Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2021, Side 21

Víkurfréttir - 27.05.2021, Side 21
Látum verkin tala Núna fer að líða að kjördegi í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Ég er í framboði og tel mig hafa sýnt það í verki að mér er annt um svæðið og tel mig geta nýtt krafta mína á Alþingi Íslendinga, með ykkar umboði. Þið þekkið mig eflaust flest í gegnum Stopp hingað og ekki lengra en við stofnuðum þann hóp til að berjast fyrir tvöföldun Reykja- nesbrautarinnar. Í dag er hópurinn ennþá mjög virkur og með 17.000 fylgjendur. Þar erum við enn að berjast fyrir ýmsum hagsmuna- málum okkar Suðurnesjamanna eins og t.d. að klára tvöföldun á Reykja- nesbrautinni, leggja Suðurnesjalínu 2 og viljum betri heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum. Við Elsa þekkjum það af eigin raun hversu erfitt það er að vera ekki með öfluga heilbrigðisþjónustu. Til dæmis þegar tvær dætur okkar fæddust þurftum við að keyra með látum til Reykjavíkur vegna þess að fæðingardeildin var í sumarfríi eða skurðstofan lokuð. Þetta er bara eitt dæmi um upplifun okkar Suður- nesjamanna af heilbrigðis- þjónustunni. Það er ekki boðlegt að mörg þúsund Suðurnesjamanna skuli sjá sig knúna til að skrá sig á heilsugæslur í Reykjavík. Við þurfum aðra heilsu- gæslu núna! Allir geta tekið þátt í prófkjörinu hjá Sjálfstæðisflokknum sem er á laugardaginn næstkomandi. Ég bið um ykkar stuðning og hvet ykkur öll til að taka þátt í prófkjörinu og hafa áhrif á það hverjir eru fulltrúar okkar svæðis. Látum verkin tala! Guðbergur Reynisson Höfundur er frambjóðandi í þriðja sæti í prófkjöri sjálfstæðis- manna í Suðurkjördæmi. Vilhjálm Árnason í fyrsta sætið! Vilhjálmur Árnason, alþingis- maður og varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gefur nú kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi al- þingiskosningar. Vilhjálmur er heiðarlegur og hæfur stjórnmálamaður með öfluga framtíðarsýn á mörgum sviðum. Hann hefur þann kost að geta unnið með fólki úr öllum flokkum. Honum er treyst í pólitíkinni, ekki eingöngu af samflokksfólki sínu heldur þvert á allt litróf stjórnmálanna. Slíkur kostur er afar mikilvægur en því miður föru- nautur fárra er starfa í pólitík. Eftir hverju erum við að leita þegar horft er til framtíðarleið- toga? Viljum við ekki öðruvísi leiðtoga í dag? Ungan leiðtoga sem skilur og skynjar tækifærin sem eru framundan en jafnframt leiðtoga sem ber sér ekki á brjóst né lætur hátt til að ná markmiðum sínum fram. Leiðtogi sem starfar af dugnaði á bak við tjöldin, skapar og finnur leiðir, hnikar málum áfram og endanum skilar góðu dagsverki í hús, þannig pólitíkus er Vilhjálmur, sannur alla leið. Vilhjálmur er búinn að sanka að sér ómetanlegri reynslu og þekkingu á gangverki Alþingis og öðrum ríkisstofnunum. Það má ekki kasta slíkri þekkingu á glæ, hvað þá í tilfelli hæfra einstaklinga sem enn eru ungir að árum. Ekki er síður mikilvægt að leiðtogi okkar sjálfstæðismanna í kjördæminu hafi traust kjósenda sem og for- ystunnar sem ég veit að Vilhjálmur hefur áunnið sér með störfum sínum á Alþingi síðastliðin níu ár. Vilhjálmur er gríðarlega vel að sér um málefni kjördæmisins og má þar nefna til sögunnar nokkur mál er varða okkur Suðurnesjamenn. Hugmyndir Vilhjálms um fram- kvæmdir og breytingar á heilsu- gæslusviði eru mjög spennandi en hann heimsótti fyrir skemmstu fyrirtækið okkar IceMar ehf. í Reykjanesbæ og fangaði athygli allra á vinnustaðnum með fram- setningu sinni á þeim baráttu- málum sem hann stendur fyrir. Ef þær leiðir sem Vilhjálmur hefur unnið að á síðustu misserum verða fetaðar þá mun vandamál á heilsu- gæslusviði að mínu mati heyra sögunni til hér Suðurnesjum. Það þarf skýra framtíðarsýn í svona stór mál, virkja þarfa krafta fagaðila frá bæði hinu opinbera sem og einkageiranum svo hægt verði að tryggja framúrskarandi þjónustu fyrir alla íbúa á svæðinu. Við Suðurnesjamenn viljum bætta þjónustu og er Vilhjálmur maðurinn í verkið. Hann hefur verið framsögumaður sjálfstæðis- manna á Alþingi í stórum málum er snúa að tvöföldun Reykjanes- brautarinnar, nýja skjólgarðinum í Njarðvík fyrir Skipasmíðastöðina, framkvæmdir í höfnum innan svæðisins o.s.frv. Það er enginn að mínu