Víkurfréttir - 27.05.2021, Blaðsíða 8
HÚSMÆÐRAORLOF
Gullbringu- og Kjósarsýslu
Orlofsnefnd húsmæðra í Gullbringu- og Kjósarsýslu hefur
opnað heimasíðu, slóðin er: orlofksgk.wordpress.com, þar
sem fyrirhugaðar ferðir verða auglýstar. Einnig verða settar
inn fréttir o.þ.h.
Þær konur sem ekki hafa tölvuaðgang, eru hvattar til að leita
aðstoðar hjá vinum og vandamönnum eða kanna með að-
gang að tölvum á bókasöfnum.
VINNUEFTIRLITIÐ REYKJANESBÆ
HÚSNÆÐISÖFLUN - LEIGUHÚSNÆÐI
21437 - Ríkiskaup f.h. Ríkiseigna óska eftir að taka á leigu skrifstofu-
húsnæði fyrir Vinnueftirlitið í Reykjanesbæ. Um er að ræða hefðbundið
skrifstofuhúsnæði. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 10 ára með möguleika á að
framlengja samninginn um 5 ár í senn, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar.
Gerð er krafa um gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi
og næg bílastæði. Gerð er krafa um að húsnæðið sé staðsett í Reykjanesbæ.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 70 - 90 fermetrar.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða
aðgengilegar í rafræna útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss
og skipulag þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, afhendingatíma, staðsetningu,
aðkomu og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 21437 skulu sendar rafrænt í gegnum
útboðskerfið TendSign og verða svör birt þar.
Fyrirspurnarfrestur rennur út fimmtudaginn 10. júní en svarfrestur er til
og með 14. júní 2021.
Leigutilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu, eigi síðar en kl. 12:00,
miðvikudaginn 16. júní 2021. Tilboð verða opnuð kl. 13:00 sama dag.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber
innkaup nr. 120/2016, sbr. a-liður, 1. mgr. 11. gr. laganna.
Sjá nánar á www.utbodsvefur.is
Hvalsneskirkja -Aðalsafnaðarfundur
verður haldinn í Sandgerðiskirkju, safnaðarheimili,
mánudaginn 7. júní kl. 17.00.
Sóknarnefnd.
Keilir og Háskóli Íslands bjóða nú í annað sinn upp á fag-
háskólanám í leikskólafræðum fyrir starfsfólk leikskóla á
Suðurnesjum. Um er að ræða starfstengt og hagnýtt nám
á háskólastigi. Námið er sett upp sem 60 ECTS einingar
og skilgreint sem nám með vinnu og er áætlað að það taki
tvö ár. Stefnt er að því að námið hefjist í byrjun september
næstkomandi og fara umsóknir fram á vef Háskóla Íslands.
Umsóknarfrestur er til 12. júní.
Hagnýtt,
atvinnutengt nám
Um er að ræða hagnýtt, atvinnu-
tengt nám á háskólastigi sem
lýkur með veitingu sérstaks próf-
skírteinis. Námið veitir haldgóða
þekkingu á starfi með börnum
í leikskólum og hentar einkum
þeim sem hafa starfað sem leið-
beinendur í leikskólum og hyggjast
bæta við hæfni sína og/eða hefja
leikskólakennaranám. Nemendur
munu fá námseiningar metnar
sæki þeir um áframhaldandi nám
í leikskólafræðum við Háskóla Ís-
lands.
Fyrra árið fer námið fram í Keili
og verður skipulagt sem sveigjan-
legt nám með starfi. Kennarar í
leikskólakennarafræðum heim-
sækja nemendur í heimabyggð, í
húsnæði Keilis þar sem þunginn af
náminu fer fram. Nemendur fara
í heimsóknir á vettvang og heim-
sækja einnig Menntavísindasvið
Háskóla Íslands í Stakkahlíð, sem
ber faglega ábyrgð á náminu.
