Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 20
Svanurinn er opinbert um-
hverfismerki Norðurlandanna
sem komið var á fót af Norrænu
ráðherranefndinni árið 1989.
Meginmarkmið Svansins er að
draga úr umhverfisáhrifum af
vörum eða þjónustu og auðvelda
neytendum að velja umhverfis-
vænni kosti.
Á Íslandi er Umhverfisstofnun
umsjónaraðili Svansvottunarinn-
ar og vinnur náið með skrifstofum
Svansins á öllum Norðurlönd-
unum. Svansmerkið er lífsferils-
merki sem þýðir að í allri við-
miðaþróun er leitast við að hanna
kröfur sem taka á öllum lífsferli
vörunnar eða þjónustunnar sem
um ræðir.
Kröfur Svansins tryggja að vottuð
vara er betri fyrir umhverfið og
heilsuna, með því að:
• skoða allan lífsferilinn og skil-
greina helstu umhverfisþætti
• setja strangar kröfur um helstu
umhverfisþætti sem skilgreind-
ir hafa verið svo sem; efnainni-
hald og notkun skaðlegra efna,
f lokkun og lágmörkun úrgangs,
orku- og vatnsnotkun, og gæði
og endingu
• passa að þekkt hormónarask-
andi og ofnæmis- eða krabba-
meinsvaldandi efni séu ekki
notuð
• herða kröfurnar reglulega
þannig að Svansvottaðar vörur
og þjónusta séu í stöðugri þróun
Til þess að vara eða þjónusta
geti hlotið Svansvottun verður
norræni Svanurinn að hafa mótað
sértækar kröfur fyrir viðkomandi
vöru- eða þjónustuflokk. Í dag
eru viðmiðaflokkarnir 59 talsins.
Svanurinn er umhverfismerki
af Týpu 1 samkvæmt ISO 14024
umhverfisvottunarstaðlinum og
er einn af stofnmeðlimum Global
Ecolabelling Network.
Í dag þekkja tæplega 90%
Íslendinga Svaninn samkvæmt
nýlegri neytendakönnun. Þekk-
ingin hefur aukist mjög hratt
síðustu ár og er nú á pari við hin
Norðurlöndin.
Svansvottun er fyrst og fremst
skýr og metnaðarfull leið fyrir
fyrirtæki að draga úr neikvæðum
áhrifum á umhverfið með kerfis-
bundnum hætti.
Svanurinn gerir ríkar umhverf-
iskröfur til þeirra sem sækjast
eftir Svansvottun og þeim kröfum
þarf að viðhalda til að missa ekki
vottunina.
Svanurinn er líka sterkt verk-
færi til þess að skapa sér sérstöðu
á samkeppnismarkaði. Sú ímynd-
arsköpun sem fylgir Svansvottun
getur laðað að sér ekki einungis
nýjan kúnnahóp heldur einnig
starfsfólk sem hefur metnað fyrir
umhverfismálum.
Svanurinn getur því verið
leið til þess að auka skilning á
umhverfisþáttum rekstursins
sem hefur yfirleitt í för með sér
rekstrarsparnað þar sem innkaup
eru einfölduð og gerð skilvirkari.
Opinbert umhverfismerki Norðurlandanna
Í
Svansvott-
un er verið að
skoða allan lífs-
feril vöru eða
þjónustu
VELDU SVANSVOTTAÐ
FYRIR UMHVERFIÐ
OG HEILSUNAsvanurinn.is
4 kynningarblað 30. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURSVANSVOTTUN