Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2021, Page 4

Víkurfréttir - 27.05.2021, Page 4
  Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga Þann 20. maí afhenti umhverfis- svið Reykjanesbæjar, Suðurnesja- deild Garðyrkjufélags Íslands til varðveislu og rekstrar þrjátíu gróðurkassa, sem hafa áður hafa verið staðsettir á þremur stöðum í bæjarfélaginu. Þeim hefur nú öllum verið komið á einn varanlegan stað, fjölskylduvænlegu útivistasvæði, sem hlotið hefur nafnið Njarðvíkur- skógar. Heitið Njarvíkurskógar höfðar til þess að í framtíðinni verði svæði þetta gróðri vaxið með trjám og runnum, þar sem bæjarbúar allir hafi lagt sitt að mörkum til að svæðið verði sem mest aðlaðandi til úti- vistar. Það sem þegar hefur verið gert af hálfu bæjarins ber merki um metnaðarfulla græna framtíðarsýn fyrir það fjölmenningarsamfélag sem við búum í. Á svæðinu er þegar til staðar grillaðstaða, þrautaleikja- garður, afgirt leiksvæði fyrir hunda og frisbígolfvöllur, svo nokkuð sé nefnt. Fjölfarnar gönguleiðir liggja um svæðið. Það er heiður fyrir okkar litlu garðyrkjudeild að taka þátt mótun þessa svæðis með því að taka við þessum gróðurkössum sem hér hefur verið komið fyrir og verða kveikjan að því sem kalla mætti Grenndargarða Suðurnesja. Í þessum gjörningi felast óendanleg tækifæri. Hér geta bæjarbúar komið saman sem samfélag þar, sem marg- breytileikinn nýtur sín, lært hver af öðrum, þroskað með sér hæfileika og notið þess að rækta eigin mat- jurtir. Aldrei bragðast grænmeti betur en það sem ræktað er með eigin höndum. Börn sem borða sínar eigin ræktaðar radísur eða rófur fá yfir andlitið sérstakan ljóma. Kass- arnir veglegu, sem komnir eru, svala grunnþörfum garðyrkju, það er afmarkað beð fullt af mold. Það er síðan hvers og eins að fá út úr slíku beði sem mestan ávöxt. Við kunnum að þurfa að bæta jarðveginn, byggja yfir beðin einfalda boga til að vernda plöntur þær sem settar verða niður með akrýldúkum og hækka þannig hitastig ræktunarsvæðisins. Þetta verður þróunarverkefni, eins og allt sem byrjað er á. Búið er að leiða vatn að svæðinu og til stendur að flytja þangað lítið hús, sem afdrep og til varðveislu garðáhalda. Það kemur í hlut deildarinnar að skipuleggja almanak ræktunarmannsins og eftir megni kenna viðeigandi hand- brögð við ræktunina og umgengi á svæðinu. Hér myndast grundvöllur til samveru og kynna, þegar lagt er af stað. Það er í okkar höndum að móta svæðið til framtíðar. Við viljum sérstaklega ávarpa nýbúa í samfélagi okkar og fá þá með í þetta verkefni, njóta þeirra samveru og vona að þeir njóti okkar. Kassarnir eru tilbúnir til notkunnar og því um að gera að hefjast handa og leigja sér kassa, því þeir renna út. Grunngjald á hvern kassa er 5.000 krónur. Við hvetjum áhugasama að hafa tölvusamband við gjaldkera félagsins, Hannes Frið- riksson, netfang aeinn@ver.is, gefa upp kennitölu og reikningsnúmer í heimabanka, svo hægt sé að gjald- færa leigugjaldið. Við vonum að sem flestir nýti sér þetta einstaka tækifæri og veri með frá byrjun til að byggja upp sameiginlega, grænt, fjölskylduvænt samfélag. Fyrir hönd Suðurnesjadeildar Garðyrkjufélags Íslands, Konráð Lúðvíksson, formaður. Afhending gróðurkassa í Njarðvíkurskógum Frá formlegri afhendingu gróðurkassanna.Larz sýnir í Gallery Grásteini Larz Jónsson opnaði fyrir nokkru ljósmyndasýningu í Gallery Grásteini við Skólavörðustíg 4 í Reykjavík. Sýningunni, sem Larz nefnir Hugmynd, lýkur 30. maí en þar sýnir hann fjölda mynda sem hann hefur tekið. „Þetta hefur engið framar vonum og sýningin kemur fólki skemmtilega á óvart. Myndirnar vekja ímyndunaraflið og almenna hrifningu.Hún er ævin- týraleg og dularfull,“ segir Larz. Sýningin er opin virka daga kl. 11 til 18 og kl. 12 til 17 um helgar. Hægt að skoða verkin á larz.is FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS 4 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.