yfir til Wyom-
ing í fyrra. Meiðsli á öðru ári í Niag-
ara gerðu henni kleift að fá auka ár í
bandaríska háskólakörfuboltanum
(e. Redshirt) og er hún því að klára
aðra meistaragráðu sína í Wyoming.
„Ég byrjaði í Niagara þar sem ég
var í fjögur ár en vegna meiðslanna
stóð til boða að leika eitt ár í viðbót.
Ég fann að ég var ekki búin að fá nóg
út úr þessu og vildi halda áfram og
skellti mér því í annað masters-
nám. Þetta er mun stærri skóli og
ég er ofboðslega ánægð með að hafa
tekið þessa ákvörðun.“
Þetta er aðeins í annað skiptið
sem kvennalið Wyoming kemst í
marsfárið og fyrsti meistaratitillinn
sem liðið vinnur.
„Það hefur verið frábært að
taka þátt í því að vinna fyrsta titil
kvennaliðsins og brjóta ísinn þar.
Um leið er gott að vita hvað þetta
gerir fyrir stuðningsmenn okkar
sem eru meðal þeirra bestu á lands-
vísu og elska liðið. Skólinn er ekki í
stórborg og það er ekkert atvinnu-
mannalið hér þannig að þau leggja
allt í háskólaliðin og styðja vel við
bakið á liðinu. Fyrir vikið verður
íþróttafólkið hér að hálfgerðum
stjörnum, innan sem utan vallar.“
Fyrir fram má búast við sigri
UCLA en í marsfárinu skiptir styrk-
leikaröðunin yfirleitt engu máli.
Fyrir vikið er keppnin einn af vin-
sælustu íþróttaviðburðum hvers árs
vestanhafs þar sem minni spámenn
slá oft í gegn á móti liðum sem eru
talin sterkari á blaði.
„Fegurðin er að það getur allt
gerst í þessum leikjum. Marsfárið
eins og það leggur sig byrjar í raun
í úrslitakeppni deildanna og endar
á því að lið verður meistari á lands-
vísu. Í úrslitakeppninni í okkar
deild vorum við í sjöunda sæti á
styrkleikalistanum eftir að hafa
misst marga leiki úr höndum okkar
á tímabilinu en við fórum alla leið.
Fyrir vikið vitum við að við getum
unnið hvaða lið sem er og kunnum
að mörgu leyti vel við okkur sem
litla liðið á pappírnum.“
Dagný fór út aðeins sautján ára
gömul og segist koma aftur til
Íslands sem mun heilsteyptari leik-
maður.
„Ég hef tekið gríðarlegum fram-
förum á þessum árum sem var ein
af ástæðunum fyrir því að ég fór út
á sínum tíma. Samkeppnin er meiri
hér og ég hef unnið með frábærum
liðsfélögum og þjálfurum, samt
erum við ekki meðal tuttugu bestu
liða Bandaríkjanna. Samkeppnin
er slík að það drífur mann áfram að
taka bætingum. Ég kem því heim
sem mun heilsteyptari leikmaður,“
segir Dagný sem á von á því að leika
á Íslandi á næsta tímabili.
kristinnpall@frettabladid.is
Kórónar frábær ár í Bandaríkjunum
Dagný Lísa Davíðsdóttir verður fjórði Íslendingurinn sem tekur þátt í marsfárinu í körfubolta með liði sínu á næstu dögum. Dagný
Lísa hélt sautján ára út í nám í Bandaríkjunum og var hluti af meistaraliði Wyoming á lokatímabili sínu í háskólakörfuboltanum.
Dagný Lísa sem er á sjöunda tímabili sínu í Bandaríkjunum kveðst ánægð með að hafa skipt yfir til Wyoming í fyrra og tekið aukaár vestanhafs. MYND/AÐSEND
FÓTBOLTI Hugbúnaðarfyrirtækið
OZ fékk á dögunum verðlaun í
samkeppni sem Fast Company
stóð fyrir en þar var OZ valið eitt
af tíu frumlegustu fyrirtækjunum
í íþróttaheiminum. OZ hefur verið
með ýmis verkefni á sínum snærum
sem snúa að íþróttamarkaðnum,
annars vegar er það þróun á hug-
búnaði fyrir VAR-myndbandsdóm-
gæslu og hins vegar app sem hefur
það að markmiði að færa þá sem
horfa á íþróttaviðburði heima í sófa
nær þeirri tilfinningu að þeir séu á
vellinum.
Knattspyrnudómarinn Vilhjálm-
ur Alvar Þórarinsson sem hefur
unnið að VAR-verkefninu fyrir OZ
segir hugbúnað fyrirtækisins enn
vera í þróun og markmiðið sé að
gera VAR eins aðgengilegt og hægt
er fyrir knattspyrnusambönd.
Þannig sé hugmyndin að þau geti
hafið innleiðingu án þess að fara
í stórar fjárfestingar á innviðum.
Þannig geti dómarar unnið saman
og líkt eftir því að vera í VAR-her-
bergi heiman frá sér, notandi búnað
sem er til á f lestum heimilum.
„Við erum að miða við að dóm-
arar og þeir sem noti VAR geti æft
sig í því að nota myndbandsdóm-
gæslu á stafrænan hátt þannig að
þeir geti gert það hvar sem er og
hvenær sem er,“ segir Vilhjálmur
Alvar um vöruna.
„Með okkar búnaði geta knatt-
spyrnusambönd hafið innleiðingu
á VAR án þess að fara út í mikinn
kostnað. Með þessu geta dómarar
æft sig í því að nota myndbands-
dómgæslu í einhvern tíma áður en
það er notað. Þannig kemst reynsla
á það að nota kerfið sem er líklegt til
þess að fækka mistökum og slípa af
vankanta þegar kerfið er svo tekið í
notkun,“ segir dómarinn.
Lönd sem hafa verið að vinna
með VAR í talsverðan tíma hafa sýnt
kerfinu áhuga. FIFA hefur fengið OZ
til þess að vinna fyrir sig að ákveðnu
verkefni þar sem notaðar eru vörur
sem fyrirtækið hefur verið að þróa
og snýr að myndbandsdómgæslu.
Þá segir Vilhjálmur Alvar að við-
ræður standi yfir við knattspyrnu-
sambönd um mögulegt samstarf á
næstu misserum. – hó
OZ í viðræðum um samstarf með VAR
Dagný Lísa er fjórði
Íslendingurinn sem kemst í
marsfárið í bandaríska
háskólakörfuboltanum á
eftir Helenu Sverrisdóttur
(2009), Frank Aaroni
Booker (2015) og Jóni Axeli
Guðmundssyni (2018).
Damir Skomina var fyrstur til að
nota VAR á Íslandi á síðasta ári.
1 9 . M A R S 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT