Nýr dagur - 20.08.1933, Síða 2

Nýr dagur - 20.08.1933, Síða 2
vakningu, meðal millistéttanna, smáútvegsmanna, handiðnaðar- manna o. fl., sem á sér stað og hin efnahagslega þróun gefur á- stæður til. — Til þess er at- kvæðatap Sjálfstæðisflokksins og Tangaherrans og atkvæða-aukn- ing kommúnistaflokksins hvort- tveggja of lítið. Stóratvinnurekandinn og fas- istasprautan Jóhann Þ. Jósefs- son hefir að þessu sinni krækt sér í atkvæði, jafnvel svo hundr- uðum skiftir, þeirra alþýðumanna úr millistétt, sem hafa það orðið á tilfinningunni hvemig hvert þing eftir annað, með aðstoð Jó- hanns, sem annara auðvaldsfull- trúa í þinginu, gengur í skrokk á þeim með skattaálögum o. þ. u. 1., reitir hverja spjörina á fætur annari utan af þeim, nákvæm- lega eins og Tanginn og bankinn, en hafa ekki enn sannfærst um hið þjóðfélagslega eðli þessa eymdarástands — að einungis með sameiginlegri, bróðurlegri baráttu við hlið verkalýðsins gegn yfirstéttinni og Jóhanni, geta þeir sprengt fjötrana og náð fullu frelsi, jafnt andlegu sem efna- legu. En hér komu fram veilur kom- múnistaflokksdeildarinnar í Vest- mannaeyjum. Kosningabaráttan, sem háð var réttilega fyrst og fremst í nafni verkalýðsins, sem er hin sögulega forustustétl allra annara undirstétta, — var hvað snerti millistéttina, smáútvegs- menn og handiðnaðarmenn, raeira neikvæð þjóðfélagsádeila og af- hjúpanir, en pólitískt fræðslu- eða skipulagsbundið samfylking- arstarf og barátta meðal smá- framleiðenda fyrir dægurkröfum þeirra. Þar með fær hin að- þrengda smá-framleiðendastétt ekki fest augu á neinum leiðum út úr hinum efnalegu ógöngum, og ekki heldur á forustuliði sínu, kommúnistaflokknum, og grípur því til þess óyndisúrræðis að láta atkvæði sitt falla í hlut stéttar- fjanda síns og verður því í svip óafvitandi fasismanum að bráð. Kommúnistaflokkurinn skoðar kosningar sem þessar, sem einn lið í baráttu undir- stéttaima fyrir kollvörpun auð- valdsþjóðfélagsins og sköpun sósíalismans. Þess vegna dregur hann af þeim lærdóma, sem eiga að verða sameign hans og allrar alþýðu í Vestmannaeyjum, til þess að undirstéttirnar geti á grundvelli þeirra, ásamt kom- múnistaflokknum, gengið sterkari og sigurvísari út í næstu baráttu hver sem hún verður. 1. Kommúnistaflokkurinn verð- ur, sem fyrst, að gera að sam- eign sinni með fullkomnari upp- byggingu og fullkomnari starfs- aðferðum, kenningar Lenins um baráttu undirstéttanna fyrir frelsi sínu á núverandi stigi auð- valdsins. 2. Verkalýðurinn verður nú með enn meiri krafti og alúð en nokkru sinni fyr, að fylkja sér, án tillits til stj ómmálaskoðana, um Verkamannafélagið Drífandi, Sjómannafélag Vestm.eyja, A. S. V. og Sovétvinafélagið — til bar- áttu gegn hverskyns árásum á lífskjör alþýðunnar, gegn ríkis- lögreglu, fasisma og klofnings- starfsemi krataforingjanna. 3. Kommúnistaflokkurinn vero- ur ekki aðeins að takast það á hendur, betur en nokkru sinni fyr, að vera hinn pólitíski fræð- ari miðstéttanna, heldur og að skipuleggja baráttu þeirra gegn skattakúguninni, hringa-, banka- og stórverzlanavaldinu, gegn rík- islögreglu og fasisma — að skipu- leggja sameiginlega og bróður- lega dægurbaráttu verkalýðsins og smáframleiðendanna hér í Eyjum gegn sameiginlegum ó- vini: auðvaldinu í öllum þess myndum, með sameiginlegt mark fyrir augum og það er, hér í Vestmannaeyjum: Bæjarvöldin í hendur verkalýð og smáfram- leiðenda. En í landsmálum: Verkalýðs- og bændastjórn á Is- landi! Bollapör 8 tegundir mjög smekklegar og ódýrar. Kf. Verka- jnanna. Afgreiðsla „Nýs dags“ er í búðum Kaupfélags Verkamanna, Vestmannabraut 1 og 35. Auglýsingum sé komið á af- greiðslu blaðsins, ekki síðar í vik- unni en á miðvikudögum. Blaðið kemur út á laugardögum. Hænsnafóður, blandað hænsna- bygg, mais mulinn, hveitikorn, maismjöl, „Columbus“ varpauk- andi hænsnamjöl, fæst í Kaup- félagi Verkamanna. Meíra blóð. f 23. tölubl. „Víðis“ ritar Jóh. Þ. Jósefsson, undir dulnefnir.u Sig. S. Scheving, grein er nefnist „Atvinnubætur og þurfalingar“. Harmar hann þar mjög að verka- lýðurinn skuli neyta þess réttar síns að krefjast styrks af bæn- um til viðhalds lífi sínu, þegar hann fær ekki að vinna fyrir því. Það „ófremdar ástand“, sem á þessum málum er, má ekki halda áfram, svo hljóðar inntakið hjá Jóhanni. Einhverju af því alþýðu- fólki, sem hingað til hefir látið blekkjast til að ljá Jóhanni fylgi sitt, hefir að líkindum látið sér detta í hug, að nú myndi har.n, þessi „þingmaður allra stétta“, eins og hann lét. Sig. Scheving kalla sig. á framboðsfundinum á dögunum, ætla að hefja upp rai^st sína um meðferðina á þeim, sem nú verða að leita styrks hjá bænum, en svo er nú ekki. Þau eru ekkert „ófremdarástand“ eymdarkjörin, sem fólk þetta býr við, sem verður að fara hverja ferðina á fætur annari til bæjai-- gjaldkerans til þess að herja út einar 5 eða 10 krónur fyrir mjólk eða öðrum nauðsynjum. Það er ekki „ófremdarástandið“, sem taka verður fyrir, að þeir, sem fá ‘ styrk úr öðrum sveitum, sem grejddur er hingað í peningum, skuli ekki fá peningana heldur séu látnir fá úttektarseðla á okurholur Tangans og Bjarma. cg þeim þannig haldið uppi með- fram á kostnað hinna aðþrengdu

x

Nýr dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr dagur
https://timarit.is/publication/1488

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.