viti sem þekkir málefnin og verkefnin á Suðurnesjum eins vel og hann. Vilhjálmur hefur skýra fram- tíðarsýn um hvernig Suðurnesin geta endurheimt virðingu sína og er áberandi hæfur til að taka að sér ráðherraembætti. Hann hefur allan pakkann eins og við segjum stundum um fjölhæfa körfubolta- menn sem geta náð langt. Eftir að hafa starfað hnökralaust í níu ár sem alþingismaður og þar af í nokkur ár sem varaformaður þingflokks sjálfstæðismanna, þá get ég með vissu sagt – Vilhjálmur er tilbúinn og hann mun ég kjósa í fyrsta sætið. Gunnar Örlygsson Höfundur er fyrrverandi al- þingismaður og framkvæmdastjóri IceMar ehf. í Reykjanesbæ. Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu sýslu- manns, Vatnsnesvegi 33, Keflavík, sem hér segir: BJÖRGVIN, GK, Gullbringusýsla, (FISKISKIP), fnr. 2209, þingl. eig. Útgerðarfélagið Dolli ehf., gerðar- beiðandi Arion banki hf., þriðju- daginn 1. júní nk. kl. 09:00. Framhald uppboðs á eftirfar- andi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Bogabraut 18, Sandgerði, fnr. 228-7281, þingl. eig. Sunna Rós Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Guðrún Ólafsdóttir Boyd, þriðju- daginn 1. júní nk. kl. 09:30. Þórustígur 32, Njarðvík, fnr. 209- 4225, þingl. eig. Didzis Gaters, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og TM hf., þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:00. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0531, þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðandi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:20. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0532, þingl. eig. Vatnsnes- vegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skatturinn, þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:23. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0533, þingl. eig. Vatnsnes- vegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skatturinn, þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:26. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0534, þingl. eig. Vatnsnes- vegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skatturinn, þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:29. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0535, þingl. eig. Vatnsnes- vegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Vörður trygg- ingar hf. og Húsnæðis- og mann- virkjastofnun, þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:32. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0536, þingl. eig. Vatnsnes- vegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 1. júní nk. kl. 10:35. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 25. maí 2021 uPPbOÐ Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu Orlofsnefnd húsmæðra í Gullbringu- og Kjósarsýslu hefur opnað heimasíðu, slóðin er: orlofksgk.wordpress.com, þar sem fyrirhugaðar ferðir verða auglýstar. Einnig verða settar inn fréttir o.þ.h. Þær konur sem ekki hafa tölvuaðgang, eru hvattar til að leita aðstoðar hjá vinum og vandamönnum eða kanna með aðgang að tölvum á bókasöfnum. Skjáskot af vef Orlofsnefndar húsmæðra í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Sumarátak námsmanna - Safnfulltrúi Sumarátak námsmanna - Verkamenn í garðyrkju Velferðarsvið – Stuðningsfjölskyldur Háaleitisskóli – Starfsfólk skóla Heiðarsel – Deildarstjóri Fræðslusvið – Sálfræðingur Velferðarsvið – Forstöðumaður á heimili fatlaðra Velferðarsvið – Félagsráðgjafi í fjölskylduþjónustu Myllubakkaskóli – Þroskaþjálfi Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Viltu halda sýningu í Duus safnahúsum? Duus Safnahús og Listasafn Reykjanesbæjar vilja bjóða til samstarfs í sumar við fólk sem ástundar myndlist. Hugmyndin er að bjóða Bíósal undir tvær myndlistarsýningar. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sýningarpláss.Umsóknarfrestur til 1. júní. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningum á vef Reykjanesbæjar SKil á aÐSENdu EFNi Greinar og annað aðsent efni sem óskað er að birt- ist í Víkurfréttum þarf að hafa borist ritstjórn fyrir hádegi mánudags á netfangið vf@vf.is VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 21

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.