Víkurfréttir - 27.05.2021, Qupperneq 23
Deiliskipulag
í Reykjanesbæ
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010 er hér með auglýst eftirfarandi
tillögu að breytingu á skipulagi:
Kirkjuvegur 8
Breyting á deiliskipulagi svæði A (gamli bærinn),
kirkjuvegur 8, Reykjanesbær. Breytingin felst í
að lóðinni Kirkjuvegi 8 er skipt upp í tvær lóðir
undir húsin sem nú standa við Hafnargötu 22 og
24 Reykjanesbæ í samræmi við uppdrátt JeES
arkitekta dags. 14.04.2021.
Tillögurnar eru til sýnis á skrifstofu
Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og
aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar
frá og með 27. maí 2021 til 12. júlí 2021. Þeim
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér
með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við tillögurnar. Frestur til að skila inn
athugasemdum er til 12. júlí 2021.
Skila skal inn skriflegum athugasemdum
á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu
12 Reykjanesbæ eða á netfangið
gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is
Reykjanesbær, 26. maí 2021.
Skipulagsfulltrúi.
Minningarsjóði Ölla bárust góðar
gjafir á fertugasta afmælisdegi Ölla
Minningarsjóði Ölla bárust góðar
gjafir síðasta föstudag, á afmælisdegi
Örlygs Arons, en Ölli, eins og hann
var kallaður, hefði orðið fertugur
þann dag hefði hann lifað.
Nýstofnaður samfélagssjóður HS
Orku færði sjóðnum eina milljón
króna og er þetta fyrsta styrk-
veiting þess sjóðs. Með styrknum
vill HS Orka leggja sitt af mörkum
til íþróttaiðkunar barna og heiðra
það góða starf sem sjóðurinn hefur
unnið fyrir börn undanfarin ár. Það
var samfélagsráð HS Orku sem af-
henti styrkinn með þau Sigurð
Markús Grétarsson, Petru Lind Ein-
arsdóttur og Jóhann Snorra Sigur-
bergsson í farabroddi.
Eigendur Icemar, þau Gunnar
Örlygsson, frændi Ölla, og Guðrún
Hildur Jóhannsdóttir, færðu sjóðnum
einnig eina milljón króna. Með gjöf-
inni vilja þau leggja sitt af mörkum
til að styrkja börn til íþróttaiðkunar
sem ekki eiga kost á því vegna bágrar
fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónar-
manna og um leið heiðra minningu
Ölla sem gaf mikið af sér til allra sem
voru honum samferða á hans stutta
lífsskeiði. Erna Agnarsdóttir, amma
Ölla, og Guðrún Hildur Jóhannsdóttir,
eigandi Icemar, afhentu gjöfina.
Það hefur skapast hefð fyrir því
hjá Minningarsjóði Ölla að börn taki
á móti gjöfum til sjóðsins enda eru
það börn sem njóta góðs af. Í þetta
sinn tóku þau Kristín Arna Gunn-
arsdóttir, Stefán Logi Agnarsson,
Berglind Rún Sigurðardóttir, Jó-
hanna Valdís Branger og Oddur
Óðinn Birgisson við gjöfunum sem
sérstakir sendifulltrúar sjóðsins. Þau
eru öll frændsystkini Ölla og tóku
stolt á móti þessum veglegu gjöfum,
sem eiga án vafa eftir að koma sér
vel fyrir börn á Íslandi sem þurfa á
aðstoð að halda til að geta stundað
sína íþrótt.
Þær Særún Lúðvíksdóttir, móðir
Ölla og stofnandi sjóðsins, og María
Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri
sjóðsins, þakka kærlega fyrir þessar
veglegu gjafir á afmælisdegi Ölla.
Sjóðurinn var stofnaður árið 2013 og
hefur síðan þá aðstoðað fjölda barna
með greiðslum á æfingagjöldum, æf-
ingabúnaði og kostnaði við æfinga-
og keppnisferðir. Þær stöllur segja
sífellt fleiri leita til sjóðsins enda
er hann skilvirkur og rekinn án alls
kostnaðar sem þýðir að öll fjár-
framlög til sjóðsins renna óskipt til
barna. Þær hvetja öll þau sem þurfa á
aðstoð að halda til að standa straum
af kostnaði við íþróttaiðkun barna
sem og öll þau sem vita af börnum
sem þurfa á aðstoð að halda, að setja
sig í samband við sjóðinn en hægt er
að sækja um styrki á heimasíðunni
minningarsjodurolla.is.
Erna Agnarsdóttir, amma Ölla, og Guðrún Hildur
Jóhannsdóttir, eigandi Icemar, afhentu Minningarsjóði
Ölla eina milljón króna í Ljónagryfjunni síðasta föstudag,
á fertugasta afmælisdegi Ölla. VF-myndir: JPK
Samfélagsráð HS Orku afhenti frændsystkinum Ölla gjöfina við HS Orkuvöllinn í Keflavík.
Það var hörkuviðureign milli Grindavíkur og Stjörnunnar í Grindavík
á mánudagskvöld þegar heimamenn tryggðu sér oddaleik í úrslita-
keppni Domino's-deildar karla í körfuknattleik.
Jafnræði var á með liðunum og
allt stál í stál en Grindvíkingar
náðu þó yfirhöndinni eftir því
sem leið á leikinn.
Í síðasta leikhluta sóttu
Stjörnumenn hart að Grindvík-
ingum en heimamenn stóðust
áhlaup þeirra og héldu fjögurra til
sex stiga forystu þar til í blálokin
er Stjarnan minnkaði muninn í
eitt stig með þriggja stiga körfu
og nítján sekúndur eftir á klukk-
unni. Það var svo Grindavík sem
tryggði sér 95:92 sigur úr víta-
köstum í lokin.
Grindavík og Stjarnan leika
því oddaleik í Garðabænum á
föstudag þar sem ræðst hvort
liðið komist í undanúrslit úrslita-
keppni Domino’s-deildar karla.
Grindavík og Njarðvík leika til
úrslita í fyrstu deild kvenna
Grindavík og Njarðvík unnu einnig sínar viðureignir síðasta mánu-
dagskvöld í undanúrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik og
sigruðu bæði lið því allar viðureignirnar í sínum einvígjum. Það
verða því Suðurnesjaliðin því berjast um sigurinn í 1. deild kvenna
og fer fyrsti leikurinn fram á heimavelli Njarðvíkinga mánudaginn
næstkomandi.
grindvíkingar
knúðu fram
oddaleik
M
yn
d:
K
ar
fa
n.
is
M
yn
d:
K
ar
fa
n.
is
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 23