Víkurfréttir - 27.05.2021, Side 16
Sjólyst, söguhús Unu í Garði, verður formlega opnað gestum
sunnudaginn 30. maí eftir gagngerar endurbætur. Húsið
verður opið frá klukkan 14:00 til 16:00. Á dagskrá verða meðal
annars ávörp og tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Garði.
Boðið verður upp á veitingar og húsið sýnt.
Húsið Sjólyst var byggt árið 1890
og seinna var byggt við það. Sjólyst
þarfnaðist mikilla endurbóta þegar
Hollvinafélag Unu Guðmundsdóttur
í Garði tók við húsinu en eigandi
þess er Suðurnesjabær.
Eitt af markmiðum félagsins var
að styðja við sveitarfélagið í þeim
framkvæmdum sem framundan
voru. Það hefur Hollvinafélagið gert
og margir lagt verkefninu lið. Holl-
vinafélagið sótti um styrki til verk-
efnisins, ber þar helst að nefna Hús-
friðunarsjóð og Uppbyggingarsjóð
Suðurnesja. Fá þeir miklar þakkir
fyrir veittan stuðning sem og aðrir
sem stutt hafa við félagið með fram-
lögum eða sjálfboðavinnu.
Þann 18. nóvember 2020, á
fæðingardegi Unu, var húsið til-
búið. Stjórn Hollvinafélagsins hefur
síðan lagt mikla vinnu í að búa húsið
munum sem gefnir hafa verið eða
tilheyrðu Unu á sínum tíma. Vegna
sóttvarnareglna var ekki hægt að
sýna húsið fyrr.
Afar vel hefur tekist til með end-
urgerð hússins sem er friðað. Smiðir
verksins eru þeir Ásgeir Kjartansson
og Bjarki Ásgeirsson. Arkitekt er
Magnús Skúlason. Fá þeir miklar
þakkir fyrir vel unnin störf sem og
allir aðrir sem að verkinu komu.
Suðurnesjabær fær ennfremur
þakkir fyrir samstarfið og traustið í
þessu verkefni.
Í sumar verður Sjólyst opin fyrir
gesti um helgar frá klukkan 14:00 til
16:00 Heitt verður á könnunni og
sagan rifjuð upp.
Stjórn Hollvinafélags
Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst
Duus Safnahús og Listasafn Reykjanesbæjar vilja bjóða til
samstarfs í sumar við fólk sem ástundar myndlist. Hugmyndin
er að bjóða Bíósal undir tvær myndlistarsýningar annars vegar
frá 12. júní til 11. júlí og hins vegar frá 17. júlí til 22. ágúst.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja
um sýningarpláss. Með umsókn
þarf að fylgja greinargóð lýsing á
þeirri sýningu sem fyrirhuguð er
og ljósmynd með sýnishorni af
þeim verkum sem til stendur að
sýna. Margs konar listform kemur
til greina svo sem málverk, grafík,
teikningar, ljósmyndir, skúlptúrar
o.fl. Ekki er þó gert ráð fyrir raf-
rænni miðlun að þessu sinni. Notast
verður við sýningakerfi Bíósalar
sem eru brautir með nælonþráðum.
Ekki er heimilt að negla í veggi. Val
á sýnendum er í höndum Listasafns
Reykjanesbæjar.
Sýnendur bera sjálfir ábyrgð á
sýningunni og sjá um uppsetningu
með aðstoð frá Listasafni Reykjanes-
bæjar. Sýnendur fylgja þeim reglum
sem gilda um starfsemi í Duus Safna-
húsum. Listasafnið áskilur sér rétt til
að velja úr verkum sýnenda í sam-
starfi við þá.
Allir sem stunda myndlist af ein-
hverju tagi geta sótt um en þeir sem
ekki hafa sýnt í húsunum áður hafa
forgang. Hópar geta einnig tekið sig
saman og sótt um í einu nafni. Þá er
yngra fólk einnig sérstaklega hvatt
til að sækja um.
Umsóknir skulu sendar í tölvu-
pósti á netfangið duushus@reykja-
nesbaer.is í síðasta lagi 1. júní. Í efn-
islínu (subject) skal skrifa: Sumar-
sýning í Bíósal.
Með umsókn skal fylgja: Grein-
argóð lýsing á fyrirhugaðri sýningu,
svo sem hvernig verk, fjöldi, stærð,
efnisinntak o.s.frv. Ljósmynd/ljós-
myndir með sýnishorni af verkum.
Ferilskrá umsækjanda.
Má bjóða þér að sýna í Duus Safnahúsum?
Formleg opnun á
Sjólyst á sunnudag
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Börn í Reykjanesbæ berjast
fyrir eigin réttindum
Húsið Sjólyst var byggt árið 1890 og seinna var byggt við það. Sjólyst
þarfnaðist mikilla endurbóta þegar Hollvinafélag Unu Guðmundsdóttur
í Garði tók við húsinu en eigandi þess er Suðurnesjabær.
Blómamarkaður Lionsklúbbsins
Æsu verður við Ytri-Njarðvíkur-
kirkju dagana 1.– 3. júní 2021. Opið
frá klukkan 16:00 til 19:00. Heitt
verður á könnunni alla dagana.
Ágóði blómasölunnar rennur
óskiptur til líknarmála.
Lionsklúbburinn Æsa hefur styrkt
ýmis málefni og fært gjafir á starfs-
árinu. Nýjasta verkefnið var að færa
Ytri-Njarðvíkurkirkju bekk sem
gestir og gangandi geta hvílt lúin
bein og notið. Þetta er sjötta árið
sem blómamarkaðurinn er í höndum
Æsu.
Það er mikil tilhlökkun hjá Æsu-
konum að taka á móti Suðurnesja-
mönnum sem eru í sumarblómahug-
leiðingum.
Föstudagskvöldið 28. maí
verður Bílabíó á bílaplaninu
neðan við verslunina Kóda á
Hafnargötu klukkan 21:00. Þar
verður Suðurnesjamönnum
boðið frítt á sýningu myndar-
innar „Með allt á hreinu“ sem
ætti að vera mörgum tónlist-
aráhugamanninum hugleikin.
Með allt á hreinu er löngu orðin
sígild mynd í hugum Íslendinga og
alltaf gaman að sjá myndina aftur.
Það eru frambjóðendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins sem bjóða Suð-
urnesjamönnum upp á frítt bílabíó
og eru allir hvattir til að mæta á
sínum einkabílum. Myndin verður
sýnd á led-skjá svo birta hefur engin
áhrif á myndgæðin og síðan er hljóð
myndarinnar sent út á FM tíðni
og hlusta bíógestir á tal og tónlist
myndarinnar hver í sínum bíl.
Allir hjartanlega velkomnir.
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
MEÐ ALLT Á HREINU
Bílabíó í Keflavík
á föstudagskvöld
Blómamarkaður
við Ytri-Njarð-
víkurkirkju
16 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár