Fréttablaðið - 07.05.2021, Blaðsíða 10
Það minnkaði ekki
spennuna að sjá að
bæjarbúar voru margir
hverjir búnir að flagga á
leikdegi.
Hugrún Pálsdóttir
FÓTBOLTI Það var sögulegur leikur
sem spilaður var á Sauðárkróki
á miðvikudagskvöldið. Þá mætti
Þróttur í heimsókn í fyrsta leik
Tindastóls í sögunni í efstu deild
kvenna í knattspyrnu.
Hugrún Pálsdóttir skoraði tíma-
mótamark fyrir Tindastól þegar
hún kom liðinu yfir í leiknum en
því miður fyrir heimakonur náðu
gestirnir að jafna metin með marki
sínu beint úr aukaspyrnu í upp-
bótartíma leiksins.
„Eftirvæntingin fyrir þessum
leik var mjög mikil og það var mikil
spenna í leikmannahópnum, ég get
alveg viðurkennt það. Það minnkaði
ekki spennuna að sjá að bæjarbúar
voru margir hverjir búnir að flagga
á leikdegi og maður fann alveg fyrir
hversu mikið stolt var í bænum yfir
að við værum að fara að spila í efstu
deild í fyrsta skipti,“ segir Hugrún
um aðdraganda leiksins.
„Við pössuðum samt alveg upp á
að draga andann djúpt áður en kom
að leiknum og mér fannst spennu-
stigið bara fínt þegar út í leikinn var
komið. Við minntum okkur á það
að við værum að fara út í fyrsta leik
af mörgum og Þróttur væri lið sem
við hefðum mætt áður með fínum
árangri. Þannig að mér fannst við
bara vel stilltar þrátt fyrir að það
væri auðvitað smá hrollur í okkur,“
segir hún enn fremur.
„Það hjálpar okkur líka að við
erum með sama kjarna og hefur
farið upp um deildir síðustu ár og
leikmannahópurinn er svipaður
og í fyrra. Það er gríðarlega góð liðs-
heild í þessum hóp og ég held að það
vinni með okkur að það eru sömu
lykilleikmenn í liðinu og sáu um að
koma okkur upp um deildir.
Auðvitað gerum við okkur grein
fyrir því að við þurfum bæði að
bæta okkur sem eru fyrir og styrkja
okkur til þess að festa okkur í sessi í
þessari deild sem er klárlega mark-
miðið,“ segir Hugrún sem hefur
allan sinn feril leikið með Tinda-
stóli.
„Að ná að skora í þessum leik var
mögnuð tilfinning og ég trúði því
eiginlega að þetta væri að gerast
fyrst eftir að ég horfði á eftir bolt-
anum fara í netið. Það tók smá tíma
að fatta að þetta væri að gerast og
ég áttaði mig eiginlega ekki á því að
þetta væri veruleikinn fyrr en við
vorum byrjaðar að fagna markinu.
Það var súrsæt tilfinning inni í
klefa eftir leik. Við erum ánægður
með að vera komnar á blað og það
er þægilegt að fá staðfestingu á því
sem við vorum nokkuð viss á fyrir
þennan leik að við eigum klárlega
heima í þessari deild.
Í þeirri stöðu sem var komin upp
vildum við að sjálfsögðu fá þrjú stig
og við vorum búnar að halda þeim
vel í skefjum fram að markinu sem
kom úr bara virkilega góðu skoti
beint úr aukaspyrnu. Það var ekkert
við markinu að gera en það var mjög
svekkjandi að ná ekki að halda út.
Mér finnst jákvætt að stemming-
in inni í klefa var sú að við vorum
pirraðar að hafa ekki unnið og
við getum tekið þann pirring með
okkur í næstu verkefni. Við náðum
ekki að spila á okkar sterkasta liði í
æfingaleikjunum fyrir þennan leik
og vorum að spila með alla okkur
sterkustu leikmenn í fyrsta sinn í
langan tíma.
Þeir leikmenn sem voru tæpir
vegna meiðsla fyrir leikinn verða
sterkari í næsta leik og svo er aldr-
ei að vita hvort þjálfararnir séu að
vinna í að styrkja liðið enn frekar.
Það kemur bara í ljós,“ segir þessi 24
ára gamli leikmaður.
Næsti leikur Tindastóls er á móti
Fylki í Árbænum á þriðjudaginn
kemur. hjorvaro@frettabladid.is
Fundum vel hversu stoltið var mikið
Hugrún Pálsdóttir skoraði fyrsta mark Tindastóls í efstu deild kvenna í knattspyrnu í sögu félagsins í miðri viku. Hugrún segir það
hafa tekið tíma fyrir hana að átta sig á því að draumurinn væri orðinn að veruleika. Hún segir það hafa verið súrsætt að gera jafntefli.
Leikmenn Tindastóls fagna sögulegu marki Hugrúnar Pálsdóttur í leiknum. MYND/ÓLI ARNAR
Fimmtudaginn 20. maí 2021 kl. 16.30
1. Fundur settur
2. Skýrsla stjórnar
3. Gerð grein fyrir ársreikningi
4. Tryggingafræðileg úttekt
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
6. Önnur mál
Ársfundur SL lífeyrissjóðs
2021
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til
fundarsetu á ársfundinum.
Hægt verður að senda spurningar á meðan á fundinum stendur
á tölvupóstfangið sl@sl.is
DAGSKRÁ
Reykjavík 20.05.2021
Stjórn SL lífeyrissjóðs
Fundurinn er rafrænn og verður streymt, sjá slóðina www.sl.is
Ef sóttvarnarreglur leyfa, eru fundargestir velkomnir á fundarstað
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík
7 . M A Í 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handbolta mun leika í riðli með
Portúgal, Ungverjalandi og Hol-
landi í lokakeppni Evrópumótsins
sem fram fer í Slóvakíu og Ungverja-
landi í janúar á næsta ári.
Hollenska liðið leikur undir
stjórn Erlings Richardssonar, þjálf-
ara karlaliðs ÍBV. Hætt hefur verið
við fyrirhugaða æfingaleiki Hol-
lands við Ísland í aðdraganda loka-
mótsins.
Ísland var í þriðja styrkleika-
flokki ásamt Frökkum, Slóvökum,
Hvít-Rússum, Tékkum og Norður
Makedóníu þegar dregið var í riðl-
ana á mótinu í dag.
Alfreð Gíslason og lærisveinar
hans hjá Þýskalandi etja kappi við
Austurríki, Hvíta-Rússland og Pól-
land. Riðill Íslands verður leikinn í
New Budapest-höllinni í Búdapest
en hún tekur um það bil 20.000
manns í sæti. Mótið fer fram dagana
11. til 31. janúar en leikjaniðröðun
íslenska liðsins í riðlinum er eftir-
farandi: Ísland leikur við Portúgal,
svo Holland 16. janúar og að lokum
Ungverjaland 18. janúar. Tvö efstu
liðin í hverjum riðli fara í milliriðil
mótsins. – hó
Íslenska liðið mætir
Erlingi á EM í janúar
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ísland mætir gestgjöf-
unum, Ungverjalandi,
Portúgal og Hollandi í
lokakeppni EM 2022.
Riðlarnir á EM
n A-RIÐILL: Slóven ía, Dan mörk,
Norður-Makedón ía, Svart-
fjalla land.
n B-RIÐILL: Portúgal, Ung verja-
land, Ísland, Hol land.
n C-RIÐILL: Króatía, Serbía,
Frakk land, Úkraína.
n D-RIÐILL: Þýska land, Aust ur-
ríki, Hvíta-Rúss land, Pól land.
n E-RIÐILL: Spánn, Svíþjóð,
Tékk land, Bosn ía.
n F-RIÐILL: Nor eg ur, Rúss land,
Slóvakía, Lit há en.