Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2021, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 27.05.2021, Qupperneq 20
Settu saman vinningslið! Þessa dagana drífur fólk að til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi. Ég hvet íbúa á Suðurnesjum til að taka þátt í að móta lista sem getur náð góðum árangri í kosningum til Al- þingis í haust. Öflugt lið fólks sem getur unnið saman að frekari upp- byggingu betra samfélags, hjálpað íbúum Suðurkjördæmis að nýta þau tækifæri sem gefast í kjördæminu og lagt grunninn að bjartri framtíð unga fólksins okkar. Ég hef á undanförnum vikum lagt áherslu á mikilvægi þess að einfalda rekstrarumhverfi fyrirtækja, bæði til að styrkja rekstrargrundvöll þeirra en ekki síður til að veita ungu fólki tækifæri á að spreyta sig á markaði þar sem því er gert kleift að njóta ávaxta dugnaðar síns og hugmynda- auðgi. Ekkert nema það besta Þá legg ég mikið upp úr því að fólk sjái sér hag í því að búa utan höfuð- borgarsvæðisins en þá verða þættir eins og samgöngur og heilbrigðismál að vera í lagi. Það gengur ekki að ör- yggi fólks sé sett í annað sætið hvað rekstur skurðstofa og fæðingar- hjálpar varðar. Auðvitað á fólk að geta gengið að fyrsta flokks þjónustu í heilbrigðismálum á sínu svæði, og þá ber að líta til þess að fleiri geti tekið þátt í að veita þá þjónustu, þótt kostnaður sé greiddur af opinberum aðilum. Læknar og hjúkrunarfólk vill líka ólmt búa á landsbyggðinni eins og við hin. Það eru til lausnir Umhverfismál ber að taka alvarlega og úrlausnir í þeim efnum er hægt að sækja í smiðju hins frjálsa mark- aðar, rétt eins og við erum að verða vitni að í bindingu kolefna og betri nýtingu orku í tengslum við ýmsar tækniframfarir. Við þurfum því alls ekki að binda okkur í kláfa risastórra ríkisbattería líkt og lagt hefur verið upp með í tengslum við miðhálendis- þjóðgarð. Valdið og valið í því máli á heima hjá fólkinu í landinu og skipu- lagsmálin hjá sveitarfélögunum. Ég horfi til aukinnar þekkingar á sviði meginatvinnugreina Íslendinga, svo sem í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og landbúnaði. Með þekkingu og þróun verða þessar stoðir íslensks hagkerfis grunnur að uppbyggingu í nýsköpun og eflingu hátækniiðnaðar. Þitt er valið Þetta er aðeins fátt eitt af því sem þarf að gera betur þegar málefni kjördæmisins okkar eru annars vegar. Sterkur og fjölbreyttur hópur þingmanna á að vera íbúum kjör- dæmisins til aðstoðar til að bæta hag okkar allra. Ég er til þjónustu reiðubúinn, hef til þess þekkingu og brennandi áhuga. Því bið ég þig um stuðning í þriðja sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna á laugardag. Björgvin Jóhannesson Höfundur býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi á laugardag. Á staðnum með fólkinu Næstkomandi laugardag, 29. maí, verður prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Það er mikilvægt að sjálfstæðismenn og stuðnings- menn flokksins og frambjóðenda fjölmenni í prófkjörið og geri það eins glæsilegt og kostur er. Hópur frambjóðenda sem endurspeglar fjölbreytileika kjördæmisins, ungir og reyndir, konur og karlar, er í fram- boði. Fólk sem er tilbúið að leiða lista Sjálfstæðisflokksins til stórsigurs í næstu Alþingiskosningum 25. sept- ember næstkomandi. Eins og í þingmannsstarfinu hef ég lagt mig fram um að tengjast fram- bjóðendum í prófkjörinu eins og ég hef tengst íbúum í Suðurkjördæmi þau níu ár sem ég hef setið á þingi. Ég býð mig fram í 2. sætið á list- anum. Ég mun áfram standa á mínu og vera óhræddur að segja mína skoðun. Það eru margir mér þakk- látir fyrir að hafa verið eini þing- maðurinn sem var á móti þátttöku Íslands í viðskiptabanni á Rússland og hafði alvarlegar afleiðingar fyrir útflutning á lambakjöti og fiski til Rússlands. Fyrir að hafa greitt at- kvæði á móti Orkupakka III, staðið vaktina í málefnum hælisleitenda og sagt eitt stórt NEI við Miðhálendis- þjóðgarði og þora að segja það sem aðrir þora ekki. Á Alþingi hef ég látið atvinnu og velferðarmál mig mestu varða. Mín pólitíska sýn birtist í grund- vallargildum Sjálfstæðisflokksins, frelsi einstaklingsins og stétt með stétt. Með auknu frelsi er það líka mikilvægt hlutverk okkar að verja þá sem minna mega sín, fíkla og sjúka. Aðgengi fyrir alla að heil- brigðisþjónustu, fæðingarþjónustu og sjálfsákvörð- unarrétt fjölskyld- unnar hvar sem er á landinu til að hafa val um heilsu- gæsluþjónustu. Öflugt atvinnulíf og fjölbreytt vel launuð störf eru forsenda fyrir góðri afkomu heimilanna. Lágir skattar og álögur eru því forsenda blómlegs at- vinnulífs og aukins kaupmáttar. Full- veldi landsins byggir á yfirráðum yfir auðlindum þess og við stöndum vörð um afkomu bænda og veljum Íslenskt. Ég óska því eftir stuðningi ykkar í 2. sætið og ég verð áfram á staðnum fyrir fólkið. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður. Matur Heimurinn er á krossgötum. Með nú- verandi aðferðum við matvælafram- leiðslu er gengið of nærri mörgum helstu auðlindum okkar. Nýtingin er ekki sjálfbær á heimsvísu. Því hefur verið spáð að á næstu 40 árum þurfi mannkynið að framleiða jafnmikið af mat og það hefur gert seinustu 8.000 árin. Á sama tíma er þekkt að matvælavinnsla er ábyrg fyrir losun um 30% af gróðurhúsalofttegundum (allir einkabílar í heiminum losa um 2%). Við Íslendingar, með okkar miklu hreinu auðlindir, eigum ekki bara tækifæri hvað þetta varðar, okkur ber hreinlega skylda að stíga fast fram. Ísland hefur í gegnum tíðina haft sterka stöðu hvað varðar mat- vælaframleiðslu. Þar skipta sjávar- útvegur og landbúnaður miklu enda standa þær greinar undir 7% af vergri landsframleiðslu sem er næstum helmingi yfir heimsmeðal- tali. Þrátt fyrir það höfum við dregist langt aftur úr hinum Norðurlanda- þjóðunum hvað varðar sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Við flytjum of stóran hluta þess, sem við neytum, inn með tilheyrandi tjóni fyrir um- hverfið. Við ættum að vera að út- flutningsþjóð en erum innflutnings- þjóð. Á yfirstandandi kjörtímabili hafa ákveðin skref verið stigin. Matvæla- stefnan, sem kynnt var í lok síðasta árs, er mikilvægt stefnumótandi plagg. Framganga íslenska sjávar- klasans er þannig að eftir er tekið og víða eigum við fyrirtæki og mannvit sem um munar. Fiskeldi hefur styrkt stöðu sína, sjávarútvegur okkar er einn sá sterkasti í heimi og mjólkur- geirinn hefur hafið sókn í útflutningi bæði á hrávöru og hugviti. Garðyrkja stendur víða sterk og framþróun í kjötframleiðslu hefur tekið kipp. Hvarvetna má sjá sprotana. Meira þarf þó til, eigi árangur að nást. Ábyrgð stjórnvalda er hér rík. Kjörnir fulltrúar þurfa að skapa þessari mikilvægu grein tækifæri til vaxtar í stað þess að þvælast fyrir góðum verkum með íþyngjandi regluverki og álögum. Græn orka fallvatna og jarðvarma skapar okkur