Víkurfréttir - 27.05.2021, Side 19
Verð : Tilboð
Jörðin Stóri-Hólmur
er staðsett við hliðina
á 18 holu golfvelli (Leiran)
• Jörðin er skráð 4,7 hektari og
hefur verið notuð fyrir lítinn
æfingavöll, stuttan par 3 völl.
• Húsið sem stendur á lóðinni
er ónýtt.
• Sögulegar minjar.
• Fallegt útsýni.
• Frábær staðsetning á
Reykjanes skaganum.
Stóri Hólmur
251 Garður
569 7000 | Lágmúla 4 | miklaborg.is
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar
FÁIÐ UPPLÝSINGAR
hjá Jason í síma 775 1515
Nánari upplýsingar veitir:
Jason Kr. Ólafsson
lögg. fasteignasali
sími: 775 1515
jko@miklaborg.is
„Við höfum ákveðið að láta betur í
okkur heyra á næstu mánuðum þar
sem það var ekki hægt að gera mikið
á afmælisárinu 2020 en þá fögnuðu
samtökin áratugsafmæli,“ segir Guð-
mundur Pétursson, formaður SAR,
Samtaka atvinnurekenda á Reykja-
nesi en fyrsti stjórnarfundur sam-
takanna eftir aðalfund var haldinn
í síðustu viku.
Ný fyrirtæki hafa gengið til liðs við
samtökin en eins og kom fram í við-
tali við Guðmund í síðasta tölublaði
er eitt af markmiðum SAR að tengja
saman fyrirtæki og atvinnurekendur
á Reykjanesi, efla tengsl þeirra. „Við
erum ekki hagsmunasamtök líkt
og stéttafélög heldur er öll áhersla
lögð á að fylgja eftir ýmsum mál-
efnum sem tengjast atvinnulífinu á
svæðinu,“ segir Guðmundur.
Á stjórnarfundinum var greint frá
samstarfi SAR og Víkurfrétta sem
felst í kynningu á starfi samtakanna.
SAR mun verða með reglulega fundi
frá og með næsta hausti þar sem for-
svarsfólk fyrirtækja á svæðinu mun
koma og kynna starfsemi sína.
Á fundinum var samþykkt að taka
undir áskorun Bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar um nýja heilsugæslustöð á
Suðurnesjum.
„Ætlum að láta
betur í okkur heyra“
Frá stjórnarfundi í SAR.
Guðmundur Pétursson, formaður Samtaka
atvinnurekenda á Reykjanesi.
Rekstur Sveitarfélagsins Voga var
erfiður á síðast ári. Gjöld umfram
tekjur voru rúmar 170 milljónir
króna, sem er afar slæm útkoma,
segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í
Vogum. Hann segir að margt skýri
erfiða afkomu síðasta árs. Laun og
launatengd gjöld fóru talsvert fram
úr áætlun á árinu og eru nú orðin um
65% af útgjöldum sveitarfélagsins.
„Æskilegt er að ná þessu hlutfalli
niður í a.m.k. 55% og er nú unnið
hörðum höndum í að leita leiða til að
hagræða þannig í rekstrinum að svo
geti orðið. Tekjuhliðin fór betur en á
horfðist á árinu en þó er vert að geta
þess að fjárhæð tekjujöfnunarfram-
lags dróst verulega saman á milli ára,
sem að mestu má rekja til innbyrðis
tilfærslu milli sveitarfélaga,“ segir
Ásgeir í pistli sem hann skrifaði í lok
síðustu viku.
Bæjarstjórn hélt aukafund þann
11. maí síðastliðinn, þar sem eina
verkefni fundarins var umfjöllun
um ársreikning sveitarfélagsins
árið 2020. Síðari umræða í bæjar-
stjórn um ársreikninginn var mið-
vikudaginn 26. maí en niðurstaða
fundarins var ekki ljós þegar blaðið
fór í prentun.
Laun
orðin um
65% af
útgjöldum
Voga
Forsetahjónin Elíza og Guðni Jóhannesson
kynntu sér starfsemi Lögreglunnar á Suður-
nesjum sem fram fer í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Hjónin hittu starfsmenn lögreglunnar
sem eru um áttatíu í flugstöðinni og sinna þar
ýmsum störfum, m.a. landamæraeftirliti, smit-
rakningum og fleiru tengdu Covid-19, vegabréfa-
rannsóknum og fleiru. Fjömörg ný verkefni urðu
til í heimsfaraldri og þakkaði forseti Íslands
starfsfólki lögreglunnar fyrir þeirra mikilvægu
störf. Víkurfréttir voru með í för og í Suður-
nesjamagasíni vikunnar sýnum við frá þessari
heimsókn forsetahjónanna til lögreglunnar í
flugstöðinni. Víkurfréttir hittu líka veitinga-
konuna Höllu Svansdóttur úr Grindavík og fengu
söguna af því hvernig var að opna veitingastað í
flugstöðinni rétt fyrir mörg áföll sem hafa dunið
yfir síðustu tvö árin, með falli Wow air, vand-
ræða vegna Max flugvélanna og heimsfaraldurs.
Veitingastaðurinn hefur verið lokaður í rúmt ár.
Á myndinni eru forsetahjónin á göngu um flug-
stöðina með forsvarsmönnum Lögreglunnar á
Suðurnesjum. VF-mynd: pket
Forsetahjónin heimsóttu flugstöðvarlögguna
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 19