Fréttablaðið - 07.05.2021, Page 4

Fréttablaðið - 07.05.2021, Page 4
Við vonumst til þess að á næstu mánuðum geti dómarar á Íslandi komið til leiðar einhvers konar réttlæti fyrir fjölskyldu mína. Sarah Wagstaff Renndu við og fáðu lyn afgreidd beint í bílinn www.lyfsalinn.is BÍLAAPÓTEK VIÐ VESTURLANDSVEG DÓMSMÁL „Sá langi tími sem málið hefur tekið hefur komið í veg fyrir að við fjölskyldan getum haldið áfram með líf okkar,“ segir Sarah Wagstaff, sem rekur dómsmál gegn Arngrími Jóhannssyni f lugstjóra vegna andláts föður hennar í f lug- slysi með Arngrími. Arngrímur brotlenti ferjuflugvél sinni í Barkárdal í Eyjafirði í ágúst 2015 og var þá á leið frá Akureyri til Kef lavíkur. Með um borð var Kanadamaðurinn Grant Wagstaff sem Arngrímur hafði ráðið til að flytja vélina með sér vestur um haf og koma í hendur á nýjum eiganda. Við brotlendinguna kom upp eldur. Arngrímur náði að komast út úr vél- inni en Grant lést. Sarah Wagstaff höfðaði mál í nóvember 2019 gegn Arngrími og tryggingafélagi hans Sjóvá og krafðist bóta fyrir föður sinn. Það sama hafði Roslyn, ekkja Grants, gert áður fyrir sitt leyti og síðar yngri börn hennar tvö, Claire og Tyler. Samtals eru því rekin fjögur samhljóma dómsmál. Ekkjan er með einn lögmann en börnin þrjú leituðu annað og eru öll með sama lögmanninn. Fyrirtaka var í málunum fjórum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar var ákveðið að aðalmeðferð þess færi fram í október, eftir fimm mán- uði. Lögð hefur verið fram matsgerð tveggja sérfróðra matsmanna með svörum við tilteknum spurningum sem lögmenn málsaðilanna lögðu fyrir þá. Meginniðurstaða matsmann- anna er sú að orsök þess að flugvélin hrapaði hafi verið ísing í blöndungi. Þá hafna þeir þeirri niðurstöðu rannsóknarnefndar f lugslysa að f lugvélin hafi verið ofhlaðin og að ekki hafi verið skilyrði til sjónflugs þegar Arngrímur freistaði þess að f ljúga upp yfir Tröllaskaga neðan úr Barkárdal eftir að hafa reynt fyrir sér í Öxnadal og Hörgárdal. Taldi rannsóknarnefndin mann- lega þætti hafa átt þátt í slysinu auk blöndungsísingar. Andstætt rannsóknarnefndinni telja matsmennirnir ekki hægt að skilgreina Grant Wagstaff sem flug- mann um borð, eða Pilot Not Flying. Slíka skilgreiningu lagði Sjóvá ein- mitt til grundvallar þeirri ákvörðun fyrir þremur árum að greiða ekki bætur til fjölskyldu Grants þar sem tryggingin fyrir f lugvélina hefði aðeins gert ráð fyrir einum f lug- manni og síðan farþegum ef þeim væri til að dreifa. „Ég er sannfærð um að koma hefði mátt í veg fyrir lát föður míns og að ákvarðanir og geta Arngríms til að hafa stjórn á fluginu við þessar fyrirsjáanlegu veðuraðstæður hafi á endanum leitt til þess að faðir minn lést,“ segir Sarah. Þá segist Sarah telja að Sjóvá hafi ranglega og á ósanngjarnan hátt skýlt sér á bak við þá skilgreiningu að faðir hennar hafi verið flugmað- ur um borð í vélinni þennan dag og þannig komið sér undan að taka á sig nokkra fjárhagslega ábyrgð. „Við vonumst til þess að á næstu mánuðum geti dómarar á Íslandi komið til leiðar einhvers konar rétt- læti fyrir fjölskyldu mína og vegna andláts föður míns þannig að við getum lagt málið að baki okkur,“ segir Sarah Wagstaff. Áður en til aðalmeðferðar kemur í haust þarf að finna sérfróðan meðdómara sem sest þá í dóminn ásamt tveimur héraðsdómurum. gar@frettabladid.is Dómkvaddir matsmenn segja ísingu orsök Barkárdalsslyss Matsmenn í bótamáli á hendur Arngrími Jóhannssyni og Sjóvá segja blöndungsísingu hafa leitt til þess að flugvél Arngríms brotlenti. Dóttir Kanadamanns sem lést í slysinu kveðst sannfærð um að koma hefði mátt í veg fyrir það. Aðalmeðferð í bótamálinu er áætluð í október, rúmum sex árum eftir að vélin fórst. Flak ferjuflugvélar Arngríms Jóhannssonar fannst í Barkárdal meira en átta klukkutímum eftir að hún lagði upp frá Akureyri. MYND/AÐSEND SAMFÉLAG Fangar gátu ekki nýtt sér ferðagjöf stjórnvalda í fyrra og líkur eru á að sú verði einnig raunin í ár. Guðmundur Ingi Þóroddsson, for- maður Afstöðu – félags fanga, segir leitt að stór hópur líkt og fangar geti ekki nýtt sér sama kost og aðrir. „Þeir hafa bara ekki tækifæri á að komast í hana og nota hana. Það er vegna þess að þeir eru ekki með snjallsíma. Þeir eru ekki með rafræn skilríki,“ segir Guðmundur. „Þeir eru ekki með internet og þeir eru ekki með neina verslun til að taka á móti því. Ekki nema þá bara verslanirnar í fangelsunum en þær hafa auðvitað ekki verið að taka á móti þessu.“ Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ferðamálaráðherra sagði í síðasta mánuði að til stæði að kynna ferða- gjöfina að nýju í ár. Í fyrra var um að ræða 5.000 króna upphæð sem landsmenn gátu sótt sér í sérstakt smáforrit með rafrænum skilríkj- um. Þórdís hafði ekki svarað fyrir- spurn Fréttablaðsins vegna málsins fyrir birtingu þessarar fréttar. „Það er náttúrulega mjög mikil- vægt að allir fái að nýta þetta. Fang- ar eru alveg jafn mikið að líða fyrir Covid og hver annar,“ segir Guð- mundur. Málið hafi verið rætt við fangelsisyfirvöld en útfærslan og hver sjái um hana talið flókið mál. Hefur Afstaða meðal annars sent Island.is og Ferðamálastofu erindi vegna málsins til að finna lausnir á því. Segir félagið að hægt væri að hafa sérstakan síma til verksins, þar sem fangar kæmust inn á Island.is með Íslykli og smáforriti komið fyrir í verslunum fangelsa svo þær geti tekið á móti gjöfinni. – oæg Vilja að fangar fái líka ferðagjöfina Fangar á Litla-Hrauni fá ekki ferðagjöf stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR SJÁVARÚTVEGUR Rannsóknarskipið Árni Friðriksson lagði í gær af stað í leiðangur þar sem mæla á magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annarra uppsjávartegunda á hafsvæðinu á milli Íslands og Nor- egs, svonefndu Austurdjúpi og á Austur- og Norðausturmiðum. Jafnframt verður ástand hafs og vist- kerfis kannað. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Leiðangurinn hefur verið farinn árlega síðan 1995 og verða niður- stöður hans nýttar við stofnmat og veiðiráðgjöf norsk-íslenska síldar- stofnsins. Auk Árna Friðrikssonar taka rannsóknarskip frá Noregi, Fær- eyjum, Danmörku og Rússlandi þátt í verkefninu. Áætlað er að leiðangur- inn muni taka 20 daga. – jþ Mæla síld fyrir austan landið Árni Friðriksson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UMHVE RFISM ÁL R ík is lög reglu - stjóri, í sam ráði við lög reglu stjóra og slökkvi liðs stjóra á Vest ur landi, höfuð borg ar svæðinu, Suður nesj- um og Suður landi, hefur á kveðið að lýsa yfir ó vissu stigi vegna hættu á gróður eld um. Þetta segir í til- kynningu. Svæðið sem um ræðir nær frá Eyja fjöll um að sunn an verðu Snæ - fells nesi. Lítið hef ur rignt á þessu svæði und an farið og veður spá á næstunni fyrir svæðið gerir ekki ráð fyrir úrkomu svo neinu nemi. Skemmst er að minnast gróður- elda í Heiðmörk í vikunni. Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem segir að göngustígar og akvegir í Heiðmörk séu nú opnir gestum. Segir þar einn- ig að reykingar og hvers kyns með- ferð elds eða eldfæra sé bönnuð í Heiðmörk á meðan jafn þurrt er í veðri. Ó vissu stig í þessu samhengi þýðir að aukið eftir lit er haft með at burða rás sem gæti leitt til að heilsu og öryggi fólks, um hverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir ó vissu stigi er hluti af verk- ferlum al manna varna til að tryggja sam skipti og upp lýsinga gjöf á milli við bragðs aðila og al mennings. Almannavarnir hvetja al menning til að sýna að gát með opinn eld á þessum svæðum þar sem gróður er þurr. Verði fólk vart við gróður eld er það beðið um að hringja strax í neyðar línuna. – oæg / jþ Setja óvissustig á vegna rigningarleysis og mögulegra gróðurelda Eldurinn í Heiðmörk í vikunni fór um 61 hektara lands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MOSFELLSBÆR Nýjasti grunnskóli Mosfellsbæjar mun heita Kvíslar- skóli en ákveðið var að efna til samkeppni um nafn á nýja skólann um miðjan mars. Góð þátttaka var í samkeppninni og alls bárust 68 til- lögur að nýju nafni. Nafnanefndin setti sér starfsreglur og fundaðir tvisvar sinnum. Skólinn verður fyrir nemendur í 7. til 10. bekk Nafn skólans var tilkynnt með formlegum hætti í gær í eldri deild Varmárskóla. – bb Skólinn heitir Kvíslarskóli 7 . M A Í 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.