Kaupfélagsblaðið - 03.12.1980, Page 3

Kaupfélagsblaðið - 03.12.1980, Page 3
OSTUR OG FITUINNIHALD Nokkurs ruglings hefur gætt hjá fólki vegna merkinga á osti með táknum eins og 45+, F45,30+, H 30 o.s.frv. Sumir hafa haldið þetta vera tegundarmerkingar eða jafnvel tákn um bragð- styrk. Tölur þessar voru á bitapökkuðum osti og táknuðu fituinnihald hans, miðað við þurrefni ostsins ef allt vatn væri tekið úr honum. Merkingar þessar snerta tæknilega framleiðslu ostsins og eiga trúlega rót sína að rekja til þess, að fyrrum var oft erfitt að segja fyrir um endanlegt vatnsinnihald hans. Nú hefur verið breytt um merkingar þannig að prósentutala sú sem stendur á miðanum á bita- pökkuðum osti, táknar raunverulegt fituinnihald hans. Þessum merkingum var breytt m.a. vegna nýrrar reglugerðar um vöruupplýsingar á matvöru, þar sem skilgreina ber efnainnihald vörunnar. Þessar breytingar hafa þegar verið gerðar í nágrannalöndum okkar. Tilgangurinn með þessum merkjabreytingum er að segja fólki sem réttast til um hvaða efni eru í ostinum og eyða þeim misskilningi hjá neytendum, að tölur sem voru áður á ostinum táknuðu fituinnihald hans miðað við heildarmagn. Eftirfarandi tölur eru til samanburðar: Áður Nú: 45+ 26% 30+ 17% 20+ 11% 60+ 33% Breytingar í Grindavík ............=□ Kauþfélagið hefur látið byggja 120 fermetra hús á Víkurbraut 44-46 í Grindavík. Þangað verður járnvörudeildin og fatnaðardeildin flutt um ára- mótin. Við þessar breytingar stækkar matvöru- búðin mikið og leysir það nokkurn vanda á meðan kaupfélagið hefur ekki bolmagn til að hefja bygg- ingu framtíðarhúsnæðis síns, sem rísa á nálægt félagsheipiilinu Festi. Aðstoðarkaupfélagsstjóri -. ~j Þann 1. júlí s.l. tók Guðjón Stefánsson við starfi aðstoðarkaupfélagsstjóra hjá félaginu. Hann hóf störf hjá Kaupfélagi Suðurnesja 1958 og hefur starfað þaróslitið síðan. Fráárinu 1963hefurhann verið skrifstofustjóri félagsins. Guðjón hefur starfað mikið að félagsmálum og verið í ýmsum nefndum fyrir Keflavíkurkaupstað. Hann hefur setið í bæjarstjórn síðan 1974. Sláturhúsið " Alls var slátrað í Grindavík 11.437 fjár á þessu hausti, þar af 10.116 dilkum. Meðalvigt reyndist vera 13,92 kg. Þyngsti dilkskrokkurinn vóg 30,1 kg. og var eigandi hans séra Birgir Ásgeirsson á Mos- felli. Alls voru 245 með innlegg í sláturhúsið að þessu sinni. Fróðleiksmolar um :=i i næringarefnafræði Það er ætlun þeirra, sem að þessu blaði standa að fræða neytendur nokkuð um gildi góðrarfæðu. Eins og allirvitaeru vítamín.eggjahvíta, kolvetni fita og steinefni líkamanum nauðsynleg til upp- byggingar og viðhalds. En ekki er víst að allir geri sér Ijósa grein fyrir því í hvaða fæðutegundum hin ýmsu lífsnauðsynlegu efni er að finna og í hvaða miklu magni þau eru, eða hvaða þýðingu það hefur ef skortur er á þeim. Nú á seinni árum eru mun betri upplýsingar með vörunni en var og eru neytendur kvattir til að lesa vel utan á vöruna áður en þeir kaupa viðkomandi vöru, þá eru minni líkur á að kaupa “köttinn í sekknum". í þessu blaði og næstu blöðum verður hinum ýmsu næringarefnum gerð skii. VÍTAMÍN: Til eru að minnsta kosti tylft vítamína sem hafa misjafnlega mikið gildi. Orðið vítamín stendur saman af vita sem þýðir líf (latneska) og amin (sem er köfnunarefni, en í fyrstu var talið að vítamínin væru köfnunarefni). Vítamínin eru líkamanum nauðsynleg vegna þess að þau eiga þátt í efnaskiptum líkamans. An vítamína detturvirkni hvatakerfisins niðurog ýms efnaskiptaferli stöðvast eða ganga of hægt. Fyrst skulum við gera A-vítamíni nokkur skil. Dagskammtur A-vítamíns er fyrir fullorðna talin vera 2000-4000 a.e. Börn og þungaðar konur þurfa hlutfallslega meira. Við A-vítamínsskort koma fram hörgulssjúkdómar, en helstu einkenni þeirra eru þykknun og þurrkur í húð, náttblinda og í alvarlegum tilfellum ógegnsæi glæru augans. Þær fæðutegundir sem eru auðugar af A- vítamíni eru egg,smjör, ostar, þorskalifur, lýsi, síld, kálmeti og gulrætur ( gulrætur innihalda korolin.sem er forstig A-vítamíns en þarmaslím- húðin er fær um að breyta því í virkt A-vítamín). Þá er mjólk auðug af A-vítamínum og hún er auðugri af því á sumrin en á vetrum. Dagþörf A-V samkv. alþjóðasamþykkt WHO/FAO: I.E. - alþj. elning Aldun 0-6 mánaða Brjóstamjólk inniheldur þörf barnsins Mg. A-ví 6-12 mánaða 1000 0.30 1-3 ára 850 0.25 4-6 ára 1000 0.30 7-9 ára 1350 0.40 10-12 ára 1900 0.575 13-15 ára 2400 0.725 16-19 ára 2500 0.75 Sólveig Þórðardóttir Afsláttarkort ' .zz: í nóvember voru gefin út afsláttarkort til félagsmanna sem giltu í sérvörubúðum félagsins til 6. des. s.l. Nærri 500 félagsmenn hagnýttu sér kortin og fengu þannig 10% afslátt af innkaupum sínum.

x

Kaupfélagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kaupfélagsblaðið
https://timarit.is/publication/1570

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.