sem þjóð einstaka stöðu. Við þurfum að ganga langtum lengra í virkjunum til matvælaframleiðslu, verðlag á orku þarf að vera með þeim hætti að virðisaukinn með fullvinnslu sé mögulegur og framleiðendur þurfa að fá orkuna til sín. Við þurfum samhliða að byrja að líta á matvæla- framleiðslu sem hátækni- og nýsköp- unargrein sem kallar á vel menntað vinnuafl og þekkingu. Fjölga þarf fyr- irtækjum, efla hringrásarhagkerfið og fullnýtingu náttúruauðlinda með skattalegum hvata. Við eigum mörg spor ógengin á þessari leið en hvert spor er okkur mikilvægt og mun skila okkur ávinningi. Fá, ef einhver, svæði eiga meiri tækifæri á sviði matvælaframleiðslu en Suðurkjördæmi. Landbúnaður er þar einstaklega sterkur, mörg stærstu og öflugustu sjávarútvegs- fyrirtækin eru þar. Þekkingin, mann- auðurinn og auðlindirnar eru hvar- vetna í þessu magnaða kjördæmi. Hvergi á landinu er meiri nýtan- legur jarðvarmi, hvergi er aðgengið að fersku vatni meira, landrýmið er mikið, útflutningshafnir einstakar, alþjóðaflugvöllur og lengi má áfram telja. Ég býð mig fram í prófkjöri Sjálf- stæðismanna, meðal annars með það að leiðarljósi að leggja lóð á þá vogarskál að Suðurkjördæmi og Ís- land allt verði leiðandi aðili í fram- leiðslu á umhverfisvænum mat- vælum. Við vitum af tækifærunum og nú er komið að aðgerðum. Jarl Sigurgeirsson, 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ég á erindi við þig Komið er að því að sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi velji frambjóðendur sína til Alþingis í kosningunum í haust . Nú er tækifæri til að skipa nýja forystusveit með konu fremsta meðal jafningja. Ég hvet flokksfólk til að taka þátt í prófkjörinu á laugar- daginn kemur, 29. maí, og vænti stuðnings til að skipa fyrsta sætið á væntanlegum D-lista í kjördæminu. Þetta tækifæri nota ég jafnframt til að þakka fyrir viðtökur, samtöl og kynni af fólki og fyrirtækjum í Suðurkjördæmi undanfarna daga og vikur. Ég er bæði þakklát og auð- mjúk yfir hlýju viðmóti og meðbyr sem ég skynja að framboð mitt hafi í prófkjörinu og oddvitasæti fram- boðslistans þannig skipað í fram- haldinu. Við blasa brýn og stór verkefni á ýmsum sviðum í kjördæminu og ekki annað í boði en að takast á við þau. Í hluta kjördæmisins er hlutfall at- vinnulausra það hæsta sem mælist á Íslandi og skrifast að stórum hluta á veirufaraldurinn. Vonir standa hins vegar til að þar sé loksins tekið að birta og að ferðaþjónustan taki við sér með tilheyrandi áhrifum á at- vinnulífið og efnahagslífið. Heilbrigðismál og aðbúnaður aldraðra er sömuleiðis á margra vörum í kjördæminu og skyldi nú engan undra. Eyjamenn spyrja sig til að mynda hvort stjórnvöld hafi gert það ástand viðvarandi að konur þurfi að fara upp á meginlandið til að fæða börn sín með tilheyrandi raski og útgjöldum fyrir fjölskyld- urnar? Ástandið á Suðurnesjum er kapítuli út af fyrir sig og óboðlegt með öllu. Í Suðurnesjabæ er hvorki heilsugæslustöð né hjúkrunarheimili, í samfélagi um 3.600 íbúa! Á Suður- nesjum eru þúsundir manna skráðir á heilsugæslustöðvum á höfuð- borgarsvæðinu af því eina heilsu- gæslustöðin í heimabyggð annar ekki nema hluta af þjónustu sem íbúarnir ætlast til að þeir fái og hafa rétt á. Tvennt hef ég verið spurð um nær alls staðar á ferðum mínum um kjördæmið og því sé ég ástæðu til að svara því líka hér og nú. Önnur spurningin varðar aðild að Evrópu- sambandinu. Ég er á móti inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið og tel ekki að það fari með hagsmunum Íslands. Hin spurningin lýtur að Mið- hálendisþjóðgarði. Ég er ekki hlynnt þeim hugmyndum um risastóran Miðhálendisþjóðgarð eins og lagt er upp með í frumvarpi umhverfisráð- herra. Ég er stolt af því að tilheyra Suðurkjördæmi og býð mig fram til þjónustu fyrir það og íbúa þess með framboði til forystusætis á fram- boðslista Sjálfstæðismanna. Ég brenn fyrir öflugu Suðurkjör- dæmi – öflugu Íslandi! Guðrún Hafsteinsdóttir Höfundur er frambjóðandi í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Kjósum mann sem vill styrkja atvinnulíf og fjölga tækifærum á Suðurnesjum Suðurkjördæmi er lengsta kjördæmi landsins og fjölbreytilegt eftir því. Þar er fjölbreytt at- vinnulíf og flestir af vinsælustu ferðamanna- stöðum landsins. Þrátt fyrir ólíkar aðstæður þá eru margir sameiginlegir fletir og klárlega er það vilji okkar að fá gott fólk á þing. Ásmundur Friðriksson býður sig fram í 2. sæti á lista í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar. Það eru góðar fréttir fyrir kjördæmið í heild sinni. Það hefur ekki farið framhjá neinum sá mikli dugnaður sem Ásmundur hefur sýnt þau átta ár sem hann hefur setið á þingi. Hvort sem það er með heimsóknum, stuðningi við hin ýmsu málefni, aðstoð við einstaklinga og fyrirtæki eða þor við að tjá sig um hin ýmsu málefni. Það er okkur mikil gæfa að hafa slíkann mann inni á þingi og í raun ætti hann að vera öðrum til eftir- breytni. Hann hefur verið ötull talsmaður fyrir Suður- nesin og veit ég að hann mun halda áfram á þeirri góðu braut. Með baráttu fyrir betri heilbrigðisþjón- ustu, uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli, Helguvík og í samgöngum. Ég hef þekkt Ása í dágóðan tíma og það áður en hann settist á þing. Þann tíma er ég þakklátur fyrir, því þar hef ég fengið að sjá mann sem vill hjálpa til og gefur mikið af sér. Ekki bara fyrir nærumhverfið, heldur eins víða og hann getur. Það eru ekki bara þær góðgerðarsamkomur sem hann hefur komið að því að skipuleggja eða störf hans fyrir ákveðin samtök sem ylja manni um hjartarætur. heldur hvernig hann tekur á móti öllum sem til hans leita. Ásmundur er mannlegur og hefur gert sinn skammt af mistökum um ævina, rétt eins og aðrir. Hann vann sig í gegnum sína erfiðleika með dugnaði og góðri fjölskyldu og hefur gefið mikið af sér í framhaldi. Ég veit um mörg dæmi þar sem hann hefur aðstoðað fólk sem til hans hefur leitað með ýmis málefni. Jafnvel í prófkjör- sbaráttu gefur hann sér tíma til að aðstoða meðfram- bjóðendur sína og leggja sitt af mörkum til að skapa góða liðsheild í prófkjörinu. Það hefur verið gaman að fylgjast með störfum Ás- mundar á þingi og það gladdi mjög að heyra að hann ætlaði að halda áfram. Hann talar ekki bara um hlutina heldur leggur hann fram tillögur í atvinnumálum og er talsmaður öflugs atvinnulífs. Þá lætur hann verkin tala fyrir sköpun nýrra atvinnutækifæra með því að leggja fram frumvarp um framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnes- jalínu 2. Sem er forsenda framfara í atvinnumálum og öryggi í raforkuafhendingu fyrir Suðurnes og íbúa hér. Það væri okkur mikil gæfa að fá að njóta starfa hans áfram á komandi þingi, en það gerist eingöngu ef fólk mætir á kjörstað og kýs Ásmund Friðriksson í 2. sæti. Eiður Ævarsson 20 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.