Seinna árið verða nemendur
hluti af leikskólakennaranema-
hópnum á Menntavísindasviði
Háskóla Íslands, kennslan fer þá
fram í húsnæði Menntvísindasviðs
en einnig geta nemendur stundað
námið í fjarfundi frá Keili.
Fagháskólanám í leik-
skólafræðum kennt í
annað sinn við Keili
Guðný Margrét Jóns-
dóttir hóf nám í leik-
skólafræðum ef t i r
ábendingu frá leik-
skólastjóranum við leik-
skólann sem hún hefur
starfað hjá í þrjú ár.
Segir hún námið henta
vel með fullri vinnu og
ung börn á heimilinu. Guðný segir
leikskólastjóra og samstarfsfólk
hafa sýnt mikinn stuðning og
viljað fylgjast með náminu.
Guðný segist hlakka til að halda
áfram að bæta við þekkingu sína
á starfinu með hverri
önninni. „Þetta nám er
frábært fyrir alla þá sem
hafa ekki verið í skóla
lengi og þora ekki að
byrja í námi eftir langa
pásu. Það er vel haldið
utan um fólkið í náminu
og auðvelt að fá skjót
svör frá kennurum og námsráð-
gjöfum. Ég hvet alla þá sem hafa
áhuga á að vinna með börnum að
sækja um í Fagháskólanám í leik-
skólafræðum.
Guðríður Sæmunds-
dóttir, nemandi á
fyrsta ári í fagháskóla-
námi í leikskólafræðum
segist lengi hafa velt
háskólanámi á sviðinu
fyrir sér en alltaf hafa
miklað það fyrir sér.
Hún hafi að endingu
látið slag standa og sér ekki eftir
þeirra ákvörðun. Hún segir námið
hafa nýst sér vel í starfi „Maður
horfir allt öðruvísi á starfið, ég
er stöðugt að ígrunda og reyna
að gera betur. Skilningurinn á
starfinu og hvað felst í því að vera
leikskólakennari hefur aukist.“
Guðríður segir námsálagið
temmilegt, ekki of mikið eða lítið
með vinnu og rekstri
á fimm manna heimili
„Það hefur gengið mjög
vel og eiginlega betur en
ég þorði að vona. Fjöl-
skyldan hefur stutt vel
við mig og allir hjálpast
að þegar það hefur verið
álag hjá mér í náminu.
Leikskólastjórar og samstarfskonur
hafa einnig sýnt stuðning og það
hefur mikið að segja.“ Þá segir hún
skólann halda vel um nemendur
„Það er stanslaust verið að huga
að því hvernig við höfum það og
hvort við séum nokkuð að bugast.
Námsráðgjafarnir eru frábærir og
alltaf tilbúnir að peppa okkur ef
þess þarf.“
Frábært fyrir þau sem hafa
lengi verið frá námi
Aukinn skilningur á starfinu
Staða skólastjóra Grunnskóla
Grindavíkur var nýlega auglýst
laus til umsóknar. Umsóknarfrestur
rann út 12. maí sl. og bárust níu
umsóknir, en einn umsækjandi dró
umsókn sína til baka.
Ráðið verður í stöðuna frá og með
1. ágúst næstkomandi en það er ráð-
gjafafyrirtækið Intellecta sem sér um
ráðningarferlið, segir á vef Grinda-
víkurbæjar.
Eftirfarandi sóttu um stöðuna:
Anna Björg Ingadóttir skólastjóri,
Anna Kristjana Eyfjörð Egilsdóttir
grunnskólakennari, Eysteinn Þór
Kristinsson skólastjór, Guðlaug Er-
lendsdóttir aðstoðarskólastjóri,Jó-
hanna Sævarsdóttir aðstoðarskóla-
stjóri, María Óladóttir deildarstjóri,
Ólafía María Gunnarsdóttir verk-
efnastjóri og Þórdís Sævarsdóttir
grunnskólakennari.
Níu sóttu
um stöðu
skólastjóra
Grunnskóla
Grindavíkur
FRÉTTAVAKT
VÍKURFRÉTTA 898 2222
8 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár