Fréttablaðið - 07.05.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.05.2021, Blaðsíða 2
Hreiðurgerð á níundu hæð ÖRYGGISMÁL „Við erum ekki að rekast á neina fjársjóði en þeir fundu eitt hlaupahjól strákarnir,“ segir Guðjón Guðjónsson, aðstoð- arvarðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og einn umsjónarmanna köfunarnám- skeiðs í Reykjavíkurhöfn. Um er að ræða fyrsta kafaranám- skeiðið í þrjú ár á vegum slökkvi- liðsins, Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra. Guðjón segir að á námskeiðinu séu stýrimaður og háseti frá Landhelgisgæslunni, tveir sérsveitarmenn frá ríkis- lögreglustjóra og sjö slökkviliðs- og sjúkraf lutningamenn. Fyrsti hlutinn hafi farið fram í Sundhöll Reykjavíkur þar sem mannskapur- inn hafi kynnst kafarabúnaðinum í vernduðu umhverfi. „Við erum búnir að vera í krikan- um hjá Hörpu síðan á mánudag og þeir hafa verið að æfa leitarkerfi og að nota ákveðin línumerki til þess að hafa samband hver við annan eða fá fyrirmæli frá yfirborðinu,“ útskýrir Guðjón viðfangsefnin. „Kafarar Landhelgisgæslunnar enda mest í því að sinna skipa- þjónustu. Lögreglumennirnir enda meira í að rannsaka. Slökkviliðið er að nýta þetta til þess að teygja sjúkraf lutningaþjónustuna niður í vatn og sjó,“ segir Guðjón. Menn með mismunandi bakgrunn sam- einist í köfuninni og liðsinni hver öðrum. „Ef til að mynda verður stórt slys þá höfum við allir saman grunninn.“ Að sögn Guðjóns fengu kafararnir smíðaverkefni neðansjávar í gær. „Þeir höfðu með sér hamar, nagla, sög og 3,6 metra langa spítu. Og upp kom kassi sem var sextíu sinnum sextíu,“ lýsir hann. Mjög frábrugðið sé að vinna verk á borð við þessi í vatni. „Þegar komið er í hálfgert þyngdarleysi þarf að beita sér allt, allt öðru vísi heldur en þegar staðið er í bílskúrnum heima hjá sér.“ Dagurinn í gær endaði á leitar- æfingu. „Þeir voru að æfa björgun á kafara í vandræðum. Það gekk ljómandi vel,“ segir Guðjón. Aðspu rðu r k veðu r Guðjón skyggni í höfninni ekki upp á marga fiska. „Þetta er eins og aspassúpa, maður sér eiginlega ekki neitt. Maður kemur niður á botninn og þá þyrlast drullan í kring um mann og allt verður svart. Reglan er sú að við sjáum nánast ekkert. Þá lokar maður bara oft augunum og vinnur með því að þreifa sig áfram.“ Námskeiðið heldur áfram í sept- ember. „Þá förum við að vinna í að láta þá kafa með lofti frá yfirborð- inu þannig að þeir hafa lengri tíma til að vinna,“ segir Guðjón. Endað verði á því að kafa niður á fimmtíu metra frá varðskipi. „Þeir eru að minnsta kosti ekki leiðir hérna strákarnir en eru kannski svolítið þreyttir,“ segir Guðjón þegar honum er bent á að æfingarnar líti út fyrir vera svolítið skemmtilegar. gar@frettabladid.is Læra köfun í höfninni er minnir á aspassúpu Liðsmenn Landhelgisgæslunnar, slökkviliðsmenn og sérsveitarmenn eru nú við köfunaræfingar í Reykjavíkurhöfn. Þar þurfa kafararnir meðal annars að bjarga hver öðrum og leita að skrúfboltum í skyggni sem minnir á aspassúpu. Skrefin tekin í átt að undirdjúpum Reykjavíkurhafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Reglan er sú að við sjáum nánast ekkert. Þá lokar maður bara oft augunum og vinnur með því að þreifa sig áfram. Guðjón Guðjónsson, aðstoðarvarð- stjóri hjá Slökkviliðinu á höfuð- borgarsvæðinu ELDGOS Prófanir á hraunrennslis- vörnum í Meradölum út frá núver- andi gosi í Geldingadölum eru nýttar til að afla reynslu og þekk- ingar á uppbyggingu varnargarða sem gæti þurft að byggja síðar til að verja mikilvæga innviði eða íbúða- byggð á Reykjanesskaga. Björn Oddsson jarðeðlisfræðing- ur kom á fund bæjarráðs í vikunni til að fara yfir stöðu mála. Var lagt fram minnisblað frá Verkís, Ef lu og Háskóla Íslands um prófanir á hraunrennslisvörnum. Bæjarráð Grindavíkur leggur mikla áherslu á að þær aðstæður sem nú eru til staðar í Meradölum verði tafarlaust nýttar til að fram- kvæma prófanir á hraunrennslis- vörnum að veittum tilskildum leyfum til framkvæmdanna, segir í fundargerð bæjarráðs. – bb Vilja prófa hraunvarnir Gosið er enn vinsæll áfangastaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Birni B. Berthelsen, íbúa í þjónustuíbúð í Furugerði 1, brá í brún þegar dóttir hans opnaði grillið hans á níundu hæð fyrir skömmu. Við blasti þrastarhreiður þar sem ljóst er að vandað hefur verið til verka. „Ég hef aldrei lent í svona. Ég var búinn að sjá fuglana þegar þeir voru að bera inn strá og svoleiðis,“ segir Björn. Fyrst komu fjögur egg og svo urðu þau sex. „Þetta eru greinilega duglegir fuglar,“ segir hann og hlær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SKIPULAGSMÁL Borgarráð Reykjavík- ur hafnaði í gær beiðni á breytingu á deiliskipulagi um þá kvöð íbúa að hafa berjarunna á sérafnotareit. Berjarunninn skal því fara niður. Sjálfstæðisf lokkurinn lagði fram bókun þar sem bent er að for- ræðishyggjan birtist víða. „Þá vekur athygli að þótt ekki eigi að tryggja íbúum frelsi um ráðstöfun eigin garða, er ekki fyrirhugað að fram- kvæma lokaúttekt á sérafnotareit- unum,“ segir í bókun flokksins. Hildur Björnsdóttir, borgarfull- trúi flokksins, spurði hverjar afleið- ingarnar yrðu ef íbúar myndu hafa reitinn eins og þeir vildu. Svarið sem hún fékk var að ekki yrði fram- kvæmd lokaúttekt á umræddum sér- afnotareitum. Aðrir íbúar gætu hins vegar kvartað til borgarinnar og þá yrði skilmálaeftirlitið sent á svæðið. „Þetta eru auðvitað fráleit afskipti af heimilum fólks. Kerfið verður að vera sveigjanlegt,“ segir Hildur hissa. Vigdís Hauksdóttir, borgarfull- trúi Miðf lokksins sem einnig er garðyrkjufræðingur, veit varla hvort hún eigi að hlæja eða gráta yfir þessari niðurstöðu. Í bókun hennar segir að þetta séu trúlega minnstu garðar í heimi þar sem verði að vera berjarunni til að gróðurþekjan og líffræðileg fjöl- breytni á svæðinu haldi sér. „Það er ekki hægt að skálda svona vitleysu upp – en allt er greinilega hægt í Reykjavík.“ – bb Berjarunninn skal niður en þó án lokaúttektar Guðmundur Helgi á heima í Voga- byggð í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 7 . M A Í 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.